Tíminn - 18.01.1973, Page 9

Tíminn - 18.01.1973, Page 9
Fimmtudagur 18. janúar 1973 TÍMINN 9 iwé Otgefandi: Framsóknarflokkurínn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór-i; arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson,: Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Timans).;: Auglýsingastjóri: Steingrimur Oislasoni, • Ritstjórnarskrif-: stofur í Edduhúsinu við Lindargötu, sfmar 18300-1.8306Í; Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiðsiusími 12323 — aúgiýs-:; ingasimi 19523. Aðrar skrifstofurtsimi 18300. Askriftargjaldl; 225 krónur á mánuði innan lands, í lausasölu 15 krónur ein-l; takið. Blaðaprent h.f. Þriðja stefnan Ungir Sjálfstæðismenn i Reykjavik hafa boðað til ráðstefnu, þar sem á að ræða um sósíalismann og sjálfstæðisstefnuna, sem heitir öðru nafni frjálshyggja á máli Sjálf- stæðismanna. Með þvi að tefla saman þessum tveimur stefnum, virðist vera reynt að láta lita þannig út, að hér sé um að ræða þær tvær höfuðstefnur, sem nú beri mest á, bæði hér- lendis og yfirleitt i heiminum. Þegar rætt er um sósialisma eins og hann hefur reynzt i framkvæmd, er allajafnan átt við stjórnarhættina i Austur-Evrópu. í stytztu máli má segja, að höfuðeinkenni þeirra stjórnarhátta sé skipulag án frelsis. Þar er reynt að skipuleggja alla hluti sem mest ofan frá, en afleiðing þess verður, að pólitiskt frelsi og raunar annað valfrelsi einstaklinganna verður litið eða ekkert. Þótt ýmislegt geti unnizt á með slikri ofurskipulagningu, hafa jafnhliða komið i Ijós svo margir og miklir annmarkar, að slikir stjórnarhættir geta ekki þótt eftirsóknarverðir. Þegar rætt er um frjálshyggjuna, eða sjálf- stæðisstefnuna öðru nafni, er fyrst og fremst haft i huga það stjórnarfar, sem er rikjandi i Bandarikjunum. Segja má, að höfuðeinkenni þess sé frelsi án skipulags. Einstaklingnum er þá gefinn sem frjálsastur taumurinn,og öll opinber afskipti höfð sem allra minnst. Afleiðingar þess verða þær, að auður og völd dragast mjög á fáar hendur,- annars vegar blasir við mikill stórgróði tiltölulega fámennrar auðstéttar, en hins vegar örbirgð mikils fjölda, m.a. fjölmenns kynþáttar. Hin harða og óvægna samkeppni leiðir til margvis- legra glæpa. Óneitanlega leiðir þetta sam- keppnisfyrirkomulag til mikilla verklegra og tæknilegra framfara, en ókostirnir, sem fylgja þvi, eru lika stórkostlegir. Það verður þvi ekki sagt, að þessi tvö stjórn- arform, eða annars vegar skipulag án frelsis og hins vegar frelsi án skipulags, hafi gefizt vel. Þess vegna hefur komið til sögu þriðja stefnan, sem hefur mótað stjórnarfarið á Norðurlöndum og hjá fleiri vestrænum þjóðum og borin hefur verið uppi af hófsömum jafnaðarmönnum og umbótasinnuðum mið- flokkum. Einkenni þessarar stefnu er frelsi með skipulagi. Markmið þessarar stefnu er að veita einstaklingnum sem raunhæfast frelsi, án þó þess að verða öðrum að tjóni, og beita til þess hóflegu skipulagi, tryggingum og öðrum aðgerðum til að búa jafnt hinum veikbyggðu sem hinum sterka mannsæmandi lifskjör. Óneitanlega hefur þessi stefna náð beztum árangri og sést það gleggst, þegar borið er saman ástandið á Norðurlöndum annars vegar og i Sovétrikjunum og Bandarikjunum hins vegar. Óneitanlega hefur Sjálfstæðisflokkurinn tekið nokkurt tillit til þessarar stefnu, þegar hann hefur þurft að vinna með öðrum flokkum, eins og Framsóknarflokknum og Alþýðu- flokknum. Siðan flokkurinn lenti i stjórnarand- stöðu, hefur hann hins vegar færzt til hægri og virðist nú ekki aðra fyrirmynd sjá en hina skefjalausu og óheftu samkeppni. Til að rétt- læta þessa öfugþróun, reynir hann að gera sem mest úr sósíalismagrýlunni. Umbótastefnu Norðurlandaþjóðanna þykist hann ekki sjá. