Tíminn - 20.03.1973, Page 4
4
TÍMINN
Þriöjudagur 20. marz. 1973
Bjórkrúsirnar
hækka
Þaö þykir engum mikiö i Þýzka-
landi aö svolgra i sig einn litra
af bór. Hins vegar hefur fólki
stundum þótt slæmt, aö bjór-
krúsirnar hafa verið svo lagar
að froðan, sem myndast, þegar
krúsirnar eru fylltar, rennur út
yfir barmana, og niður á borðin,
og þar með tapast dálitið af
þessum sómadrykk. Nú hefur
verið ákveðið að láta framleiða
stærri, eða réttara sagt hærri,
bjórkrúsir fyrir þennan eins
litra skammt, þannig að fólk
tapi engu af froðunni. Fram til
þessa hefur verið tveggja senti-
metra boð á glösunum, en það
nægir sem sagt ekki froðunni,
hún er svo mikil. 1 nýju
glösunum veröur fjögurra senti-
metra borð, og á það að nægja.
Gömlu bjórkrúsirnar eru ekki
lengur á markaðnum, heldur
einungis nýja gerðin, en þrátt
fyrir það ganga lögin um krúsa-
stærðina ekki i gildi fyrr en i
janúar 1980. Telja veitingahúsa-
eigendur, að þessi lög séu til
bóta, og þar sem þau ganga
ekki i gildi fyrr en eftir sjö ár,
verða þeir á auðveldan hátt
búnir að skipta um allar krúsir
fyrir þann tima, og þurfa ekki
að leggja út aukapeninga til
þessara skipta, en áætlað er, að
75% allra glasa og bjórkrúsa
hverfi árlega annað hvort vegna
þess að þær brotna eða hrein-
lega vegna þess,að gestir taka
þær með sér sem minjagripi.
Tina vill skilja
við Niarchos
Það vakti töluverða athygli,
þegar Tina Livanos, sem gift
var Ari Onassis i eina tið, giftist
mági sinum, Niarchos, stuttu
eftir að systir hennar, kona
Niarchos dó á dularfullan hátt.
Tina hafði gifzt Blanford lávarði
skömmu eftir að hún skildi við
Onassis, en skildi við hann og
giftist Niarchos. Eftir að Tina
og Niarchos giftust kom i ljós,
að þau höfðu verið ástfangin
fyrir hvorki meira né minna en
18 árum, og þá hafði Niarchos
meira að segja beðið Tinu. En
þá kom Onassis til sögunnar, og
hann var mun rikari en keppi-
nautur hans, og afleiðingin var
sú, að Tina valdi hann. Niarchos
lét sér þá nægja að giftast hinni
systurinni sem var bæði eldri
og þroskaðri. Það varð aldrei
fyllilega upplýst, hvernig stóð á
dauða Eugeniu Niarchos. Sumir
töldu, að eiginmaðurinn hefði
borið ábyrgð á dauða konu
sinnar, en það sannaðist aldrei.
Mikill hluti auðs Niarchosar
hafði upphaflega komið frá
konu hans, en þær systurnar
voru ekki siður vel stæðar en
mennirnir, sem þær giftust. Vel
getur verið, að dauði Eugeniu
eigi nú sinn þátt í þvi, að
hjónaband þeirra Tinu og
Niarchosar er að fara út um
þúfur, en þó telja flestir, að það
sé eiginmaðurinn sjálfur, sem
ekki hefur verið eins og kona
hans óskaði sér. Hann drekkur
töluvert mikið, og er heldur
leiðinlegur með vini, að þvi er
sagt er. Niarchos vill alls ekki
veita konu sinni skilnað, og til
þess að reyna að þvinga hana til
áframhaldandi sambúðar hefur
hann nú hætt að láta hana fá
eins mikla peninga og hann
hafði gert fram að þvi, að hún
fór að ræða um skilnað. Til þess
að eiga peninga fyrir þvi, sem
Tina sjálf vill eyða i hefur hún
gripið til þess ráðs, að selja
smátt og smátt eitthvað af
skartgripum sinum. Það getur
kostaðpening að skilja, og Tina
ætlar sér að gera það, og auk
skartgripana hefur hún nú
einnig selt málverk eftir
Rubens. Ætti hún þvi að hafa
næga peninga til þess að tryggja
sér aðstoð sæmilegs lög-
fræðings.
Dfik
DENNI
DÆMALAUSI
Yss, þetta er ekki neitt. Ég fór
svona með eina barnfóstruna
mina einu sinni.