Tíminn - 23.02.1973, Blaðsíða 7
Föstudagur 23. febr. 1973.
TÍMINN
7
landsbyggðarinnar. Til að ráða
bót á þessu hefðu forráðamenn
Austfirðinga, Vestfirðinga og
Norðlendinga komið saman 'og
mótað sameiginlega afstöðu i
byggðamálunum. Stefnuskrá
þessara landshluta svipaði i
mörgum meginatriðum til stefnu-
skrár SUF. Lagði Bjarni rika
áherzlu á það, að þessir lands-
hlutar stæðu saman i pólitiskri
baráttu. Rakti hann siðan nokkur
meginatriði i ályktun Aust-
firðinga, Norðlendinga og
Vestfirðinga. Hann setti að lokum
fram nokkrar ábendingar um
endurbætur á byggðastefnu SUF.
Sigurður Óli Brynjólfs-
son, bæjarfulltrúi, taidi
virðingarvert, að byggðamálin
væru tekin fyrir á þann hátt, sem
SUF gerði, bæði með slikri
stefnumótun og með þvi að efna
til ráðstefnu um byggðamálin á
Akureyri. Varaði Sigurður þó við
þvi, að byggðamálin væru lögð
þannig fyrir, að suðvestursvæðið
ætti að færa fórnir i þágu lands-
byggðarinnar. Frekar ætti að
leggja áherzlu á að útskýra fyrir
ibúum höfuðborgarsvæðisins, hve
brýn nauðsyn það væri að byggja
upp landsbyggðina út frá þvi
sjónarmiði að skapa hag-
kvæmara þjóðfélag fyrir alla
heildina. Setja þyrfti fram itar-
legan rökstuðning fyrir þvi,
hvers vegna byggðastefnan væri
æskileg. Einkum ætti að draga
fram, hvers vegna til lengdar
væri hagkvæmara fyrir alla, lika
suðvestursvæðið, að lands-
byggðin blómgaðist. Minntist Sig-
urður að lokum á starf Gisla Guð-
mundssonar i þágu byggða-
málanna.
J ó n a s J ó n s s-o n ,
ráðherraritari, íýsti •
ánægju sinni með starf SUF að
byggðamálunum. Greindi hann
frá þvi, að ýmsum eldri fram-
sóknarmönnum hefði brugðið við,
þegar stjórn SUF tók byggða-
málin upp. Byggöamálin hefðu
verið rauöi þráðurinn i stjórn-
málastarfi Framsóknarflokksins.
Ræddi Jónas sérstaklega um
atvinnumálaþáttinn i byggða-
stefnu SUF, sem miðaðist við
nýtingu landsgæðanna i hinum
ýmsu landshlutum. Auk þess
væri mikilvægur hinn félagslegi
þáttur, sem miðaðist við að allir
landsmenn byggju við sama kost.
Sama mætti segja um stjórn-
sýsluþáttinn. Þessir þrir þættir
væru meginatriði byggðavand-
ans. Stuðningsmenn
stjórnarinnar hefðu haldið þvi
fram, að hún væri hlynntari
landsbyggðinni heldur en fyrri
stjórnir, og þeir yrðu að vona, að
það myndi reynast rétt. Greindi
Jónas siðan frá ýmsu, sem gert
hefði verið í þágu 'lands-
byggðarinnar, svo sem togara-
kaup, rafvæðingaáætlun, jöfnun á
námsaðstöðu. Að lokum lagði
Jónas áherzlu á þátt Samvinnu
hreyfingarinnar i uppbyggingu
landsbyggðarinnar og þvi lykil-
hlutverki sem hún hefði gegnt.
Auk þess væri varasamt að leggja
of rika áherzlu á menningarmis-
mun landsbyggðarinnar og suð
austursvæðisins vegna þess að
ýmsilegt i menningarstarfi lands-
byggðarinnar væri miklu verð-
mætara fólkinu sjálfu heldur en
sú fjöldamenning sem tiðkaðistá
Reykjavikursvæðinu. Mikilvægt
væri þó, að fjölmiðlarnir, útvarp
og sjónvarp ræktu vel hlutverk
sitt fyrir landsbyggðina.
