Tíminn - 18.11.1972, Page 1

Tíminn - 18.11.1972, Page 1
IGNIS KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 kæli- skápar 22/Lcúíio/u^é/o/t A / RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 ■■ Norsku múrararnir, sem séra Hope sendi liingað, við vinnu undir turni Hallgrimskirkju. Timamynd: GE Norðmenn flísaleggja gólf kapellu i Hallgrímskirkju Nýjar stórgjafir norsks prests til íslenzkra málefna Núum vikuskeið hafa norskir múrarar unnið við flisalagningu góifs i fyrirhugaðri kapellu i syðra útskoti Hallgrimskirkju- turns. Verða messugerðir i kirkjunni fluttar þangað, þegar gengið hefur verið frá kapeilunni, en fram að þessu hefur verið messað i kórnum, svo sem kunnugt er. Þessir Norðmenn eru komnir hingað til lands fyrir atbeina manns, sem fyrir löngu er orðinn Islendingum að góðu kunnur. Norski presturinn séra Hope hefur safnað tveim milljónum króna i byggingar- sjóð Hallgrimskirkju og sent hingað, ásamt miklu af byggingarefni. Þar með eru gólfflisarnar, sem notaðar eru, gerðar úr norsku bergi. Áður hefur séra Hope hvað eftir annað unnið islenzkum málefnum ómetanlegt gagn, og má þar nefna framgöngu hans i þágu skógræktar, dómkirkj- unnar i Skálhtlti og lýð- háskólans þar. Hallgrims- kirkjan á Skólavörðuhæð er þvi fjórða stórmálefnið, sem hann tekur upp á sina arma hérlendis af þeim skörungsskap og dugnaði, sem honum er lagið. Þess má einnig geta, að nú er verið að taka vinnupalla utan af turninum og kemur meira og meira af honum i ljós með degi hverjum. —JH „Sárt að sjá heyið og húsin fara svona ff Þorgeir bóndi í Gufunesi missti nær allt sitt fiey, um 2500 hesta, i brunanum i fyrrakvöld Klp—Reykjavik. ,,Það er sárt, góði minn, að horfa á eftir öllu þessu heyi fara svona og geta ekkert gert", sagði Þorgeir Jónsson, bóndi i Gufunesi, er við litum þar við i gærdag til að skoða verksum- merki eftir brunann mikla, sem varð þar i fyrrakvöld, og sagt var frá i blaðinu i gær. Þorgeir stóð þá úti á hlaði og horfði á stóran krana láta klóna siga niður i heyið, sem enn logaði glatt i, og koma með það upp, þar sem slökkviliðsmenn dældu vatni á það. Þegar það var orðið gegn- blautt.var það látið á stóra vöru- bila, sem óku með það á sorp- haugana. Aðeins útveggirnir stóðu eftir af hlöðunni, en hest- húsið, sem einnig var fullt af heyi, var brunnið til ösku. Þegar okkur bar að garði voru þar slökkviliðsmenn enn að störfum , og auk þess voru þar stórvirk vinnutæki við að fjarlægja heyið. Þrátt fyrir að liðinn væri nær sólarhringur frá þvi,að eldurinn kom upp, logaði enn i heyinu og reykjarmökkur hvildi yfir öllu. 1 þessum bruna missti Þorgeir um 2500 hesta af heyi auk hesthússins og hlöð- unnar, sem varla verður notuð aftur. Upp úr reykjarbólstrunum stóð súrheysturninn, en þar inni var einnig hey, sem eldurinn náði ekki að læsa sig i. „Sem betur fór var engin skepan i húsunum”, sagði Þorgeir. Allir hestarnir voru úti og það var bót i máli. Annars er ekki gott að segja hvað maður gerir úr þessu, þetta er óskapleg ógæfa, sem dynur allt i einu yfir mann, og ég hef ekki gefið mér tima til að hugsa um næsta skref, en það er sárt, góði minn, að horfa á heyið og húsin fara svona". Tóftirnar gapa, svartar af reyk og sóti, og hálfbrunnið heyið liggur i dyngjum á við og dreif. Vindsvalur — ó, Vindsvalur! Hvenær leggurðu í loftin blá ? Stp—Iieykjavik — Það er útséð um, að ekki verður tappað á hann Vindsval okkar fyrr cn eftir helgi, sagði Agúst Gunnarsson loftbelgs- maður i viðtali við blaðið i gær- kvöldi. — Eins og kunnugt er, ætlar Aburðarverksmiðjan i Gufunesi að láta okkur i té gasið á belginn, og verður þvi tappað á kúta þar i verksmiðjunni og þeir siðan fluttir á bilum upp á Sandskeið. Nú hafa þeir tjáð okkur, að ekki verði unniö að átöppuninni i næturvinnu, en stöðva verður verksmiðjuna meðan á henni stendur. t dag fluttum við 36 kúta upp i verksmiðju og tekur 8 klukkutima að fylla þá. Við höfum ekki fleiri kúta sem stendur, en munum reyna að fá þá annars staðar. En þessa 36 fengum við hjá Rafveitu Reykja- vikur. Við höfðum ráðgert að flytja belginn, hjólhýsið og allan búnað út á Sandskeiö á sunnu daginn og hafa allt klárt til að geta farið að setja gasið á belg- inn, þegar Holberg kæmi frá New York á sunnudagskvöld með loft- ventilinn á topp belgsins. Holberg Másson fór vestur klukkan 8 i gærkvöldi til að ná i ventilinn. Hann var áður búinn að smiða tvöfaldan ventil, sem nota átti, en seinna sáu þeir félagar fram á, að nauðsyn væri á fullkomnari og öruggari ventli, einkum vegna mikils kulda, sem gera má ráð fyrir i væntanlegri flughæð. Þá má og segja, að ventill þessi sé aðal — og raunar eina stjórntæki loftbelgsins ásamt með ballestinni, svo það er ekki litils um vert að hafa hann sem beztan. Nafnið Vindsvalurer úr hinni fornu goöafræði og var heitið á föður vindanna. Var það Jón Böðvarsson, menntaskóla- kennari, sem kom með tillöguna að þessu nafni. Landhelgis- viðræður 27. og 28. t fréttatilkynningu frá utan- rikisráðuneytinu i gær segir, að landhelgisviðræður við Breta fari fram i Reykjavik dagana 27. og 28. nóvember n.k. Af hálfu tslands taka þátt i viðræðunum Einar Ágústs- son utanrikisráðherra, Lúðvik Jósefsson sjávarútvegsráð- herra og Magnús Torfi ólafs- son menntamálaráðherra. Af hálfu Breta þau lafði Tweedsmuir og Stoddard aðstoðarfiskimálaráðherra, ásamt ýmsum embættis- mönnum. Þeir voru enn að draga logandi heyið upp úr brunatóftunum i Gufunesi um miðjan dag i gær. — Tmyndir: GE.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.