Tíminn - 16.09.1972, Síða 15
Laugardagur 16. september 1972
TÍMINN
15
Konan frá Patreks-
fírði slasaðist líka
Það er langt frá þvi, að kona
Haralds Ölafssonar á Patreks-
firði, Birna Jónsdóttir, hafi
sloppið litt meidd úr bifreiða-
slysinu á Skálanesi á laugar-
daginn. Hún er mikið marin, bæði
innvortis og útvortis, og meidd á
hnjám og úlnlið, auk þess sem
tennur brotnuðu úr henni.
— Það bjargaði okkur áreiðan-
lega, að við vorum með öryggis-
belti, sagði hún, er Timinn ræddi
við hana i gær. — An þeirra
hefðum við tæpast sloppið lifs úr
þessu — að minnsta kosti ekki án
stórkostlegra limlestinga. En ég
Ríkisskattanefnd
Með breytingu á lögum um
tekjuskatt og eignarskatt, er gerð
var á s.l. vetri var gerð breyting á
skipan rikisskattanefndar.
1 samræmi við það hafa eftir-
greindir menn verið skipaðir i
nefndina frá þeim tima til næstu
fjögurra ára:
Guðmundur Skaftason, hæsta-
réttarlögmaður, formaður, Egg-
ert Kristjánsson, hæstaréttarlög-
maður, og Jóhannes L.L. Helga-
son, hæstaréttarlögmaður.
Varamenn þeirra hafa verið
skipaðir þeir
Hallvarður Einvarðsson, aðal-
fulltrúi saksóknara rikisins,
varaformaður, Ólafur A. Pálsson,
borgarfógeti, og Guðlaugur Þor-
valdsson, prófessor.
(Fjármálaráðuneytið)
Saxast hefur
mikið á útisenur
Brekkukotsannáls
Stp—Reykjavfk.
Verið er að taka upp siðustu
atriðin á Löngustétt. I gær var
verið að taka upp atriði við baka-
riið, og eru þetta siðustu útisenur
með leikurum og statistum þar.
Eftir er aö taka útisenur fyrir
framan forsöngvarahúsið og rit-
stjórahúsið, niðri við höfn og i
Lækjargötu. Hefursaxast mikið á
útisenurnar undanfarið. Eftir er
að taka nokkuð mikið af atriöum
innanhúss, og er áætlaö,að enn sé
eftir um þriggja vikna starf við
myndatöku.
er öll blá og marin undan beltinu
og hef átt mjög örðugt með
andardrátt.
Bæjarstjórn Akraness
gaf 200 þúsund í
landhelgissöfnunina
A fundi sinum, þann 12. sept.
'72, samþykkti bæjarstjórn Akra-
ness svohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórn Akraness fagnar
útfærslu fiskveiðilögsögunnar i 50
sjómilur, og þeim mikla samhug,
sem þjóðin hefur sýnt i þessu
mikilvæga lifsbjargarmáli.
Væntir bæjarstjórnin þess, að
framkvæmd útfærslunnar megi
vel takast og fullur sigur vinnist
sem fyrst.
Jafnframt samþykkir bæjar-
stjórnin að gefa kr. 200 þús. i
Landhelgissjóð.”
Björgunaræfing
í Saltvík
Sameiginleg æfing allra
björgunaraðila landsins verður
haldin i Saltvik á Kjalarnesi um
helgina.
Það er Hjálparsveit skáta i
Reykjavik.sem boðar til æfingar-
innar i tilefni af 40 ára afmæli
sveitarinnar, sem er um þessar
mundir.
Þetta er i fyrsta skipti sem slik
æfing er haldin, en þátttakendur
verða úr flestum björgunarsveit-
um sunnan-og vestanlands. Búizt
er við 200—300 þátttakendum á
æfinguna, en fyrirkomulag henn-
ar verður þannig, að á laugardag
verður flutt erindi, haldnar æf-
ingar i ýmsum þáttum björg-
unarmála og verður þátttakend-
um þá skipt niður i starfshópa, en
á sunnudag verður sameiginleg
leitaræfing.
Leitaræfingunni verður stjórn-
að af sameiginlegri leitarstjórn
allra aðila.
Saltvik er að mörgu leyti heppi-
legur staður fyrir slika æfingu.
Húsakynni til fyrirlestra eru næg
og stutt er i Esju til æfingahalds.
Þess má geta, að talstöðvarvakt
verður allan timann, sem æfingin
stendur.
Sigurður og Magnús við eitt verkanna á sýningunni.
Tímamynd GE.
Tveir halda
málverkasýningu
Þó-Reykjavik
Tveir ungir myndlistarmenn,
Sigurður örlygsson og Magnús
Kjartansson opna málverkasýn-
ingu I kjallara Norræna Hússins i
dag.
Á sýningunni eru 61 verk,
22 eftir Sigurð og 39 eftir
Magnús.
Þeir félagar leggja báðir stund
á myndlistarnám. Sigurður hefur
verið i Myndlistaskólanum og i
fyrra var hann við Listaakademi-
una i Kaupmannahöfn og ætlar
hann sér á.sömu slóðir I vetur.
Sigurður hefur haldið eina sjálf-
stæða sýningu áður.
Magnús hefur verið við nám i
Myndlistaskólanum i 3 vetur, og
árið 1969 vann hann við grafik.
Komandi vetri ætlar hann að
verja til náms við Listaakademi-
una I Kaupmannahöfn.