Kolbeinn Sigurbjörns-
son, skrifstofustjóri,
sagði,að stefna SUF væri fyrsta
heillega úttektin á byggðavanda-
málunum. Þó vantaði i stefnuna
nokkra þætti eins og t.d. orku-
málin. Tilraun SUF miðaðist við
að koma hlutunum á hreyfingu.
Slikt væri nauðsynlegt, þar eð
þeir hefðu ekki hreyfzt nóg siðan
núverandi rikisstjórn komst til
valda. Kolbeinn minnti á að ýms
ar menningastofnanir þjóðar-
innar virtust eingöngu vera fyrir
ibúa Reykjavikursvæðisins. T.d
væri nær að kalla Þjóðleikhúsið
„Borgarleikhús Reykjavikur.
Pétur Gunnlaugsson,
múrari, þakkaði fyrir
það framtak SUF, að móta slika
byggðastefnu. Nauðsunlegt væri
að skýra fyrir fólki hvað byggða-
stefna væri i raun og veru og
hverjar séu helztu forsendur
hennar. I því sambandi væru raf-
orkumálin mjög mikilvægur
þáttur. Reynzla Norðlendinga
sýndi það, að raforkan væri
grundvallarþáttur. Ræddi Pétur
siðan um Laxármálið og þau mis-
tök sem hann taldi að hefðu átt
sér stað i þvi máli. Taldi hann að
gera yrði mönnum ljósa grein
fyrir þeirri ábyrgð sem væri
fólgin i ráðstöfun á helztu lands-
gæðum.
Svavar Ottesen, prent-
smiðjustióri, varaði við “
innbyrðis deilum milli lands-
hlutanna. Það myndi hleypa nýju
blóði i byggðamálin, ef lands-
hlutarnir gætu sameinað krafta
sina. Einnig undirstrikaði Svavar
mikilvægi samvinnuhreyfingar-
innar i þróun landsbyggðarinnar.
Hún heldi uppi atvinnulifi á fjöl
mörgum sviðum i tugum héraða
um allt land. Rökstuddi Svavar
siðan nauðsyn kjarnastefnunnar i
byggðamálunum. Efla ætti fáa
kjarna i upphafi og gera þeim
kleift að geta staðið á eigin fótum.
Við hefðum ekki bolmagn til að
efla marga kjarna i einu. Það
væru fyrst og fremst 5 atriði, sem
væru kjarnaatriðin i byggða-
málunum. Fjármagnið, hús-
næðismálin, skólamálin, sam-
göngumálin, og atvinnumálin,
væru þau svið, þar sem beina ætti
byggðamálunum fyrst og fremst
að.
Ingólfur Árnason,
bæjarfulltrúi
ræddi nokkuð þá spurningu, hvers
vegna menn vildu frekar vera bú-
settir í Reykjavík og hvers vegna
þeir vildu frekar fjárfesta þar.
Svörin við þessum spurningum
væru ábendingar um, hvað bæri
að gera i byggðamálunum.
Hækkun ibúðahúsalána út um
land kæmi ekki nema að tak-
mörkuðu gagni til styrktar
landsbyggðinni, vegna þess, að
endursölumöguleiki ibúða væri
ekki eins góður og á Reykjavikur-
svæðinu. Þess vegna myndu
menn úti á landi halda áfram að
fjárfesta i ibúðum á Reykjavikur-
svæðinu. Ræddi Ingólfur siðan
nokkuð um reynzluna af byggða-
aðgerðum i Noregi og varaði við
ýmsum af þeim aðgerðum, sem
þar hefði verið beitt. Byggða-
stefnan mætti ekki miðast við það
að viðhalda alls staðar byggð,
heldur efla hana þar sem skilyrði
væru lifvænlegust.
Áskell Einarsson, fram-
kvæmdastjóri
þakkaði SUF fyrir að hafa gefið
úr sérstakt byggðastefnublað og
efna til ráðstefna um byggða-
málin. Margt væri mjög vel til
fundið i byggöastefnu SUF.
Ræddi Askell siðan um ýmis
vandkvæði við að breyta áætlana-
gerði i byggðaþróun. Færi slik
áætlanagerð fyrst og fremst eftir
eðli forsendanna, sem gefnar
VOLKSWAGEN
ALLTAF
FJÖLGAR
KOMIÐ, SKOÐIÐ OG KYNNIZT
mest selda bílnum á íslandi
1200 — Ódýrasti og
hagkvæmasti VW í
rekstri.
