Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 44
„On competing, oh when will this tired heart stop beating? It’s all a game... existance is only a game.“ - Morrissey í laginu I’m Not Sorry af nýjustu plötu hans You are the Quarry. 32 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR Í spilaranum hjá ritstjórninni The Hives: Tyrannosaurus Hives, Jesse Malin: The Heat, Brúðarbandið: Meira!, Morrissey: You are the Quarry, Rokksöngleikurinn Hárið: Úr söngleik, Ísidor: Betty Takes a Ride, Cake: Prolonging the Magic og Hvanndalsbræður: Hrútleiðinlegir. PRODIGY Nýja Prodigy lagið fer rakleið- is á toppinn hjá X-inu 977. Hvanndalsbræður gáfu út diskinn Út úr kú fyrir síðustu jól. Nú snúa þeir aftur, rétt rúmum sex mánuð- um síðar með nýja plötu er heitir Hrútleiðinlegir. Að þessu sinni að- eins með frumsömdum lögum, en á þeim fyrir voru aðeins þrjú úr þeirra eigin suðurpotti innan um tökulögin. „Það var ákveðið að leggja að- eins meira í þennan disk en síð- asta,“ segir Valur úr sveitinni í gegnum farsímann og heyra má niðinn úr traktornum sem hann er að keyra. „Það tók um sjö klukku- tíma að taka þennan upp, en hinn var um fimm tímar. Það er ekkert gríðarlegur metnaður hjá okkur að gera þetta fínpússað. Við vilj- um láta þetta hljóma lifandi og gera þetta eins og við viljum hafa það. Við reynum að láta þetta hljóma eins og við hljómum á tón- leikum.“ Hvanndalsbræður eru sannir rótum sínum og koma aldrei fram nema klæddir í lopapeysur með þæfðar húfur á kollinum. Sama hvernig veðrið er. „Þetta getur orðið þokkalega heitt. Við höfum verið að spila á útihátíðum í sum- ar í sól og hita. Það hefur stundum legið við yfirliði. Við tökum ekki annað í mál. Við erum orðnir þekktir sem lopapeysukallarnir. Við viljum ekki fara að skemma það.“ Valur segir þá bræðurna vera nýflutta „á mölina“ til Akureyrar og að það sé erfitt að aðlagast bæjarlífinu. „Við erum svo miklir sveitamenn í okkur. Hér er svo mikil fólksfjöldi og umferð. Við bjuggum bara þrír á Hvanndal með mömmu sem dó svo. Við erum frekar ósjálfsbjarga menn. Búum núna hjá frænku okkar sem er að reyna kenna okkur að aðlag- ast stórborginni. Við ætlum að leggja land undir fót og fara á traktornum okkar suður til þess að spila í sjónvarpi. Svo ætlum við að vera í Eyjum og Galtalæk um verslunarmannahelgina. Það verður gífurleg upplifun að fá að fara þarna til útlanda.“ Frjóir Hvanndalsbræður HVANNDALSBRÆÐUR „Þetta eru okkar börn, öll fædd á þriggja mánaða millibili,“ segir Valur. „Við feng- um til okkar konur í Hvanndal, þegar við vorum að drepast úr leiðindum. Eins og einn í bandinu segir: „þá var sko líf í tussunum!“.“ [ TOPP 20 ] X-IÐ 977 - VIKA 30 „GIRLS“ Prodigy „THE RAT“ The Walkmen „THAT WOMAN IS A MAN“ Hot Damn „NICE BOYS“ Mínus „GROWING ON ME“ The Darkness „BLACKEN MY THUMB“ The Datsuns „Y CONTROL“ Yeah Yeah Yeahs „THE END OF THE WORLD“ The Cure „WALK IDIOT WALK“ The Hives „SO SAYS I“ The Shins „THE LETTER“ P.J. Harvey „EVERYTHING I’VE KNOWN“ Korn „MICHAEL“ Franz Ferdinand „THE FUN MACHINE“ Manhattan „ALMOST OVER“ Limp Bizkit „VINDICATED“ Dashboard Confesionals „MR. BRIGHTSIDE“ The Killers „WAKE UP (MAKE A MOVE)“ Lostprophets „DOWN“ Blink 182 „DUALITY“ Slipknot * Listanum er raðað af umsjónar- mönnum stöðvarinnar 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 ÍRAFÁR Nýja Írafár-lagið fær mikla spilun á út- varpsstöð allra landsmanna. [ A-listinn á Rás 2 ] Mest spiluðu lögin í stafrófsröð MY HAPPY ENDINGS AVRIL LAVIGNE BOLUR INN VIÐ BEIN BRIMKLÓ FALLEGUR DAGUR BUBBI MORTHENS FRÆG ESTHER TALÍA AHA GEIR HARÐARSON GAGALAGÚ HEIÐA BRÉFIÐ HJÁLMAR UPP MEÐ HÚMORINN HLJÓMAR EVERYBODY’S CHANGING KEANE CALIFORNIA LENNY KRAVITZ MARÍA MANNAKORN FLOAT ON MODEST MOUSE SKÁL STUÐMENN AÐ EILÍFU SVERRIR BERGMANN KYSSTU MIG Í SVÖRTUM FÖTUM LÍFIÐ ÍRAFÁR Magnús Stefánsson, trommuleik- ari, var snöggur að leiðrétta mig þegar ég spurði hann hver væri megin ástæðan fyrir endurkomu rokkhljómsveitarinnar Egó. „Þetta er endurstofnun, ekki endurkoma,“ undirstrikar Magn- ús. „Við ætlum að vera til, spila þegar okkur hentar og gera plötu seinna, ef það gengur eftir. Það er búið að vera í loftinu í smá tíma að gera þetta. Utangarðsmenn komu saman aftur fyrir fjórum árum síðan og þegar tvö ár voru liðin frá því fór ég að hugsa út í það að stofna aftur Egó. Persónulegar aðstæður liðsmanna leyfðu það ekki þá, þegar sveitin átti tuttugu ára afmæli. Það sem kom til var einfaldlega löngunin til þess að gera þetta núna, 22 árum seinna, óvirkir og í dúndurformi.“ Í núverandi liðsskipan Egó eru því auk Magnúsar og Bubba þeir Einar Þór Jóhannsson gítarleikari Dúndurfrétta, Hrafn Thoroddsen úr Ensími á hljómborð og Jakob Magnússon bassaleikari sem hefur spilað lengi með Bubba. Magnús kýs að líta á þetta sem nýjustu útgáfu sveitarinnar sem hann og Bubbi voru lengst með- lima í á sínum tíma. Magnús trommaði á báðum meistarastykkjum sveitarinnar, breiðskífunum Ímynd og Breyttir tímar, auk þess að hafa verið Utangarðsmaður á þoku- kenndasta tímabili síns og Bubba. Magnús viðurkennir fúslega að hafa þótt vænna um Egó en Utan- garðsmenn. „Ég þoldi ekki Utan- garðsmenn en fílaði hins vegar Egó og finnst mun skemmtilegra að spila þau lög,“ segir hann, blá- kaldur. „Á sama tíma og Utan- garðsmenn voru frægir í blöðun- um vorum við að lepja dauðann úr skel. Í Egó var þetta orðið meira mannsæmandi líf, þó að við höf- um ekkert verið vaðandi í pening- um. Ég kunni vel við kraftinn í Ut- angarðsmönnum og lagði mikinn metnað í hann. Til dæmis eins og að keyra lögin áfram án þess að taka hálftíma pásur eins og eldri sveitir á borð við Brimkló gerðu. Við tókum þennan kraft áfram í Egó-ið. Þannig fékk sveitin það besta frá Utangarðsmönnum og svo urðu lagasmíðar betri og melódískari. Þess vegna hafði ég persónulega meira gaman af Egó- inu, og hef enn. Það er ótrúlega gaman á æfingum. Skemmtilegri tónlist og skemmtilegri mórall.“ Magnús segir að Egó hafi eytt tíma sínum á æfingum í að æfa upp gömul lög. Þau eru tekin af plötun- um Ímynd og Breyttum tímum en auk þeirra sé sveitin að æfa upp lög eftir Das Kapital, Utangarðsmenn og nokkur af sólóferli Bubba. Þar á meðal fá lögin Serbinn og Svartur Afgann að fljóta með. Magnús segir ekkert ákveðið með það hvenær sveitin geti hugsað sér að fara vinna að nýju efni. Allir liðsmenn Egó séu í öðrum hljóm- sveitum og því oft erfitt að finna tíma. Sjálfum langar honum ekki að byrja fyrr en sveitin hefur spilað sig saman og fundið sinn persónu- lega stíl. Hann vonast þó til þess að geta byrjað lagasmíðar í vetur. Hin enduruppreista Egó kemur fyrst fram á Þjóðhátíð í Eyjum um Verslunarmannahelgina, en einnig er verið að vinna í því að halda tónleika á Akureyri og í Reykjavík. biggi@frettabladid.is Egó endurstofnuð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.