Tíminn - 23.03.1973, Qupperneq 16
16
TÍMINN
Föstudagur 23. marz. 1973
DERBY KOAAST I
UNDANÚRSLIT
Fjögur ensk knattspyrnulið leika í undan
úrslitunum í Evrópukeppnunum þremur
ÖLL ENSKU liöin fjögur Derby,
Leeds, Liverpool og Tottenham,
tryggðu sér rétt til að leika i
HELMUT HALLER... leikur í
undanúrslitunum mcö Juventus.
Evrópukeppnunum þremur i
knattspyrnu. Róðurinn hjá Derby
var erfiðastur, þvi að liðið þurfti
að sigra tékkneska liðið Spartak
Trnava meö tveggja marka mun.
Ahorfendasvæöiö á Baseball
Ground var þéttsetinn á miðviku-
dagskvöldið og áhorfendur fengu
að sjá æsispennandi leik. Kevin
Hector skoraði fljótlega fyrir
heimamenn og siðan bætti hann
öðru marki við. Þá ætlaði allt um
koll að keyra á áhorfenda-
bekkjunum, áhorfendur sungu og
hvöttu leikmenn Derby til dáða.
Tékkneska liðið sótti nær
stanzlaust lokaminútur Ieiksins.
En landsliðsmiðfram verðirnir
Itay McFarland og Colin Todd,
stjórnuðu vörn Derby frábærlega.
En snúum okkur þá að
úrslitunum I Evrópukeppnunum:
Þau liö, sem eru skrifuð með
feitu letri komust áfram
(samanlögð markatala úr báðum
leikjum liðanna, innan sviga).
Evrópukeppni meistaraliða:
B. Múnchen — Ajax 2:1 (2:5)
Derby — Spart.Trnava 2:0 (2:1)
U.Dozsa—Juvcntus 2:2 (2:2)
R. Madrid —Dyn. Kiev 3:0 (3:0)
Evrópukeppni bikarhafa:
Rapid—Leeds 1:3 (1:8)
■ IajdukSplit—Hibs 3:0 (5:4)
Spartak Prag—Schalke 3:0 (4:2)
A.C. Milan — Spart. Moskva 1:1-
(2:1)
UEFA-bikarkeppnin:
Dresden—Liverpool 0:1 ( 0:3)
Twente Entschede — OFK
Belgrad 2:0 (4:3)
Setubal— Tottenham 2:1 (2:2)
Mönc. gladbach — Kaiserl. 7:1
(9:2)
Leeds vann stórsigur i Búkar-
est, þó að liðið hafi ekki stillt upp
sinu sterkasta. Alan Clarke og
Cherry, eru i leikbanni og Billy
Bremner er meiddur. Mörk
liðsins, skoruðu Mike Bates og
Jones (tvö).
Juventus, italska liöið, sem
Hermut Haller, knattspyrnu-
maðurinn ungi frá V-Þýzkalandi,
leikur með, stóð i ströngu á mið-
vikudaginn. Leikmenn Ujpest
Dozsa, skoruðu tvö fyrstu mörk
leiksins fljótlega og allt leit út
fyrir stórsigur. En Italirnir með
Haller á miðjunni gáfust ekki upp
— italska knattspyrnu-
snillingnum Pietro Anastasia,
sem er undramaður með
knöttinn, skoraði tvö stórglæsileg
mörk og tryggði Juventus sæti i
undanúrslitunum, þar sem úti-
mörk reiknast tvöfalt, þegar jöfn
markatala er.
ttalska liðið A.C. Milan tryggði
sér einnig rétt til að leika i undan-
úrslitum, þegar þeir gerðu jafn-
tefli 1:1 á heimavelli i bikar-
keppninni. 1 liðinu leika tveir
heimsfrægir knattspyrnumenn,
V-Þjóðverjinn Schnellinger og
italski galdramaðurinn Rivera.
Ajax án Cruyff léku gegn
Bayern Múnchen i Múnchen.
Leikmenn liðsins tóku forustuna á
áttundu min. leiksins. Markið
dugði ekki til sigurs, þvi að
markaskorarinn Gerd Múller,
þrumaði knettinum tvisvar i netið
hjá Ajax, en það var ekki nóg —
Ajax heldur áfram i keppninni.