1300 — Þessi þraut-
reyndi, sígildi, full-
komni f jölskyldubíll
1303 — Þessi endur-
bætta gerð með fjöl-
mörgum nýjungum.
Hinar sígildu og þraut-
reyndu 1600 gerðir.
Klassísku fólksbíll,
sportlegur Fastback og
rúmgóður Variant.
K 70 — Hinn glæsilegi,
rúmgóði, 4ra dyra VW.
Hinn sterki sendill —
sem síðast bregzt,
einnig fáanlegur sem
pallbill og fólks-
flutningabíll —
Kombi og AAicro bus.
VOLKSWAGEN
fyrirligg jandi
HEKLA hf.
Verð frá kr. 336.450,00
Laugavegi 170—172 — Simi 21240
væru, t.d. hvort miðað væri við
svipaða fólksfjöldaþróun og verið
hefði fram að áætlanagerðinni
eða hvort áætlanagerðin væri
miðuð við það, hve mikla byggð
viðkomandi atvinnusvæði gæti
borið. Taldi Áskell að seinni teg-
undin hefði ýmsilegt til sins
ágætis, einkum það að þar með
væri markið sett töluvert hátt.
Rakti Áskell siðan tölur um tekju-
skiptingu landshlutanna og sýndi
fram á hinn mikla tekjumun milli
landsbyggðarínnar og Reykja-
nesssvæðisins. Greindi hann síð-
an frá aðdragandanum að sam-
stöðu Norðlendinga, Austfirðinga
og Vestfirðinga i byggðamálun-
um, og ítrekaði nauðsyn á skipu-
lagðri samstöðu þeirra. Ræddi
hann síðan nokkuð um lands-
hlutasamtökin, kosti og galla
þeirra, og hvaða hættur bæri að
varast i sambandi við þróun
þeirra. Lýsti hann ýmsum þeim
jákvæðu þáttum, sem landshluta-
samtökin gætu tekið að sér. Ás-
kell fjallaði síðan nokkuð um þá
gagnrýni,sem hefði komiðfram á
uppbyggingu Akureyrar sem
miðstöðvar og varaði mjög við
þvi, að landsbyggðamenn yrðu
tortryggnir i garð Akureyrar.
Akureyri sem 11.000 manna
byggðakjarni væri stærsta vigi,
sem landsbyggðin ætti. Ekki
mætti gera byggðamálin að of
þröngum flokkspólitiskum
málum heldur lita á þau frá við-
tækari sjónarhóli.
Ilaukur Árnason, tækni-
fræðingur,
taldi erfitt að hrinda heldur al-
mennt orðaðri stefnu i ákveðnar
framkvæmdir. Höfuðatriðið væri
að landsbyggðin byði upp á of fá
atvinnufyrirtæki fyrir lang-
skólafólk. Það vantaði langskóla-
menntun i helztu undirstöðu-
atvinnuvegina, sem væru jafn-
framt aðalatvinnuvegir lands-
byggðarinnar. í iðnaðarupp-
byggingu landsbyggðarinnar
væri varasamt að dreifa iðnaði á
of litla staði. Ræddi hann siðan
nokkuð Tækniskólamálið, sem
dæmi um viðhorf i landsbyggða-
málum. Taldi hann fram ýmsi-
legt, sem væri Tækniskólanum i
hag við að flytjast til Akureyrar.
Hann yrði meira áberandi
stofnun við slikan flutning og
myndi verða veittur mun betri
aöbúnaður á Akureyri. öll
byggðamál strönduðu á þvi, að
þingmenn landsbyggðarinnar
væru ekki sammála um einstakar
aðgerðir og deildu innbyrðis.
Þess vegna væri itarleg stefna
eins og sú, sem SUF hefði lagt
fram, engum eins nauðsynleg og
þingmönnum.
Ingvar Gislason, alþing-
ismaður,
taldi að aðgerðir i byggöamálum
Framhald á bls. 19
Góöar bækur
í HÚSI MÁLARANS GRENSÁSVEG111