Tíminn - 24.03.1973, Blaðsíða 8

Tíminn - 24.03.1973, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Laugardagur 24. marz 1973. Margt býr í þokunni á Seltjarnarnesi ERL—Reykjavik. — Leikfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið að hefja að nýju sýningar á leikrit- inu Margt býr i þokunni. Fyrsta sýningin verður annað kvöld i Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Leikrit þetta er bráðfjörugt saka- málaleikrit, sem oft var sýnt i Eyjum i fyrra við mjög góða að- sókn, og i fyrravor var farið með það i leikför um Austurland. Ekki er ákveðið, hve lengi leikritið verður sýnt á Seltjarnarnesinu, en að sýningum þar loknum er áformað að fara með það eitthvað út á land, a.m.k. um Suðurland. Leikstjóri er Ragnhildur Stein- grimsdóttir. 30 manna áhafnar norsks BIRGITTU GRIAASTAD FELLUR HEIÐUR í SKAUT En lét það ekki aftra sér frá að koma fram til styrktar íslandi Danska visnasöngkonan Birgitte Grimstad er ekki með öllu ókunnug Islendingum, en hún kom fram i Norræna húsinu fyrir tveim árum og vakti mikla hrifningu. Það eru lika fleiri hrifnir af henni en við, þvi að fyrir skömmu fékk hún stór norsk músikverðlaun, en hún er gift norskum manni og búsett i Osló. Þegar tilkynnt var um verð- I Birgitte Grimstad. launaveitinguna var Grimstad stödd i Englandi i hljómleikaferð. Hún gat þvi ekki veitt þeim við- töku strax. En þótt hennar biðu stórar fjár- hæðir i Osló, lagði hún lykkjú á leið sina að hljómleikaferðinni lokinni, fór til Kaupmannahafnar þeirra erinda að leggja sitt af mörkum til Vestmannaeyja- söfnunarinnar. Mikil hátið var haldin i Falkoner leikhúsinu og þar komu inn mörg þúsund danskar krónur, sem rann til Vestmannaeyinga. Og varla hefur Grimstad spillt fyrir að- sókninni. TOGARAEIGENDUR SENDA MÓTAAÆLI skips saknað NTB—Washington — Siðdegis i gær, meira en sólarhring eftir að áhöfn norska skipsins Norse vari- ent frá Osló tilkynnti að skipið væri að sökkva, og að 27 karl- menn og 3 konur, sem um borð voru, hefðu farið i bátana.hafði enn hvorki fundizt tangur né tetur af skipinu né áhöfn þess. Skipiö sökk úti fyrir austur- strönd Bandarikjanna á þriðju- dagskvöld i vondu veðri. Flug- vélar, þyrlur, bandarisk herskip, strandgæzluskip og flutningaskip hafa tekið þátt i leitinni. Talið er, að björgunarbátarnir hafi getað hrakizt töluverða leið i fyrrinótt. Ahöfn flutningaskips frá Liberiu sá i fyrrinótt i stórsjó bregða fyrir „hvitum hlut, sem liktist björgunarbát”. Aðrir hafa ekkert séð óvenjulegt. Hitastig sjávar á þessu svæði er nálægt frostmarki og i gær var út- lit fyrir að veður kólnaði i nótt. Litlar likur eru á að áhöfnin hafi komizt lifs af hafi hún ekki komizt i bátana, en atburðurinn virðist hafa átt skamman aðdraganda. Öveður geysar nú með allri austurströnd Bandarikjanna frá Maine til Suður Karólinu. HÉR á landi var vinnuhjúaskil- dagi 14. maf. Hjá frændum okkar, Norömönnum, var hann aftur á móti 14. april. Svo er enn, þótt i Sumarnámskeið í Bandaríkjunum EINS og undanfarin niu sumur verður haldið sumarnámskeið að Luther College, Decorah, I.owa i Bandarikjunum, og er námskeið- ið fyrir kennara frá Norðurlönd- unum. A vegum Islenzk-ameriska félagsins og The American Scandinavian Foundation i New York verða nokkrir styrkir veittir úr Thor-Thors sjóðnum til þátt- töku I námskeiðinu. Nánari upplýsingar ásamt um- sóknareyðublöðum, á skrifstofu