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Metsölubók Esther Vilar um ófrelsi karlmanna Hún hefur ekki síður vakið deilur en athygli Esthcr Vilar SENNILEGA hefur engin kona vakið meiri athygli sem rithöfundur á siðastl. ári en Esther Vilar með bók sinni um leiksoppinn (The Manipulated Man). Bók þessi kom að visu út snemma árs 1971 i Vestur- Þýzkalandi, en vakti ekki telj- andi athygli fyrr en gerður hafði verið um hana sjón- varpsþáttur, sem var fluttur seint á árinu. Siðan hefur hún | selzt meira en nokkur önnur bók i Véstur-Þýzkalandi, en þar nemur salan orðið meira en hálfri milljón eintaka. Þá hefur bókin verið þýdd á 18 tungumál og verið er að þýða hana á mörg fleiri. Viða hefur bókin vakið miklar deilur og verið gerður aðsúgur að höfundinum, þegar hún hefur flutt fyrirlestra hjá stúdentum um efni bókarinnar.Oftast eru það kynsystur hennar, sem þar hafa verið að verki. i London hefur hún sætt mót- mælaaðgerðum á götum úti,og i Zurich hefur henni verið hót- að með sprengjutilræði. ASTÆÐAN til þess, að Leiksoppurinn hefur selzt jafn mikið og orðið eins umdeildur og raun er á, er fyrst og fremst sú, að þar er málstað karl- mannsins tekið mjög hressi- lega, en konunni borin jafnilla sagan. Bókin lýsir karlmann- inum allglæsilega. Hann er sterkur, snjall og gáfaður. Konan er hins vegar veiklund- uð, heimsk og löt. Samt er það hún, sem hefur náð undirtök- unum i sambúð þeirra og hef- ur raunar gert karlmanninn að þræli sinum. Hún hefur með ástarleikjum sinum náð yfirráðum yfir honum og selur bliðu sina dýru verði. Gifta konan er sizt betri i þeim efnum en hin ógifta. Hún lætur karlmanninn þræla baki brotnu fyrir heimili og börn- um og hefur oft sjálf hina náð- ugustu daga, þótt að sjálf- sögðu megi finna undan- tekningar i þessum efnum. Hjónabandið er miklu meiri hnapphelda fyrir manninn en konuna. Réttleysi mannsins megi m.a. ráða af þvi, að viða hafi konur rétt til fóstur- eyðinga, en karlmenn ekki. í raun réttri eigi karlmaðurinn einnig að hafa rétt til að láta eyða fóstri, ef það er afkvæmi hans, þvi að i mörgum tiifell- um vilji hann ekki eignast barn með viðkomandi konu eða að þurfa að ala önn fyrir þvi. Annars eru fóstureyðing- ar ekki leyfðar i Vestur- Þýzkalandi, og eini stjórn- málaflokkurinn, sem hefur lýst sig fylgjandi þeim, er Frjálslyndi flokkurinn. Esther Vilar mætti á þrjátiu kosningafundum i haust til að mæla með flokknum vegna þessarar afstöðu hans. I stuttu máli er það boð- skapurinn i Leiksoppnum, að karlmaðurinn eigi að rifa sig úr þeim fjötrum, sem konan hefur hneppt hann i og gerast frjáls vera. Þetta muni verða báðum kynjunum til hagsbóta, þvi að konur muni einnig græða á þvi, ef karlmaðurinn hættir að vera leiksoppur og getur til fulls notið frelsis sins. Þótt margar ályktanir, sem Vilar dregur i bók sinni, séu bæði óvenjulegar og hljóti að verða mjög umdeildar, færir