Tíminn - 24.03.1973, Page 1
„Hótel Loftlelðir býður gestum
stnum að velja á mllli 217 herbergja
með 434 rúmun — en gestum
standa Itka tbúðir til boða.
Allur búnaður mlðast við strangar
kröfur vandlátra.
LOFTLEIÐAGESTUM LIÐUR VEL.
4
WOTELLOFTŒIÐtR
Loftmyndin sýnir vel hrauniö sem braust fram á Heimaey f fyrrinótt. Ofarlega til hægri er nýja sjiikrahúsiö,
(Tfmamynd Kári)
MEIRA
EN
70HÚS
GRÓFUST
UNDIR
HRAUN
r
A
HEIAAAEY
Menn urðu að forða sér
á hlaupum undan hrauninu
KJ-Reykjavík. — Viö
urðum að hafa okkur alla
við til að geta bjargað dæl-
unum og pípunum, sem
lágu upp á garðinn, og
stundum varð maður bók-
staflega að hlaupa undan
hrauninu, sem skreið yfir
hvert húsið á fætur öðru,
sagði einn af starfs-
mönnum Viðlagasjóðs við
fréttamann Tímans i Vest-
mannaeyjum í gærmorgun.
— Þetta byrjaði svo um
munaði um klukkan átta,
eða þegar fólkið var að
fara í kirkjuna, en mesta
hraunskriðið mun hafa
verið á milli klukkan þrjú
og sex í morgun. Hraunið
kveikti í hverju húsinu á
fætur öðru, og á tímabili
var þetta eitt ægilegt eld-
haf yfir að líta, en hraunið
skreið stöðugt fram, og
færði logandi húsin á kaf
hvert á fætur öðru, sagði
Erlingur ísleifsson frá Sól-
heimum í Mýrdal.
Tveggja mánaða
Það er eins og gosið á Heimaey
hafi viljað minna eftirminnilega
á, að tveir mánuðir voru i fyrri-
nótt frá þvi jarðeldarnir á Heima-
ey brutust út, og einmitt
nákvæmlega á tveggja mánaða
afmælinu var atgangurinn i
hrauninu hvað mestur.
Menn i Eyjum sögðu frétta-
manni Timans i gær, að strax á
fimmtudagsmorguninn hefði
mátt greina, að eitthvað mikið
var i aðsigi. Hraunstraumurinn
jókst þá, og var hraunið mjög
þunnt. Hraunfylla mun hafa
safnazt saman norðan við giginn,
og sprengdi hún siðan hraunið
fram, með þeim afleiðingum að
um 70 hús fóru á kaf. Alls er þá
talið, að um niutiu hús hafi farið
undir hraunið frá þvi það tók að
skriða fram um siðustu helgi.
Áður var talið, að rúmlega
hundrað hús væru komin undir
hraun og ösku, svo tala þeirra
húsa, sem nú eru komin á kaf, er
eitthvað á þriðja hundrað.
Hraunbrúnin nær nú yfir
austasta hluta Urðarvegar og
Bakkastigs og nær að Heimagötu
á milli Landagötu og Grænu-
hliðar, en þar er það komið
einna vestast i bæinn. Frá
Heimagötu liggur hraunbrúnin
i suð-austur og y.fir Austur-
veg og Kirkjubæjarbraut. Þarna
skammt frá er nýja sjúkra-
húsið i Eyjum, og eru vart
nema rúmir eitt hundraö metrar
á milli hraunkantsins og þessarar
nýju og glæsilegu byggingar sem
ekki var einu sinni búið að taka i
notkun að fullu. Hraunkanturinn
er meira en tiu metra hár að
jafnaði, og i honum eru viða stór
björg, sem oltið hafa fram og
malað húsin undir sér.
Fyrir tveim dögum var byrjað
að gera garð , sem liggja átti frá
syðri hafnargarðinum og upp i
hliðar Helgafells og sögðu sjónar-
vottar i Eyjum, að garðurinn
hefði ekki veitt hrauninu neina
Framhald á bls. 10
Vestmannaeyingar kaupa hrað-
frystihús Júpíters og Marz
ÍSFÉLAG Vestmannaeyja hefur fest kaup á hrað-
frystihúsi Tryggva ófeigssonar á Kirkjusandi, og er
kaupverðið tvö hundruð milljónir króna. Fleiri fyrir-
tæki hafa að undanförnu átt i samningaumleitunum
við Tryggva um kaup á hraðfrystihúsinu, en nú hefur
endanlega verið frá því gengið, að ísfélagið nær kaup-
unum.
isfélag Vestmannaeyja á langa sögu að baki, sem
næralltafturtil aldamóta, og hefur verið mjög samof-
in sögu atvinnuþróunar í Eyjum. Framkvæmdastjóri
þess er Einar Sigurjónsson.
Um langt skeið hefur ísfélagið rekið frystihús í
Eyjum með miklum myndarbrag, og var búið að færa
það að öllu leyti í það horf, sem frekast er krafizt sam-
kvæmt hinum nýju reglum, er settar hafa verið um
hreinlæti og aðbúnað, áður en eldgosið hófst. Það var
meðal afkastamestu frystihúsa og eitt þeirra, sem
hvað mest hefur flutt út af frystum þorskblökkum. JH