Tíminn - 07.11.1972, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 7. nóvember 1972
TÍMINN
7
Framlög til
hjálparstarfs
íSúdan
Yfirmaður Flóttamannahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna,
Sadruddin Aga Khan prins skýrði
frá þvi fyrir skömmu, að rikis-
stjórnir og ýmis samtök hefðu nú
lagt af mörkum 900 milljónir
króna til hjálparstarfsins i Súdan,
þar sem loftbrú hefur verið
mynduð til að flytja matvæli til
bágstaddra flóttamanna i suður-
hluta landsins. Hann skýrði enn-
fremur frá þvi að enn skorti mikið
á að fjárþörfinni væri fullnægt, —
það vantaði að minnsta kosti 2200
milljónir króna.
Rikisstjórnir Norðurlandanna
hafa lagt fram allmikið fé til
hjálparstarfsins. Frá Danmörku
hafa komið um 30milljónir króna,
frá Sviþjóð rúmlega 50 milljónir,
frá Noregi 9 milljónir og frá Finn-
☆
landi um 24 milljónir. Þar að auki
hefur norska Flóttamannaráðið
lagt fram 18 milljónir króna og
Spænski Rauði krossinn 6,8 millj-
ónir króna.
Þá hefur danska leiguflug-
félagið Sterling Airways lánað
þrjár flugvélar af gerðinni DC6B
til hjálparstarfsins i 10 mánuði.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna þarf aðeins að greiða
laun flugmanna og rekstrar-
kostnað, en ekki leigu fyrir flug-
vélarnar.
Talsverðum hluta matvælanna,
sem flutt eru til Suður-Súdan er
varpað niður i fallhlifum, þar sem
ekki eru flugvellir fyrir hendi.
Hjálparsamtök hafa nýlega af-
hent Flóttamannahjálpinni tvö
þúsund fallhlifar til notkunar i
þessu skyni.
Talið er að um 500 þúsund
manns hafi misst heimili sin i
borgarastriðinu i Súdan sem
staðið hefur i 17 ár, og ennfremur
☆
að 180 þúsund Súdanir séu nú
flóttamenn i grannlöndunum. 1
ágúst og september er búizt við
að margt af þessu fólki snúi heim
að nýju og geta þá skapazt mikil
vandamál, sem leysa verður, ef
friður á að haldast i landinu.
☆
Reglur um notkun
endurvarpshnatta
Utanrikisráðherra Sovétrikj-
anna, Andrei Gromyko, hefur
farið fram á, að á næsta alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
verði settar reglur um notkun
endurvarpshnatta til beinna sjón-
varpssendinga.
Ráðherrann tók fram, að i þess-
um reglum yrði meðal annars að
felast, að ekki yrði hægt að sjón-
varpa til annarra landa um
endurvarpshnetti nema með
þeirra samþykki.
☆
Samvaxnir
tviburar.
Þessir samvöxnu tviburar
fæddust 28. október s.l. á
sjúkrahúsi á Formósu.
Tviburarnir eru nú á sérstakri
barnadeild i Háskólasjúkra-
húsinu. Brjóstkassar þeirra eru
☆
I.ærir að stjórna
heimsveldi
Prinsinn af Wales þarf margt að
læra áður en hann sezt i hásætið.
Meðal annars þarf hann að
kunna góð skil á hinum ýmsu
greinum hernaðarlistar og
hefur hann til dæmis fengið all-
samvaxnir, en börnin eru bæði
við góða heilsu eftir atvikum.
Læknar munu athuga gaum-
gæfilega.hvort hægt verður að
skera börnin sundur. Fer það
eftirþvi hvort báðir tviburarnir
hafa fullkomin hjörtu og lungu
og að hvað miklu leyti liffæri
þeirra eru samvaxin.
☆
góða þjálfun i að stjórna orustu-
þotum.
Nýverið var hann á ferð i
Vestur-Berlin og heimsótti þá
bækistöðvar brezka hersins þar.
Var prinsinn þar i þrjá daga að
heræfingum i námunda við Ber-
linarmúrinn og lærði þar með
meiru, að skjóta af eldflaugna-
byssu, sem ætluð er til að
granda skriðdrekum.