Tíminn - 23.02.1973, Blaðsíða 10

Tíminn - 23.02.1973, Blaðsíða 10
10 TÍMINN Föstudagur 23. febr. 1973. Þetta mikla likneski gnæfir hátt i þaki hofs eins skammt þar frá, þar sem Rauðinúpur var smiðaður. SNYRTIMENNSKA T topp á kúlunni, þvi aðra eins loft- hæð hef ég ekki séð. Alls staðar þarna uppi glitruðu ljós og voru sifellt að breytast. Stærðar hljómsveit var að leika, en hún var eins og krækiber i tunnu uppi á geysistóru sviði. Við fengum borð á upphækkun, þannig að við sáum vel yfir næsta nágrenni og sviðið þar sem skemmtiatriðin komu bráðlega fram. Fyrst er að geta þess, að nokkrar kimónóklæddar stúlkur komu og settust við borðin hjá okkur. Þeirra hlutverk er að sjá um, að aldrei tæmist glas, kveikja fyrir okkur i sigarettum og sjá um að okkur liði sem bezt. — Annað ekki. — Með drykkjarföngunum var borið fram ýmislegt smávegis til að narta i, og þ.á.m. söl, þrædd upp á tannstöngul i blævæng. Þá komu skemmtiatriðin, söngur dans, og trúðar. Marglitum ljósum var beitt þannig á meðan, að unun var á að horfa. Þarna dansaði par eitt undurfagran ballett, sem var túlkun á Love Story. Eftir þetta allt saman var rétti timinn til að dansa örlitið, þvi dansstöðum hér er lokað kl. 23.30. Ekki fannst okkur þetta nógu gott og litum inn á næturklúbb, en þeir eru hér i tuga og hundraöa- tali við hverja götu, allir litlir, en oftast fullir af fólki. Einkenni- legast fannst okkur að sjá þarna heilu fjölskyldurnar, með börn allt niður i fárra mánaða gömul. Hljóðneminn gengur milli manna og þeir sem vilja syngja, gera það, hvort heldur sem er i sætinu, eða fara upp á svið. Þarna var snáði á að gizka fjögurra ár, sem söng undurfallega við mikinn fögnuð gesta, en hann var ófáan- legur til að syngja nema eitt lag. Móðir hans sat með ungbarn i fanginu og faðirinn fékk sér blund i stólnum öðru hverju. Drykkjusiðir Japana er mér sagt, að séu að ýmsu leyti likir þeim islenzku. Mesti munurinn er sá, að Japana dettur aldrei i hug að fara að. berja á náunganum. Einn hittum við þarna, sem vildi þó aðeins reyna á kraftana, enda stór af Japana að vera. Hann bauð öllum Islendingunum i ,,sjó- mann” og þó að þeir legðu hann allir, brosti hann stöðugt út að eyrum og stóð loks upp og hneigði sig eins fallega og óstöðugir fæturnir leyfðu. Þrátt fyrir óskapa kurteisi á öllum sviðum og hneigingar, vantar ekki skapiö i Japani. Ég varð vitni að skrýtnum atburði á götuhorni um daginn. Þar kom litill fólksbill fyrir horn og slapp naumlega við árekstur við stærðar vörubil. Bilstjóri vöru- Nú er farið að styttast i dvöl okkar hér og erum við ekkert sérlega ánægð yfir að þurfa að fara héðan. Þessa daga höfum við kynnzt nokkuð daglegum venjum Japana og ýmsu, sem þeir bjóða upp á. Vildum við gjarnan geta tekið eitthvað af öllu þessu góða með okkur heim. Það er ekki ætlun mín að kafa neitt niður i menningarlifið, heldur reyna að lýsa hlutunum, eins og þeir koma okkur fyrir sjónir. i siðasta bréfi lofaði ég að segja eitthvað frá skemmtanalifinu hérna. Við brugðum okkur eitt kvöldið á stærsta dansstaðinn i borginni, Hong Kong. Húsið er i laginu eins og hálfkúla á hvolfi og á stærð við nokkrar Laugardals- hallir. Uppi á þakinu er griðar- mikil ljósaskreyting, sem iðar svo að maður verður ringlaður af aðhorfa á hana stundarkorn. Inni fyrir eru veggir speglalagðir og gólfin lögð þykkum, rauðum teppum. Rennistigar eru á milli hæða utan til i kúlunni, en i miðj- unni er danssalurinn, kringlóttur eins og husið og virðist ná upp i . ■ Þaðeru til öskubllar i Japan ekkisiður en annars staðar iheiminum. Ekki getum viðfrættykkur á, hvað stendur á hlið bilsins, en kannski það sé eitthvað um eigendur bllsins, eða hverjir reka hann. Snjólaug Braga- dóttir skrifar fró Japan 3. bréf

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.