Fréttablaðið - 22.07.2004, Síða 54
Stjörnustríðshetjan Harrison
Ford heimsótti Ísland aftur í vik-
unni en ekki er langt síðan
fréttir bárust af honum á
Thorvaldsen. Nú kíkti meðal
annars út á lífið á Vegamótum.
Þar settist hann niður ásamt fé-
laga sínum sem virtist talsvert
eldri en hann og starfsfólkið
taldi vera frænda hans.
„Harrison var mjög þreytu-
legur að sjá, ógreiddur og
ábyggilega nývaknaður. Hann
pantaði sér einn drykk, gin í
tónik, borgaði með korti og var
mjög venjulegur. Í fyrstu sat
hann og horfði niður allan tím-
ann eins og hann vildi ekki að
fólk vissi af honum en þegar
smáborgararnir uppgötvuðu
hann fylktust þeir í kringum
hann og báðu um eiginhandar-
áritanir. Hann hafði greinilega
ekki mjög gaman af því og
neitaði að gefa áritanir. Þegar
hann var búinn með drykkinn og
fólkið var orðið yfirþyrmandi,
stóð hann upp og labbaði út,“
segir vaktstjóri Vegamóta en
upplýsir að Ford hafi ekki verið
fullur.
Leikarinn dvaldi eina nótt á
Hótel 101 en þar gisti hann
einnig í síðustu Íslandsheimsókn
sinni. „Það var fínt eins og alltaf
að fá Harrison Ford á hótelið.
Hann er mjög rólegur maður
sem fer lítið fyrir og hefur ef-
laust millilent á Íslandi í stutta
stund,“ segir starfstúlka í mót-
töku hótelsins. „Hér fékk hann
að minnsta kosti frið því það er
rólegt hjá okkur á þriðjudags-
kvöldum.“
Harrison Ford er væntanlegur í
kvikmyndunum The Wrong Elem-
ent og Godspeed í leikstjórn Ryne
Douglas Pearson en upptökur á
þeirri mynd hefjast bráðlega. ■
Ford ofsóttur á Vegamótum
HARRISON FORD
Flúði undan ágengum gestum Vegamóta.
42 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
Íslandsmeistarar rokksins á
Íslandi, Mínus, hafa verið ráðnir
til þess að opna aðalsvið Reading-
hátíðarinnar sama kvöld og
Green Day loka. Hátíðin er
haldin í tveimur borgum samtím-
is, og koma allar sveitirnar fram í
báðum borgum sitt hvort kvöldið.
Þannig opnar Mínus aðalsvið-
ið í Leeds, föstudaginn 27. ágúst,
og svo í Reading, sunnudaginn
29. ágúst. Eftir Mínus stíga á
svið sveitirnar Thrice, New
Found Glory, The Rasmus, Drop-
kick Murphy’s, The Streets,
Lostprophets, Placebo, 50 Cent
og Green Day í þessari röð.
Mínus má þakka rokktímarit-
inu Kerrang! fyrir velgengni
sína en þar er farið fögrum orð-
um um sveitina, nánast í hverju
blaði. Í síðustu viku var mynd af
Mínus á forsíðu blaðsins og
sveitin nefnd sem ein af þeim 30
sveitum sem fólk verður að
kynna sér, að mati blaðsins. Sex
aðrar sveitir prýddu forsíðuna, í
sama dálki. Inn í blaðinu fær
sveitin tveggja síðna viðtal, auk
heilsíðu myndar þar sem blaða-
menn leika sér að því að ímynda
sér hvernig sveitin komi til með
að líta út á forsíðu blaðsins í
framtíðinni.
„Þeir eru fyrsta alvöru rokk
og ról klíka þessarar aldar,“
stendur m.a. í greininni. ■
Kolbrá Bragadóttir myndlist-
armaður lenti í óskemmtilegu at-
viki á dögunum þegar dýru mál-
verki var stolið frá henni. „Það
sem gerðist var að ég hélt sýningu
á Sólon og það hringdi maður í
mig sem vildi kaupa af mér mál-
verk. Hann gaf mér númerið sitt
en ég týndi því síðan,“ segir hún. „
Svo hringdi hann í mig úr leyni-
númeri deginum áður en ég tók
sýninguna niður. Við mæltum
okkur mót klukkan níu morguninn
eftir en hann mætti ekki.“
Kolbrá segist hafa skroppið frá
um tíuleytið og þá hafi maðurinn
komið og tekið verkið en ekki
skilið eftir símanúmerið sitt eða
neinn pening. Hún veit aðeins að
maðurinn heitir Jón Valur. Atvikið
átti sér stað fyrir rúmum tveimur
mánuðum og síðan þá hefur Kol-
brún bæði talað við lögregluna og
sendibílastöðvar en án árangurs.
„Ég þarf nauðsynlega að ná sam-
bandi við þennan mann,“ segir
hún. „Þetta kostaði mikinn pening
þetta málverk, 125 þúsund krónur.
Vonandi er þetta bara týpískur ís-
lenskur slugsi sem hefur ekki
ætlað að stela verkinu. Mig langar
bara að biðja hann um að hafa
samband við mig og ef hann er er-
lendis, þá vil ég tala við einhvern
sem þekkir til hans. Ef hann
ætlaði að stela málverkinu er ekk-
ert flott að hafa verk uppi hjá sér
sem allir vita að er stolið.“
Kolbrá saknar málverskins
mikið og því er þeim sem vita
um afdrif málverksins bent á að
hafa samband við hana í síma
869 4571. ■
Dýru málverki stolið
TÓNLIST
MÍNUS
■ Rokka í Reading.
STJÖRNUR
HEIMSÓKN TIL ÍSLANDS
■ Friðhelgi erlendra stórstjarna
ekki lengur til staðar
MYNDLIST
DÝRU MÁLVERKI
■ var stolið frá Kolbrá Bragadóttur
myndlistarmanni fyrir tveimur
mánuðum.
MÍNUS
Opna aðalsvið Reading-hátíðarinnar og spila þar með Placebo, 50 Cent og Green Day.
í dag
Harrison Ford
aftur á Íslandi
Fékk íslenskan
koss á Vegamótum
Hákon sendur
þegjandi í
geðrannsókn
Harmleikurinn
á Hagamel
Móðirin
ósakhæf
MÁLVERKIÐ
Þetta málverk var tekið frá Kolbrá fyrir rúmum tveimur mánuðum. Það er 130 sinnum
120 að stærð. Þeir sem vita um afdrif þess eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband
við hana.
Lárétt:
1 líffæri, 5 fölsk, 6 titill, 7 höfuðáttir,
8 fugl, 9 skinnpoka, 10 leyfist, 12 þræta,
13 flana, 15 félagsskapur, 16 tarfur,
18 sælgætisgerð.
Lóðrétt:
1 auðmann, 2 hita, 3 slá, 4 húsin,
6 illmenni, 8 biblíunafn, 11 fljótið,
14 sár, 17 grastotti.
LAUSN:
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Rafstöðinni í Elliðaárdal
Í andapollinum í Laugardal
Japan
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
Lárétt:
1eyra,5flá,6dr, 7ns,8lóa,9belg,
10má,12agg,13ana,15aa,16naut,
18móna.
Lóðrétt:
1efnamann,2yls,3rá,4braggana,
6dólga,8lea,11ána,14aum,17tó.
Á aðalsviði Reading