Tíminn - 23.02.1973, Blaðsíða 1
ÍWOTELLOFTlflÐWl
VEITINGABOD
„Hótel Loftleiðir" er nýjung I hótel-
rekstri hérlendis, sem hefur náð skjót-
um vinsældum. Góðar veitingar, lipur
þjónusta, lágt verð — og opið fyrir allar
aldir!
BÝÐUR NOKKUR BETURi
-
ENN EITT FRÆKILEGT AFREK BJÖRGUNARSVEITARINNAR ÞORBJARNAR:
Tólf mönnum bjargað á
land, sumum hálfnöktum
þvi að fötin
drógust af þeim í sjóróti á grynningum
BJÖRGUNARSVEITIN
Þorbjörn i Grindavík
bjargaði 12 manna áhöfn
loðnuveiðiskipsins Gjafars
VE-300, en báturinn
strandaði á vestanverðu
Hópsnesi, skammt frá
Grindavík, aðfaranótt
fimmtudagsins. Björg-
unaraðstæður voru erfiðar,
vestanrok og mikið brim.
Varð að draga mennina
yfir og gegnum brim-
skaflana og voru þeir að
vonum kaldir og hraktir,
þegar þeir komust á land,
en allir ómeiddir að kalla.
Gat kom á botn skipsins og
fylltist það af sjó. Flestir
mennirnir á Gjafari eru
frá Vestmannaeyjum.
Tómas Þorvaldsson, formaöur
björgunarsveitarinnar i Grinda-
vik, sagöi Timanum, aö hann
hefði veriö itringdur uppkl. 3um
nóttina og tilkynnt, aö bátur væri
strandaður i innsiglingunni. 20
menn i björgunarsveitinni voru
ræstir út og voru þeir komnir á
staöinn með tæki sin um hálftima
siðar.
Strandstaöurinn var slæmur,
grynningar fyrir miöri vikinni.
Skipið var um 100 metra frá
fjöruborðinu og strandaöi á fjöru,
en aðfallandi á björgunarmenn,
og báturinn sat kyrr. Valt hann
talsvert i briminu en færöist ekki
úr stað. Var greinilegt, að mikil
göt voru komin á botninn, og ólian
lak út i sjóinn.
Fljótlega tókst aö koma
björgunartaug um borö og eftir
þaö gekk sæmilega aö koma
mönnum á land. Talsvert brim
var og á gekk meö dimmum élj-
um. Veöurhæðin var um 7 vind-
stig og meiri i éljunum. Þaö tók
um klukkustima aö draga alla
mennina tólf i land. Draga þurfti
mennina i sjó yfir sker og
grynningar. Sjórinn tætti skó-
fatnað, sokka og buxur af mörg-
um skipbrotsmannanna, þegar
þeir voru dregnir gegnum brim-
skaflanna yfir grynningarnar, en
slys uröu ekki nema skrámur og
marblettir á sumum þeirra. Þá
var talsverð olia i sjónum, sem
draga varö mennina gegnum.
Vegna aöfallsins urðu björgunar-
mennirnir aö færa sig ofar i
fjöruna og varö að draga þá
siöustu hátt á annað hundraö
metra frá skipinu á þurrt. Þegar
á land var komið, voru mennirnir
drifnir i veröbúöir Þorbjörns h.f.
Framhald á bls. 19
ÖLL VON
SKIPULAGÐRI leit aö
björgunarbátnum af Sjöstjöm-
unni er nú hætt, og öll von úti um
að nokkur af áhöfninni hafi
komizt lifs af. TIu manns fórust.
Þau eru Engilbert Kolbeins-
Þarna liggur Vestmannaeyjabáturinn Gjafar, er komst á hvers manns varir, er hann flutti yfir fjögur hundruö manns til Þorlákshafnar fyrstu
gosnóttina. Myndin var tekin á fjörunni I gær. —Ljósmynd: ólafurRúnar.
Ríkið dæmt skaðabótaskylt
vegna vanheilinda barns
Fóstureyðing fórst fyrir vegna þess
reyndist ekki nógu fljótvirkt
I GÆR var kveðinn upp í
bæjarþingi Reykjavíkur
dómur í óvenjuíegu máli.
Kona hafði krafizt fébóta
af ríkinu, þar eð farizt
hafði fyrir fóstureyðing,
sem henni hafði verið
heimiluð, en barnið, sem
son, skipstjóri, Holtsgötu 35,
Ytri-Njarðvik, fæddur 1938, og
eiginkona hans, Gréta
Þórarinsdóttir, matsveinn,
fædd 1945. Þau láta eftir sig árs-
gamaltbarn. Engilbert átti þrjú
hún ól, reyndist vanheilt.
Féll dómur á þann veg, að
ríkinu væri skylt að greiða
foreldrum barnsins fébæt-
ur, en ekki barninu sjálfu.
Hins vegar var fjárhæðin
ekki ákvörðuð á þessu stigi.
Málavextir voru þeir, aö konan
börn frá fyrra hjónabandi. Þór
Kjartansson, stýrimaður, Alfa-
skeiði 86, Hafnarfiröi, fæddur
1946. Hann lætur eftir sig eigin-
konu og fimm ára gamalt barn
Framhald á 5. siðu.
að kerfið
fékk rauða hunda um meögöngu-
timann, og fékk hún lögmæta
heimild frá landlæknisembættinu
til þess aö láta framkvæma
fóstureyöingu vegna hættu á, aö
fóstriö kynni að hafa bebið tjón.
Þegar Jiún var tekin inn á fæb-
ingardeildina, töldu læknar á hinn
bóginn of langt liöiö á meögöngu-
timann til þess, að þeir vildu
framkvæma fóstureyöingu. Þeg-
ar barnið fæddist, reyndist þaö
vanheilt eins og áður segir, og var
málið höfðaö, er sýnt var orðið,
að það var bagað.
Auöur Þorbergsdóttir kvaö upp
dóminn, en meðdómendur voru
Halldór Þorbjörnsson sakadóm-
ari og Guðjón Guönason yfirlækn-
ir.
— Þaö var óvenjulegt efni, sem
þarna var dæmt um, sagöi Auður
Framhald á 5. siöu.
Loðna
flutt út
frá Egils-
stöðum
JK — Egilsstööum. Ein-
hverjum kann aö þykja
tiöindum sæta aðfyrst loönan
hefur verið flutt út héban frá
Egilsstöðum, er litiö hafa
komiö viö sögu sjávarút-
vegsins fram að þessu, enda
viðs fjarri sjó.
Svo er mál meö vexti, að
loöna var flutt hingaö til
frystingar frá Reyðarfirði,
og munu vera alls um
tuttugu lestir, sem búið að
frysta hér. Fyrsti loðnu-
farmurinn er farinn frá
Reyðarfiröi, og I honum var
fryst loðna, sem ekið var
aftur héöan til hafnar.
ÚTI, LEIT HÆTT