Islenzk-ameriska félagsins, Austurstræti 17, (2. hæð), þriðju- daga og föstudaga kl. 19.00-20.00 e.h. (simi 26634). Umsóknarfrestur er til 10. april. Frétt frá íslenzk-ameriska félaginu. FULLSKIPAÐUR fundur var haldinn idag (22. marz) í Félagi ísl. botnvörpu- skipaeigenda. Var þar samþykkt eftirfarandi: „Fundurinn lýsir undrun sinni yfir þvi, að rikisstjórnin skyldi beita sér fyrir lögfestingu á kröfum Vélstjórafélags Islands, Skipstjóra- og stýrimannafélags- ins öldunnar o.fl. og Félags isl. Erl-Reykjavik. — Það er enginn smá fjörkippur, sem hleypur i menningarlif Húnvetninga nú um Noregi sé orðið næsta fátt vinnu- hjúa likt og hérlendis. 1 Noregi hefur vinnuhjúum farið fækkandi til skamms tima, en nú virðist tala þeirra, sem eru i vinnumennsku við venjulegan búskap, hafa staðnæmzt við tiu þúsund. Séu teknir með þeir bændur, sem að miklu leyti fram- færa sig við að nytja skóga sina, er tala vinnuhjúanna i landinu nitjan þúsund. Enn sem fyrr er þó 14. april sá dagur, er fólk fer úr vist i aðra nýja, ef það skiptir um á annað borð. Annars virðast norsk vinnu- hjú allföst i vistum, þvi að sex af hverjum tiu hafa verið yfir sex ár i sömu vist, og átján af hundraði tuttugu ár eða meira. En þetta þýðir lika annað, að aldurinn er hár — meira en sjö af hverjum 10 er kominn yfir fimmtugt. Skipting milli kynja er á þann veg, að um sjö af hverjum tiu eru karlar, en þrir konur. Þvi er ekki að leyna, að i Noregi, likt og hérlendis, vantar sárlega fólk til þess að leysa þá af, sem við landbúnað starfa, i sumarleyfum og þegar sjúkdóma ber að höndum sem og tækni- menn af ýmsu tagi. loftskeytamanna, sem fram komu á sáttafundi laugardaginn 17 marz s.l. á hendur F'élagi isl. botnvörpuskipaeigenda varðandi nýja kjarasamninga milli aðila, og sem Félag isl. botnvörpu- skipaeigenda hafnaði. Þegar rikisstjórnin fór þess á leit við fulltrúa Félags isl. botn- vörpuskipaeigenda á sérstökum fundi, sem haldinn var i stjórnar- ráðinu 8. marz s.l., að þeir gengju helgina. Kl. 14 i dag verður opnuð i Félagsheimilinu á Blönduósi stór myndlistarsýning, þar sem verða til sýnis verk eftir 35 menn. Eru það bæði málverk, svart- listarmyndir, höggmyndir, list- vcfnaður og húsagerðarlist, sem Húnvetningum gefst kostur á að kvnnast, eftir listamenn á ýmsum aldri, og á segja, að sýningin spanni yfir siðustu áratugina. Þetta kom fram i viðtali, sem Timinn átti við Elizabetu Sigur- geirsdóttur á Blönduósi i gær, en hún er formaður Kvenfélagasam- bands Austur-Húnavatnssýslu, en sýningin er á vegum þess og hafa konurnar ráðið til sin Eyborgu Guðmundsdóttur til að annast uppsetningu hennar. Til þessa nýtur Kvenfélagasambandið styrks frá Menntamálaráði og Menningarsjóði Félagsheimila, auk þess, sem ýmsir aðilar heima fyrir hafa lagt sitt af mörkum til að sýningin kæmist upp. Húsið sagði Elizabet að væri skemmtilegt til þessara hluta að þvi þó undanskildu, að ljósa- búnaður allur hefði verið ónot- hæfur til sýningarinnar. Varð þvi að setja upp sérstakan ljósa- búnað, sem fenginn var sunnan yfir heiðar. Aðgangur er ókeypis fyrir alla, og hefur öllum börnum úr báðum Húnavatnssýslum verið boðið að koma á sunnudag, en þá mun verða sett upp sérstök dagskrá, þar sem nemendur úr Tónlistar- skólanum munu m.a. koma fram. Þá hefur verið fenginn blásara- kvintett frá Reykjavik sem leika mun við setningarathöfnina kl. 2 i dag, en þá munu einnig