Tíminn - 20.03.1973, Qupperneq 1
WOTEL miMlfí
SUNDLAUGIN
ereittaf mörgu, sem ,,Hótel Loftleiöir"
hefur til sins ágætis og umfram önnui
hótel hérlendis. En það býður líka afnoi
af gufubaðstof u auk snyrti-, hárgreiðslu
og rakarastofu.
ViSID VINUM A HOTEL
LOFTLEIDIR.
V ■ i /
3 varðskip með 2 byssur hvert
KJ—Reykjavík Á sunnu-
daginn var fyrstu kúlu-
skotunum hleypt úr
fallbyssu varöskips frá því
fiskveiðitakmörkin voru
færö i 50 milur 1.
september. Þaö var varö-
skipið óðinn, sem skaut
tveim skotum fyrir framan
dráttarbátinn Statesman,
eftir aö báturinn haföi hvað
eftir annað gert sig
liklegan til að sigla á
varðskipið og brotið alþjóð-
legar siglingareglur.
Óðinn er eitt þriggja varðskipa,
sem er búið tveim fallbyssum, og
er hlaupvidd byssanna á
skipunum 57 og 47 millimetrar.
Hin varðskipin,sem eru með tvær
byssur, eru Þór og Ægir. Siðari
byssunni var bætt við á bór þegar
skipið var i klössun i Álaborg s.l.
sumar, en ekki er nema mánuður
siðan siðari byssan var sett um
borð i Ægi. Er byssan á Ægi aftast
á skipinu, og fær skyttan þar
skýli af lunningunni.
Úr Búastríðinu
Hinar stærri fallbyssur land-
helgisgæzlunnar eru upphaflega
úr Búastriðinu og ganga undir
nafninu Flaadens halvautoma-
tiske kanóner. Þetta eru mjög
traustar og nákvæmar byssur og
með 57 og 47 mm. hlaupvidd.
Ekki mun mikið vera eftir af
vopnum af þessari gerð, þvi raf-
eindatækni verður ekki beitt við
notkun þeirra.
‘Byssurnar hafa olíudempara,
sem tekur skothöggið, en alltaf er
samt nokkur hætta á meiðslum
við að skjóta úr þeim, þegar að-
stæður eru slæmar. Talið er að
skjóta megi 10 kilómetra leið með
byssunni og kúlurnar fara
gegnum hvaða stálplötur sem eru
venjulega notaðar i skip.
12 hús
KJ. Reykjavik. — Um helgina og i
gær fóru alls 12 hús undir hraun
við Austurhlið i Vestmannaeyj-
um, og bætist þar með enn við
tölu þeirra húsa, sem grafizt hafa
undir hraun og ösku.
barna er ekki um að ræða renn-
andi, glóandi hraun, heldur
hrundi úr um 30 metra háum
Skildingaumslagið
hlngað á sýningu?
HHJ, Uppsölum. — islcnzka
skildingaumslagið, sem selt var i
Hamborg á dögunum, er enn til
umræðu i blöðum hér i Sviþjóð,
enda hvarvetna vakið stórmikla
athygli þeirra, sem fást við fri-
merkjasöfnun og frimerkjasölu.
Á sunnudaginn skýrði Svenska
dagblaðið frá þvi, og bar fyrir sig
orð frimerkjakaupmanna, að
sennilega yrði umslagið sent á
frimerkjasýningu, sem haldin
verður i Reykjavik i sumar i til-
efni af hundrað ára afmæli is-
lenzkra frimerkja og hefst 31.
ágúst.
Þvi má bæta við þetta sim-
skeyti fréttaritara Timans i Upp-
sölum, að mjög treglega hefur
gengið að rekja feril þess marg-
fræga og fokdýra skildingaum-
slags, sem upphaflega var sent
Þorsteini sýslumanni Jónssyni á
Kiðjabergi -i Grimsnesi. Hafa
þeir, sem að rannsókninni vinna
hjá sakadómaraembættinu, ekki
getað rakið slóðina. Þó hefur þar
nýlega komið fram maður, sem
telur það hafa verið i vörzlu konu
i Rangárvallasýslu, Jóhönnu
Albertsdóttur i Káragerði i
Austur-Landeyjum, frá þvi um
siðustu aldamót og fram á siðari
áratugi. Er þetta maður, sem
sjálfur ólst upp i Káragerði. Hér
er þó aðeins við minni eins vitnis
að styðjast, og er að sjálfsögðu
hugsandi, að um annað umslag
með skildingafrimerkjum kunni
að hafa verið að ræða.
Káragerði i Landeyjum um siöustu aldamót, er skildingaumslagið ætti að hafa borizt þangað.
Nýja fallbyssan á Ægi — myndin tekin I Reykjavikurhöfn i gær. —
Timamynd: GE.
Landhelgisgæzlan beitir
þessum vopnum aðeins af stuttu
færi og þegar skipið hefur „skotið
sig inn” er nákvæmnin mikil.