SKEAAMTILEGT OG
SPENNANDI AÐ VERA
ÍÞRÓTT AF RÉTT A AA AÐU R
NÝLEGA starfaði hjá
okkur á íþróttasiðunni
ungur piltur úr
Garðahreppi, Gisli
Karl Karlsson, sem
hafði sérstakan áhuga
á þvi að kynnast
iþróttablaðamennsku,
en Gisli Karl er einn
af nemendum Gagn-
fræðaskólans i Garða-
hreppi. Efndi skólinn
til starfsfræðslu og
gafst nemendum
kostur á að kynnast
margvislegum
störfum.
Við spurðum Gísla
Karl að þvi, hvernig
honum litist á það að
gerast iþróttafrétta-
maður. Fer svar
hans hér á eftir:
Mér lízt mjög vel á starfið,
og tel ég að mörgum þeim,
sem einhvern áhuga hafa á
Gísli K. Karlsson.
iþróttum henti starfið vel, eöa
svo fannst mér meðan ég
starfaði sem iþróttafrétta-
maður. Mér fannst mjög
gaman að starfa að þessu, sér-
staklega þegar ég var að
fylgjast meö kappleikjum og
þegar ég var að skrifa um þá.
Starfið er erfitt, eða svo finnst
mér og ég tel, að það hafi
hjálpað mér mikið, hvað ég
hef fylgzt mikið með hand-
knattleik i vetur. Ég er sann-
færður um að mér hefði ekki
tekizt að skrifa neitt, ef ég
hefði ekki eitthvert vit á hand-
bolta þegar ég skrifaði.
Ég hef mikinn áhuga á að
starfa sem iþróttafréttamaður
i framtiðinni. Ég mundi segja
að starfið væri spennandi og
skemmtilegt fyrir þann sem
befur áhuga á iþróttum. Svo
vona ég bara, að ég fái að
starfa hjá einhverju dagblað-
anna i framtíðinni. Svo vildi
ég að lokum þakka þá fræðslu
og aðstoð sem mér var veitt
hjá blaðinu og þá sérstaklega
iþróttafréttariturum þess.
Auglýs
endur
Aöstoö vió gerð auglýsinga. — Handrit að
auglýsingum, sem Auglýsingastofu Tímans I®
er ætlað að vinna, þurfa að berast tveim ^
dögum fyrir birtingu.
Knattspyrnusnillingarnir Rivera og Þjóðverjinn Schnellinger, léku vel
með italska liðinu A.C.Milan.
íslandsmótið í blaki:
Fjögur lið komin í
úrslitakeppnina
FJÖGUR lið hafa nú
tryggt sér rétt til að
leika i úrslitakeppni
íslandsmótsins i blaki,
sem fer fram i byrjun
april. Liðin fjögur eru
Í.M.A. og U.M.S.E. frá
Norðurlandi og í.S. og
Hvöt frá Suðurlandi.
Um siðustu helgi voru leiknir
fjórir leikir, tveir á Akureyri og
tveir i Reykjavik. Liðin sem báru
sigur úr býtum i leikjunum,
tryggðu sér sæti i úrslita-
keppninni. Úrslit urðu þessi:
Akureyri:
l.M.A. — Ú.l.A. 15:4,15:3
U.M.S.E —Ú.l.A. 15:8,15:4
Reykjavik:
l.S. —Laugdælir 15:1,15:6,
Hvöt —Islendingur 15:13,15:17,
15:8
Úrslitakeppnin fer fram i
iþróttahúsinu i Hafnarfirði 31.
marz og 8. april og i iþrótta-
skemmunni á Akureyri 1. april og
14. april. Við munum segja nánar
frá keppninni siðar.
Bifreiða-
viðgerðir
Flfdft og vel af hendi
leyst.
Reynið viðskiptin.
Bi f reiöasti I lingin
Síðumúla 23, sími
81330.
Hvað
gerist
í kvöld?
HVAD gerist i kvöld, þegar
fslenzka landsliðið leikur gegn
norska landsliöinu I hand-
knattleik i Laugardalshöllinni.
Tekst islenzka liðinu aö bera
sigur úr býtum, eða verða að
þola tap á heimavelli? Leikur-
inn I kvöld hefst kl. 20.30 og
verður hann áttundi iands-
leikur þjóðanna. Fyrri leikirn-
ir hafa farið þannig:
’56 Island — Noregur 22:25
'59 Island — Noregur 20:27
’69 Island — Noregur 16:18
’69 Island — Noregur 14:13
’69 Island — Noregur 17:17
'72 ísland — Noregur 14:14
’72 Island — Noregur 14:14
’72 Island — Noregur 12:14
— PÓSTSENDUM —
MUNID
RAUÐA
KROSSINN