Fréttablaðið - 22.07.2004, Page 39
GOLF Íslandsmótið í höggleik hefst
á Garðavelli á Akranesi í dag og
verða fyrstu keppendur ræstir út
kl. 8. Birgir Leifur Hafþórsson,
kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs
og Garðabæjar, og Ragnhildur
Sigurðardóttir úr GR hafa titil að
verja en þau fóru með sigur af
hólmi í Vestmannaeyjum í fyrra.
Fréttablaðið ræddi við Ragn-
hildi í gær og það var ekki annað
að heyra á henni en að hún væri
klár í að verja titilinn frá því í
fyrra.
„Ég hlakka mikið til að keppa á
þessu móti. Ég var uppi á Akra-
nesi um helgina og skoðaði völlinn
og hann lítur mjög vel. Ég er
reyndar á leiðinni upp eftir núna
að skoða völlinn enn frekar en
völlurinn er glæsilegur og þetta
mót verður án nokkurs vafa mjög
spennandi,“ sagði Ragnhildur.
Hún lenti í smávandræðum á
meistaramóti Golfklúbbs Reykja-
víkur um síðustu helgi en sagðist
halda að það væri eingöngu
þreytu um að kenna.
„Ég hef spilað mikið og æft
stíft og ég held að þetta hafi verið
þreyta. Mér gekk vel fyrstu tvo
hringina, setti meðal annars
vallarmet fyrsta daginn og
fannst ég vera ósigrandi.
Síðan fór að halla undan
fæti og spilið gekk engan
veginn upp. Ég hef hvílt
mig vel síðustu daga og
það var kannski ágætt
að fá þessa áminningu,
að taka engu sem
g e f n u m
h l u t ,
núna svona skömmu fyrir þetta
mót.“
Ragnhildur, sem hefur unnið
tvö af þremur mótum á Toyota-
mótaröðinni á þessu ári, segist bú-
ast við hörkukeppni í kvenna-
flokknum og segir það engan veg-
inn sjálfgefið að hún verji titilinn.
„Breiddin er alltaf að aukast í
kvennagolfinu. Nú erum við þrjár,
ég, Ólöf María Jónsdóttir og Þór-
dís Geirsdóttir, með 0 í forgjöf og
aðrar stelpur eru sífellt að lækka
sig. Sú, sem ætlar að vinna þetta
mót, þarf að spila afskaplega vel
alla fjóra dagana og mér sýnist að
þær sem muni veita mér mestu
keppni séu Ólöf María og Þórdís
auk Herborgar Arnardóttur sem
hefur lítið spilað á þessu ári og
kemur væntanlega mjög hungruð
til leiks. Einnig eiga ungu
stelpurnar, Anna Lísa Jóhanns-
dóttir og Tinna Jóhannsdóttir,
eftir að vera í toppbaráttunni,
sagði Ragnhildur.
Ragnhi ldur
sagðist ekki
b ú a s t
við neinu óvæntu í karlaflokki þar
sem Birgir Leifur Hafþórsson á
titil að verja. „Ég held að stóru
nöfnin, Birgir Leifur, Björgvin
Sigurbergsson og Sigurpáll Geir
Sveinsson berjist um titilinn en
einnig gætu þeir Magnús Lárus-
son og Heiðar Davíð Bragason
blandað sér í baráttuna.“
Flatirnar á Garðavelli á Akra-
nesi eru mjög hraðar og mikið af
brotum í þeim og Ragnhildur
sagðist búast við því að spila-
mennskan á þeim réði úrslitum.
„Ef veðrið verður gott þá mun
stutta spilið ráða úrslitum. Stutta
spilið er auðvitað alltaf mikilvægt
en sjaldan eins mikilvægt og á
þessum velli þar sem flatirnar eru
mjög hraðar og mikið af brotum,“
sagði Ragnhildur.
oskar@frettabladid.is
FIMMTUDAGUR 22. júlí 2004
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
2
9
5
6
CRISTIANO RONALDO
Missir af upphafi ensku úrvalsdeildarinnar.
Fer á Ólympíuleikana.
Áfall fyrir Man. Utd:
Ronaldo á
Ólympíu-
leikana
FÓTBOLTI Portúgalski landsliðsmað-
urinn, Cristiano Ronaldo, leik-
maður Manchester United, hefur
verið valinn í ólympíulandslið
Portúgala og mun því missa af
upphafi ensku úrvalsdeildarinnar.
Þetta er vissulega áfall fyrir
Manchester United en Ronaldo,
sem er aðeins 19 ára, var án efa
einn besti leikmaður nýafstaðinn-
ar Evrópukeppni sem fram fór í
Portúgal. Knattspyrnumót
Ólympíuleikanna er í raun aðeins
ætlað leikmönnum sem eru yngri
en 23 ára og því margir bestu leik-
menn heims ekki gjaldgengir. Á
Ólympíuleikunum er Portúgal í
riðli með Írak, Marokkó og Costa
Rica og ætti því væntanlega ekki
að eiga í miklum vandræðum með
að komast áfram. ■
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd:
Peningar ekki
allt í boltanum
FÓTBOLTI Framkvæmdastjóri Man-
chester United, Sir Alex Fergu-
son, lætur ekki sitt eftir liggja í
sálfræðiorrustunum frekar en
venjulega.
Hann skýtur nett á nýráðinn
framkvæmdastjóra Chelsea, Jose
Mourinho, en flestir muna eftir
munnlegum átökum þeirra þegar
Portó sló United út úr meistara-
deild Evrópu í vetur en Mourinho
stýrði einmitt Portó til sigurs í
þeirri keppni.
„Peningar eru ekki málið. Að
velja réttu leikmennina er það
hins vegar,“ lét Ferguson hafa
eftir sér og hann telur að allir
milljarðarnir hans Romans Abra-
movich muni ekki sjálfkrafa
tryggja Chelsea titla þótt liðið
verði gífurlega sterkt og líklegt til
afreka:
„Næsta keppnistímabil gæti
orðið mjög athyglisvert því bæði
Chelsea og Liverpool eru með
nýja framkvæmdastjóra og við
Arsene Wenger erum eiginlega
orðnir gömlu kallarnir í deildinni.
Ég sé fyrir mér að Tottenham taki
miklum framförum og sama má
segja um okkur. Við ætlum okkur
stærri hluti en á síðasta tímabili
og ég hygg að Arsenal, Chelsea og
Liverpool komi til með að slást við
okkur um stóru titlana sem í boði
eru þetta tímabilið,“ sagði Sir
Alex Ferguson. ■
SIR ALEX FERGUSON
Lætur ekki sitt eftir liggja í sálfræðistríði
knattspyrnustjóranna á Englandi.
Stutta spilið ræður
úrslitum á Akranesi
Ragnhildur Sigurðardóttir, sem á titil að verja, spáir spennandi keppni í
karla- og kvennaflokki á Íslandsmótinu í höggleik sem hefst í dag á
Akranesi.
RAGNHILDUR
SIGURÐARDÓTTIR
Var á leiðinni upp á
Akranes í gær til að
kíkja á aðstæður og
segist vera klár í að
verja titilinn frá því í
fyrra.