Gamlar skyttur á varðskipunum
léku sér að þvi að skjóta milli
brúar og skorsteins á togurum i
landhelgi.
Þótt byssur landhelgis-
gæzlunnar séu gamaldags og þvi
hætt við að þær gangi nær veiði-
þjófunum en upphaflega er
ætlazt til, það er að segja þegar
of nærri er miðað i fyrsta skoti og
menn gefa sér ekki tima til að
skjóta sig inn á skotmarkið, þá
eru þetta einföld og traust verk-
færi og hafa aldrei orðið alvarleg
slys i notkun þeirra i langri sögu
þeirra i landhelgisgæzlunni.
Eins og áður er getið, þá eru nú
tvær byssur á þrem varð-
skipanna, og eykur það að sjálf-
sögðu notagildi skipanna við
gæzlustörf. Liklegt er að byss-
urnar afturá komi sérstaklega að
notum þegar verið er i návigi við
togarana, eins og að undanförnu,
en áður fyrr var oftast um það að
ræða að skotið var á togara á
flótta, og þá var gjarnan skotið
milli brúar og skorsteins, eða þá i
reykháfinn sjálfan .
Wúrzburg og Albert
Á laugardagskvöldið tilkynnti
togarinn Freyja RE 38, að
vestur-þýzki togarinn Wiirzburg
NC-450 væri að veiðum innan 12
milna markanna suður af Súlna-
skeri (skammt sunnan Surts-
eyjar). Varðskipið Albert, sem
hefur að undanförnu haldið sig
við Vestmannaeyjar, var sent á
staðinn, en þegar Albert litli kom
á vettvang, togaði togarinn út.
Virahnifar eru engir um borð i Al-
bert, en varðskipsmenn þar um
borð voruekkiá þvi að láta tog-
arann sleppa alveg, og tókst aö
koma kröku á forvir togarans,
sem er tæplega eitt þúsund lestir,
en Albert er aðeins 200 lestir.
Þrátt fyrir stærðarmismuninn
tókst Albertsmönnum, að slita
forvirinn, en urðu svo siðar að
höggva á krökuvirinn, þegar
togarinn beitti vélarafli sinu i
viðureigninni.
Á laugardaginn skar svo Óðinn
á fótreipi vörpu brezka togarans
Robert Hewett LO 65, og átti
þetta sér stað út af Horni.
Siðari hluta sunnudagsins
hitnaði heldur betur i kolunum á
miðunum út af Horni, en þá
reyndu báðir brezku dráttar-
bátarnir Englishman og
Statesman ásamt brezka tog-
aranum William Wilberforce GY
140, að sigla á varðskipið Óðin .
Skeði þetta skömmu fyrir
klukkan sex á sunnudagirin, að
undir hraun
hraunkantinum, og grófust húsin
þannig i kaf. Flest þessara húsa
voru ný, eða nýleg, og hafa þarna
grafizt i hraunið verðmæti fyrir
tugi milljóna króna.
Þar sem hraunið skreið fram og
yfir húsin, var engin kæling á
hrauninu, en i gær var verið að
koma leiðslum á framskriðsstað-
inn, og átti að freista þess að
hefta frekara framskrið.
Svona eru klippurnar á varðskip-
uuuni.
sögn Landhelgisgæzlunnar. Stat-
esmann reyndi að sigla á Óðin'
bakborðsmegin , en það sern
bjargaði varðskipinu var að sett
var á fulla ferð, og gátu varð-
skipsmenn siglt Statesman af sér.
Eítir þetta lét skipherrann á Óðni
hlaða byssurnar með kúlu-
Framhald á bls. 19
19.500 eintök
seidust upp
ALLT er fertugum fært var
bókarheiti, sem eitt sinn var
á allra vörum. Nú er Timinn
á 57. ári, og virðist aldur ekki
baga hann, þvi að hann hefur
tekið mikinn vaxtarkipp að
undanförnu.
Nú um nýliðna helgi átti i
fyrsta skipti að prenta blað-
ið i nitján þúsund eintökum,
en i reynd voru þó það 19.500
eintök, sem prentvélarnar
skiluðu af blaðinu á sunnu-
daginn. Upplagið seldist upp,
nema hvað i gær voru eftir
fáein eintök, sem nauðsyn-
legt er talið að eiga til þess að
geta uppfyllt óskir fólks, er
seinna kann að spyrja um
þetta tölublað.
Um þetta leyti i fyrra var
blaðið prentað i 17.000 ein-
tökum á sunnudögum.
Þessar tölur segja sina sögu
um söluaukninguna. Þvi má
þó bæta við, að siðustu tvo
mánuðina hafa blaðinu bætzt
fleiri nýir, fastir áskrifendur
en allt árið 1972, og varð þó
töluverð aukning siðari hluta
þess.