Fréttablaðið - 22.07.2004, Page 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Skoðana-
skiptimiðar
Í sól og sumaryl er sælt að vera til.Þeir sem komust ekki út í sveita-
sæluna í vikunni gátu nú heldur betur
bætt sér það upp með tveggja tíma
löngum þætti í sjónvarpinu um kýr af
ýmsum stærðum og gerðum með
mörgum góðum nærmyndum af
júgrum. Í áhyggjuleysi er frábært að
sveifla sér upp og niður eftir sól-
stöfum eins og litli sólargeislinn í
barnabókinni Sólstafir gerði forðum.
GÚRKUR eru nú á frábæru verði en
það er óskaplega lítið minnst á þær þó
svo að það sé hásumar. Það þarf
kannski ekki að tala um þær, þegar
lifandi gúrkur kvaka hver í sínu gróð-
urhúsi og keppast við að henda grjóti
út um glerveggina. Fyrsta afborgun
af fellihýsinu er ekki fyrr en í október
þannig að Gudda og Baddi bruna keik
um hringveginn í leit að grænni lautu
til að njótast í og nýta nýja dótið sitt.
ÞAÐ leggur grillfnyk milli garða og
gömul hús með slitnum gólfdúkum
eru seld á verði heillrar götu. Hver
getur beðið um betra samfélag? Hér
er ró og hér er friður og ekkert
vandamál að setjast niður og skipta
um skoðun. Er það ekki skoðana-
skipti að skipta um skoðun? Það er
hverjum manni hollt að skipta um
skoðun því skoðanirnar eru eins og
skótauið, það er hætta á táfýlu ef
menn eru of lengi í sömu skónum.
Fyrir svo utan að það er óhollt fyrir
bakið og slæmt fyrir kálfana að vera
í sömu skónum allan daginn. Hitt er
svo annað mál að það er svolítið
pirrandi þegar menn eru mikið með
stáltá á skónum og traðka oná öðrum.
GLAÐUR og ánægður nútímamaður
kom nýlega fram í spjallþætti þar sem
hann þakkaði guði fyrir að gamli tím-
inn væri hér ekki enn við líði. Gamli
tíminn, var sá tími þegar allt var póli-
tískt. Það þurfti að vera í sérstakri
pólitískri klíku til þess að eignast
kartöflugarð og það þurfti að vera í
pólitískri klíku til þess að komast yfir
nokkrar krónur í erlendum gjaldmiðli
og það þurfti að vera í pólitískri klíku
til þess að gerast heildsali og síðast en
ekki síst voru blöðin pólitísk. Nú ríkir
aftur á móti suðræn sæla í svala ljúfa
blænum þar sem orðið klíka hefur
nánast verið strikað út úr tungumálinu
og pólitísk vinátta er bara áróður og
öfundsýki runnin undan rifjum smá-
menna sem komast hvorki lönd né
strönd sökum eigin nöldurs. Þeir geta
kannski náð sér í skoðanaskiptimiða
næst þegar þeir fara í strætó ■
ELÍSABETAR BREKKAN
BAKÞANKAR