Fréttablaðið - 22.07.2004, Síða 38

Fréttablaðið - 22.07.2004, Síða 38
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Tveir eru eins og er í ólympíuhóp Íslands í frjálsum íþróttum, tugþrautarkappinn Jón Arnar Magnússon og stangar- stökkvarinn Þórey Edda Elísdótt- ir. Þessi tvö hafa náð lágmörkum fyrir Ólympíuleikana í Aþenu en frestur til þess rennur út 9. ágúst. Guðmundur Karlsson, lands- liðsþjálfari í frjálsum íþróttum, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann vonaðist að sjálf- sögðu eftir því að hópurinn myndi stækka áður en fresturinn til ná lágmörkum myndi renna út. „Við vorum með fjóra keppendur á síð- ustu leikum í Sydney en það væri ekkert áfall þó að keppendurnir yrðu aðeins tveir í þetta skiptið. Við myndum þá mæta til leiks með keppendur sem eru báðir lík- legir til að fara í tólf manna úrslit í sínum greinum og það er sómi fyrir hverja einustu þjóð. Ég tel hins vegar vera helmingslíkur á því að einhver keppandi bætist í hópinn með Jóni Arnari og Þóreyju Eddu áður en fresturinn rennur út,“ sagði Guðmundur. Aðspurður sagði Guðmundur að nokkrir íþróttamenn væru nálægt því að ná lágmörkunum fyrir leikana og taldi hann spjót- kastarana Vigdísi Guðjónsdóttur og Ásdísi Hjálmsdóttur, sem varð í sjötta sæti á HM 19 ára og yngri á dögunum, líklegastar. „Þær eru stutt frá lágmarkinu, sérstaklega Ásdís sem er aðeins 51 sentímetra frá lágmarkinu. Þær munu báðar reyna við lág- markið á meistaramótinu um helgina og miðað við hvernig þær hafa kastað þá er ég bjartsýnn fyrir þeirra hönd. Ásdís er mjög ung en það væri frábært fyrir hana að komast inn núna. Hún á eftir að verða fastagestur á stór- mótum í framtíðinni en aðalmark- miðið hjá henni er að stefna á Ólympíuleikana í Peking 2008.“ Guðmundur sagðist einnig vonast til þess að kringlukastar- inn Magnús Aron Hallgrímsson myndi höggva nærri lágmarkinu. „Hann hefur verið mikið meiddur en kastaði 58 metra á sínu fyrsta móti í langan tíma á dögunum þrátt fyrir að aðstæður væru ekki góðar. Hann hefur kastað best 63,09 sem er yfir lág- markinu en auðvitað þarf hann að hitta á mjög góðan dag. Hann þarf að ná nokkrum mótum í röð og þá gæti þetta smollið hjá honum.“ Guðmundur sagði að sömu sögu væri að segja um Völu Flosa- dóttur. „Það vita allir hvað Vala getur og hún gæti þess vegna stokkið yfir 4,40 sem er lágmarkið fyrir Aþenu. Hún hefur verið meidd á læri en er orðin góð og gæti þess vegna náð lágmarkinu í Bikar- keppni FRÍ sem fer fram 6.–7. ágúst. Það er síðasti möguleikinn til að ná lágmarkinu og ég verð að vera bjartsýnn á að einhverjum takist það,“ sagði Guðmundur. oskar@frettabladid.is Við hrósum... ...Eiði Smára Guðjohnsen, framherja hjá Chelsea og fyrirliða íslenska landsliðsins, en frammistaða hans hjá félaginu hefur gert það að verkum að hann fékk nýjan fjögurra ára samning sem færir honum milljón á dag út samningstímann. Gott hjá honum og föður hans Arnóri sem var hans hægri hönd í samningagerðinni. 26 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is Opnum í dag glæsilega verslun á besta stað! Meiriháttar úrval af sexý fatnaði og skóm auk allra hinna ómissandi hjálpartækja ástarlífsins. Sjón er sögu ríkari! LÍTTU VIÐ OG SJÁÐU EITTHVAÐ SEM EKKI HEFUR SÉST Á ÍSLANDI ÁÐUR! Verið velkomin á Frakkastíg 8. Sími í verslun 552 4240 Ath. Aðeins fyrir 18 ára og eldri. SPJALLAÐU BEINT - 905 2030 STELPURNAR ERU VIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN - 299.990 KR. MÍNÚTAN Op ið sun -fim kl. 12- 24 Opið fös-lau kl. 12-04 Við mælum með... ... því að handboltamaðurinn Vilhjálmur Halldórsson, sem er í besta falli afskaplega seinheppinn, haldi sig héðan í frá á jörðinni en sé ekki að standa í stórræðum í mikilli hæð. Hann handarbrotnaði við fall af húsþaki og var það í áttunda sinn sem bein í líkama hans brotnar. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 19 20 21 22 23 24 25 Fimmtudagur JÚLÍ ■ ■ SJÓNVARP  10.00 Suður-Ameríku-bikarinn á Sýn. Útsending frá leik Brasilíu og Úrúgvæ í undanúrslitum.  18.45 Inside the PGA Tour á Sýn.  19.15 Kraftasport á Sýn. Sýnt verður frá keppninni um Suðurlandströllið.  21.35 Landsmótið í golfi á Sýn. Samantekt frá fyrsta keppnisdegi. Kvennalið ÍBV: Ungverskur liðsstyrkur HANDBOLTI Kvennalið ÍBV, sem varð Íslands- og bikarmeistari á síðasta tímabili og náði skínandi góðum árangri í Evrópukeppn- inni, hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil. Ungverska skyttan Zsofia Pasztor, sem er 29 ára, er gengin til liðs við félagið en hún á að baki 20 landsleiki fyrir Ungverjaland. Pasztor lék með portúgalska lið- inu Madeira Andebol á síðasta tímabili og vann alla titla sem í boði voru. Samkvæmt heimsíðu ÍBV þá skoraði hún 210 mörk í 30 leikjum sem gera sjö mörk að meðaltali í leik. ÍBV hefur misst marga öfl- uga leikmenn í sumar þannig að liðinu veitir ekki af þessum liðsstyrk. ■ Tvö örugg til Aþenu en nokkrir nálægt Guðmundur Karlsson, landsliðsþjálfari í frjálsum íþróttum, segir helmingslíkur að ólympíu- hópur Íslands stækki fram að leikum. MAGNÚS ARON HALLGRÍMSSON Kastaði 58 metra á síðasta móti en þarf að bæta sig um rúma 4,50 metra til að komast til Aþenu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.