karla- til samninga við aðildarfélög Sjó- mannasambands Islands, háseta- félögin, og féllust þar með á til- greindar hækkanir á launum frá þvi sem fram kom i miðlunartil- lögu sáttarnefndar 2. marz s.l., var m.a. bent á þann óleysta vanda, að hluti yfirmanna á tog- araflotanum (vélstjórar, 2. stýri- menn og loftskeytamenn) ættu i vinnudeilu við Félag isl. botn- vörpuskipaeigenda og hefðu þá nýlega hafið verkfall. Var þvi þar svarað til af þeim ráðherrum, sem fundinn sátu, að hér væri ekki um neitt vandamál að ræða, sú deila yrði sett i gerðardóm kórarnir Vökumenn og Karlakór Bólstaðarhliðarhrepps syngja. Þá hafði Menntamálaráð og boðið Landhelgisk vikmyndina til Framhald á bls. 23 KNÚTUR BRUUN heldur bóka- uppboð f átthagasal Sögu á mánu- daginn, og hefst það klukkan fimm. Bækurnar verða til sýnis á Grettisgötu 8 klukkan tvö tii sex i dag, laugardag, óg f átthaga- salnum klukkan 10 til fjögur á mánudaginn. Meðal bóka á uppboðinu eru Sýslumannaævir, kvæði Bjarna Thorarensen, Biskupasögur, prentaðar 1858-1878, Spaks manns spjarir og allmargar ferðabækur útlendinga frá nitjándu og tuttugut öld. Til gamans birtir blaðið hér hluta úr siðu úr söluskránni. 87. Antiquarisk Tidsskrift, 1843-1863. Kjöbenhavn 1845-1864. (7 bindi). 88. Sagan af Njáli Þorgeirssyni ok sonum hans. Kaupmannahöfn 1772. 89. Hervararsaga ok Heidreks kongs. Hafniæ 1785. 90. Islands Landnamabok. Haviae 1774. með lögum, þegar hin deilan væri leyst. 1 framhaldi af þessu kváðu ráð- herrarnir tilmæli um samþykki aðila að yfirmannadeilunni um, að hún yrði lögð fyrir gerðardóm, myndu bera að hpndum á næsta sáttafundi, sem haldinn yrði i þeirri deilu, ef samningar þá ekki næðust. Jafnframt óskuðu ráð- herrarnir þess, að Félag isl. botn- vörpuskipaeigenda samþykkti fyrir sitt leyti, að málið fengi þá meðferð þ.e. að það færi í gerð. Efnt var til félagsfundar i Félagi isl. botnvörpuskipa- eigenda 8. marz, þegar að loknum fundinum með ráðherrunum, og var þar samþykkt að verða við óskum rikisstjórnarinnar. Á sáttafundi 10. marz i yfir- mannadeilunni náðist ekki sam- komulag, og bar þá sáttanefnd fram tillögu til beggja aðila um gerðardóm. Fulltrúar Félags isl„ botnvörpuskipaeigenda sam- þykktu hana, en gagnaðilar felldu hana. Með tilliti til framanritaðs mót- mælir fundurinn harðlega, að rikisstjórnin skyldi siðan vikja frá þvi, sem fastmælum var bundið, og beita sér i þess stað fyrir lögfestingu á kröfum yfir- mannafélaganna”. Timarit. 91. Kvöldvaka. 1.-2. árg. Reykja- vik 1951-52. 92. Dvöl 1.-12. árg. Reykjavik 1933/34-1944. 93. Nýtt kirkjublað 1 .-11. árg. Reykjavik 1906-16. 94. Arsrit hins islenzka fræðafélags. l.-ll. árg. Kaupmannahöfn 1916-30 (Innb. i 3 bindi, en 1. árg. bundinn aftan við 7. árg.) 95. Fréttir frá Islandi, 1871-1890. Reykjavik 1873-91. 96. Blanda. (Sögurit XVII). 1.-9. bindi. Reykjavik 1918/20-1950/53. 97. Almanak hins islenzka þjóðvinafélags. (1.) -92. árg. Kaupmannahöfn og Reykjavik (1874)-1965. (Hér eru almanökin um árin 1875-79 2. pr„ Reykjavik 1916) 98. Timarit hins islenzka bókmenntafe'lags 1.-25 árg. Reykjavik 1880/81-1904. 99. Sunnanpósturinn. 1.-3. árg. Viðeyjarklaustri 1835-38. 100. Fjölnir. Árrit handa Islendingum 1.-9. árg. Kaupmannahöfn. 1835-47. Vinnuhjúaskildagi í Noregi 14. apríl Glæsileg listasýning opnuð á Blönduósi BÓKAUPPBOD Á MÁNUDAGINN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.