Sýning þeirra félaga er opin al-
menningi i dag frá 4-10 og frá og
með morgundeginum fram til 24.
sept. verður sýningin opin frá 2-
10.
Fyrir nokkru efndi Ferðaskrif-
stofan Úrval til getraunar. Heitið
var að verðlauna þann, sem sendi
rétta lausn á stafaþraut.
Mikil þátttaka var i getrauninni,
þvi yfir 3.000 lausnir bárust, þar á
meðal ein frá Moskvu.
Dregið var um verðlaunin, 22ja
daga úrvalsferð til Magaluf-
strandarinnar á Mallorca, ásamt
dvöl i Apoloibúð, 7. september, að
viðstöddum fulltrúa frá Borgar-
fógetaembættinu.
Verðlaunin hlaut Kristin Eyjólfs-
dóttir, Sæviðarsundi 29, Reykja-
vik.
í Lœkjarbotnum
A sunnudaginn efnir Lions-
klúbbur Kópavogs til kaffisölu i
sumardvalarheimilinu i Lækjar-
botnum, en þá er réttað i Lög-
bergsrétt. Agóði af kaffisölunni
rennur i minningarsjóð Brynjúlfs
Dagssonar læknis, en sjóðurinn
styrkir þau börn, er þess þurfa
með. til dvalar i sumardvalar-
heimilinu, sem Lionsklúbburinn
beitti sér fyrir að yrði byggt og
kostaði aö verulegu leyti. Munu
Lionsfélagar ganga um beina, en
kaffisalan hefst klukkan 14.
Fyrir skömmu keypti Lions-
klúbbur Kópavogs búninga fyrir
skólahljómsveit Kópavogs, sem
getið hefur sér ágætan orðstir
undir stjórn Björns Guðjónsson
ar, og verða búningarnir afhentir
uppi i Lækjarbotnum á sunnu-
daginn.
Hljósveitin leikur uppfrá undir
stjórn Björns klukkan 15—17.
Selja merki
Framhald
af bls. 1.
styddu Islendinga eindregiö i
landhelgismálinu, og sést það
bezt á þvi, að siöan byrjað var að
selja 50 milna merkin og það fór
að bera á þeim á götum borgar-
innar þá hefur eftirspurnin aukizt
dag frá degi. „Þetta er eins og
snjóbolti, sem hleður utan á sig,”
sagði Kristján.
Siðustu daga hefur mikill fjöldi
póstkorta frá stuöningsmönnum
Islands i landhelgismálinu borizt
til Timans frá Noregi. 1 gær komu
t.d. 165 kort, og á þau höfðu tæp-
lega 600 manns skrifað nafnið sitt.
Póstur og sími
Framhald
af bls. 16.
starfaði 826 I Reykjavik en 817
utan Reykjavikur.
Veikindadagar hjá þvi
starfsfólki, sem fullkomin
fjarveruskráning er til yfir,
voru á árinu 15.032 dagar, þar
af 7973 hjá konum og 7059 hjá
körlum. Veikindadagar á
hvern ársmann voru árið 1970,
13,0 en árið áður 13,9,
og skiptust veikinda
dagar eftir aldri starfsfólks
þannig, að þeir sem voru á
aldrinum 51 til 60ára voru oft-
ast frá, siðan 41 til 50 ára og
þar næst 61 til 70 ára. Minnst
veikindi voru hjá þeim, sem
voru undir 20 ára.
Alls fengu konur fri vegna
barnsburðar i 2331 dag á
árinu, en samtals voru fjar-
verudagar kvenna, þar með-
talið orlof og fleira 20.492 en
hjá körlum voru þeir 20.052.
Strætisvagnsferð verður frá Fé-
lagsheimili Kópavogs uppeftir
klukkan 15 og heim aftur klukkan
17.
Lionsfélagar vona að sem
flestir komi og slái þrjár flugur i
einu höggi: Að drekka gott kaffi
með gómsætum heimabökuðum
kökum, hlusta á hina ágætu
hljómsveit og siðast en ekki sizt
að styrkja gott málefni.
Landhelgissjóður:
Framlög
frádráttarbær
A föstudaginn gaf fjármála-
ráðuneytið út reglugerð, sem
tryggir, að gjafir til Landhelgis-
sjóðs munu verða frádráttarbær-
ar frá tekjum við álagningu
tekjuskatts á tekjur ársins 1972.
Félag járniðnaðarmanna
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið, að allsherjarat-
kvæðagreiðsla skuli viðhöfð um kjör full-
trúa Félags járniðnaðarmanna til 32.
þings Alþýðusambands Islands.
Tillögum um sex aðalfulltrúa og sex varafulltrúa ásamt
meömælum a.m.k. 72 fullgildra félagsmanna skal skilað
til kjörstjórnar félagsins i skrifofu þess að Skólavöröustig
16, fyrir kl. 18,00 þriðjudaginn 19. þ.m.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
Tónlistarskóli Kópavogs
Skólinn verður settur i dag kl. 2. Nemendur eru vinsam-
lega beðnir að hafa stundarskrá meðferðis. Óskað er eftir
þvi að nemendur. sem eingöngu stunda nám við forskóla-
deild mæti ekki.en haft verður samband við þá siðar.
Skólastjóri.
Landhelgisgæzlan
vill ráða vélstjóra með full réttindi nú
þegar.
Upplýsingar sendist afgreiðslu Timans fyrir 21. sept.
merkt: Landhelgisgæzlan 1357.