hún oft skemmtilega rök að þeim og er yfirleitt ómyrk i máli. Þess vegna er bók hennar þægilegt lestrarefni.og óneitanlega vekur sitthvað i henni til umhugsunar um sambúð kynjanna, þótt annað verði að flokkast undir ýkjur og öfgar. Margir draga lika i efa, að liferni karlmannsins yrði neitt betra, þótt hann los- aði sig undan aðhaldi konunn- ar. ESTHER VILAR er 37 ára gömul. Faðir hennar var Gyðingur, sem flýði frá Þýzkalandi i stjórnartið nas- ista og tók sér bólfestu i Argentinu. Þar lagði hann stund á búskap. Kona hans var ekki Gyðingur og var mót- mælendatrúar. Þau skildu, þegar dóttir þeirra var ung, og ólst hún siðan upp hjá móður sinni. Hún reyndist mjög nám- fús og ötul við nám, enda hafði hún lokið læknisprófi, þegar hún var 25 ára. Þá lagði hún leið sina til framhaldsnáms i Vestur-Þýzkalandi, en ætlunin var að halda til Argentinu aftur. Af þvi varð þó ekki, þvi að i Þýzkalandi kynntist hún rithöfundi, sem gengur undir nafninu Wagn, og giftust þau skömmu siðar. Siðan hefur hún búið i Vestur-Þýzkalandi. Þau hjón skildu eftir nokkur ár, en hafa þó haldið áfram að búa saman og annast dóttur, sem þau eiga. Skilnaðurinn stafaði ekki af neinni ósætt, heldur eingöngu af þvi, að þau vildu bæði vera laus við bönd hjónabandsins, þótt þau héldu áfram að búa saman. Einkum vildi Vilar vera sjálfri sér samkvæm og losa mann sinn við það ófrelsi, sem hún telur felast i hjónabandinu. Geta má þess, að nafnið Vilar er ekki ættarnafn hennar, heldur er það nafnið á götu þeirri þar sem hún átti heima á uppvaxt- arárum sinum i Buenos Aires. FYRIR nokkrum árum kynntust þau hjón eða hjóna- leysi efnuðum Bandarikja- manni, sem siðar settist að i Genf. Hann veitti þeim hjálp til að stofna útgáfufyrirtæki og hafa þau unnið við það siöan. Útgáfufyrirtæki þetta gefur ekki út aðrar bækur en þær, sem útgefendurnir skrifa sjálfir. Aður en Vilar gaf út Leiksoppinn, hafði hún skrifað og gefið út þrjár bækur. Hin fyrsta var skáldsaga, en hinar tvær voru ritgerðarsöfn. Allar fjalla þær meira og minna um sama efni og Leiksoppurinn, eða ófrelsi karlmannsins. Mesta vinnu lagöi hún i það að semja Leiksoppinn. Meðal annars dvaldist hún um skeið I New York og safnaði sér þar efni i bókina. Fjárhagurinn mun oftast hafa verið þröng- ur, eða þangaö til Leiksoppur- inn fór að seljast. En nú þarf Vilar engu að kviða i þeim efn- um lengur. Hún hefur nýlega keypt sér góöan sumarbústað skammt frá Mlinchen, en þar hafa þau Wagn heimili sitt. Yfirleitt segist hún annast sjálf matreiðsluna, þvi að til þess sé hún betur fallin, og sama gildir um flest hússtörf. Hins vegar skipta þau á milli sin að gæta dótturinnar og raunar mun það lenda öllu meira á Wagn en henni. Þeim sem sjá Vilar i svip, mun vart þykja liklegt, að þar sé á ferðinni slik frelsishetja og bækur hennar bera vott um. Hún er litil vexti og grönn og virðist mjög hlédræg. t framkomu er hún sérlega hæversk og röddin er veik, en þó þægileg. Þegar hún stigur i ræðustól kemur hún hins veg ar vel fyrir sig orði, en bezt nýtur hún sin, þegar hún tekur sér penna i hönd og skrifar i einrúmi. Þá verður hún óum- deilanlega kvenskörungur, sem lætur taka eftir sér og hirðir ekki neitt um, þótt hún fái kynsystur sinar á móti sér. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.