Tíminn - 18.01.1973, Page 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur 18. janúar 1973
Breiðholtsbúar í viðtölum við Tímann:
Við verðum
löggæzlu
að fá fasta
í hverfin
borgarfulltrúar
málið upp
Framsóknarflokksins taka
í borgarstjórn í dag
Varla líður nú orðið sá dagur,
að ekki berist fréttir um afbrot i
Breiðholtinu, allt frá smáhnupli
unglinga til stórglæpa. öllum
munu i fersku minni tvær morð-
árásir i hverfinu. Um ástæðuna er
ekki gott að fullyrða, en áreiðan-
lega á það einhvern hlut að,
hversu hverfið er dimmt og hve
lögreglan er þar langt i burtu. Að
visu kemur lögreglan úr Ár-
bæjarhverfi i eftirlitsferðir i
Breiðholtið, og nú nýverið hefur
verið ákveðið, að þar verði föst
lögregluvakt á kvöldin og um
helgar. En er það nægilegt?
f dag taka borgarfulltrúar
Framsóknarflokksins málið upp i
borgarstjórn og bera fram eftir-
farandi tillögu: „Borgarstjórn
beinir þeim eindregnu tilmælum
til lögreglustjóra, að löggæzla i
Breiðholtshverfum verði aukin
þegar i stað og komið upp sem
fyrst löggæzlumiðstöð i þessum
hverfum með svipuðu sniði og nú
er i Árbæjarhverfi”.
Blaðamaður og ljósmyndari
Timans lögðu leið sina i Breið-
holtshverfin i gær og hittu þar að
máli nokkra ibúa. Fara ummæli
þeirra hér á eftir;
Thora llanna Jóhannesson,
húsmóðir: — Þetta er alveg voða-
legt ástand i hverfi, sem er svona
stórt og dreift. Við þurfum að fá
hér löggæzlu sem allra fyrst. Ég
hef sérstaklega börnin i huga.
Maður er beinlinis hræddur við að
láta þau fara i skólann. Ég á
fimm börn og veit, hvað þetta er.
Ef við fáum ekki fasta löggæzlu,
finnst mér, að karlmennirnir i
hverfinu verði bara að vera á
vöktum til skiptis, eða þá skátar.
Við höfum verið að ræða um
þetta, en eitthvað verður að gera
og það sem fyrst.
Jón Ouðlaugsson: — Þetta er
alveg ófært svona. Að visu eru
hverfin ekki alveg eftirlitslaus, en
þetta er ekki nægilegt eins og það
er. Það verður að vera hér fast
eítirlit, og það verður ekki, nema
lögreglan fái aðsetur hér. Að visu
bý ég ekki hér i hverfinu, en
vandamálið ætti að vera öllum
ljóst.
Sveinborg Jónsdóttir: — Við
þurfum endilega að fá hér fasta
stöð, ekki endilega sina i hvort
hveríið. Að visu kemur lögreglan
hérog ekur hér um hverfin á dag-
inn, en það nægir alls ekki. Maður
er alltaf hræddur um börnin á
leiðinni i skólann og leikskólann.
Jörð óskast
Jörð óskast á fallegum stað, má vera
u.þ.b. 600 km frá Reykjavik.
Veiðihlunnindi i ám eða vötnum æskileg.
Upplýsingar óskast sendar Árna Hjörleifssyni, Laufvangi
1, Hafnarfirði, eða i sima 5-24-53.
Sigurður Pétursson: — Við
verðum ^ð fá lögreglustöð i
hverfið, þetta getur ekki gengið
svona lengur. Nei, ég hef ekki
þurft á lögreglu að halda, en það
er aldrei að vita....
Birna Bessadóttir: — Mér finnst
ekki nama sjálfsagður hlutur,
að hér sé lögreglustöð. Það er
varla nægjanlegt að hafa hér að-
eins lauslegt eftirlit öðru hverju.
Þetta er orðið svo mannmargt
hverfi og sérstaklega barnmargt.
Það er ekki laust við, að maður sé
svolitið uggandi um börnin. Nei,
ég hef aldrei þurft á lögreglu að
halda, en það væri öryggi i að vita
af henni nálægt sér.
Jón Bjarni Þórðarson,
verzlunarstjóri i Breiðholtskjöri:
— Það er ágætt að koma þessu inn
i borgarstjórnina, og þó fyrr hefði
verið. Ég hef sjálfur gert tilraunir
til að tala við ráðamenn, en
kannske ráða þeir ekki öllu, og
kannski vantar peninga. En mér
finnst, að það megi skipta lög-
regluliðinu jafnar niður. Hér i
Breiðholtinu býr fimmti hluti
Reykvikinga, en hefur enga lög-
reglu. Jú, ég hef þurft á lögreglu
að halda. Hér var sifellt verið að
brjóta rúður og brjótast inn. Nú
er ég búinn að fá mér fullkomið
þjófakerfi, sem hefur þegar
bjargað mér frá tveimur innbrot-
um.
En það eru ekki bara glæpir,
sem heyra undir lögregluna. Fyr-
ir getur komið, aðeinhver læsi sig
úti, barn týnist eða eitthvað smá-
vegis. Það liði öllum hérna miklu
betur, ef þeir vissu af þessu
öryggi hér i hverfinu.
Björg og Guðrún, 13 og 14 ára:
— Já, við viljum fá lögreglu hing-
að, það er oft svo dimmt á kvöldin
hérna og við erum hræddar. Það
væri miklu betra, að vita af lög-
reglunni i hverfinu. Stundum er-
um við bara heima, þegar mjög
dimmt er, og þorum ekki út. Nei,
við förum ekki niður i bæ, erum
bara hérna i hverfinu að leika
okkur.
Elis Helgason, verzlunarstjóri i
Kron við Norðurfell: — Ég hef nú
ekki þurft á lögreglunni að halda,
en ég er sannfærður um, að hér
þarf lögreglustöð. Annars lætur
Árbæjarlögreglan okkur svo sem
ekki afskiptalaus. Þeir hringja
hingað og komu til min til að at-
huga verzlunina með tilliti til inn-
brota. En það er fleira en stór-
glæpir, sem lögregla þyrfti að
skipta sér af hérna. Ég hef tekið
sérstaklega eftir þvi, að litil börn
eru hér úti langt fram á kvöld. Við
höfum opið til tiu á föstudags-
kvöldum, og það eru sjö og átta
ára börn að koma og verzla allan
þann tima.
Guðmundur Sigurðsson: — Jú,
það þarf svo sannarlega fasta
lögreglustöð hérna, en ég má ekki
vera að þvi að segja meira. Þarf
að ná i strætó....
Þorvaldur Halldórsson : — Nei,
ég bý ekki i hverfinu, en ág fer að
flytja hingað, og ég vildi helzt, að
hér yrði þá komin lögreglustöð.
Það er alveg greinilegt, að hana
vantar. — Svo var Þorvaldur rok-
inn, áður en timi gæfist til að
smella mynd af honum. En i stað-
inn fyrir myndina, má upplýsa,
að hér var á ferðinni hinn lands-
frægi söngvari frá Akureyri.
SB.