Tíminn - 24.03.1973, Síða 9
Laugardagur 24. marz 1973.
TÍMINN
9
Tveir
til Þórs
hafnar
Leikendur og leikstjóri Húrra krakkr. Frá vinstri: Kristján Jónsson leikstjóri, og I fremri röö: Karl
Kristensen, Margrét Sigurþórsdóttir, Ingvi Arnason og Sigþrúður Sigurðardóttir. í aftari röð:
Hörður Þórðarson, Oddný Sólveig Jónsdóttir, Theódór Þórðarson og Annabella Albertsdóttir.
HURRA
KRAKKI í
BORGARNESI
Erl—Reykjavik. — Að undan-
förnu hefur Ungmennafélagið
Skalla-Grímur i Borgarnesi sýnt
leikritið „Húrra krakki” eftir
Arnold og Back, alls 7 sinnum.
Leikstjóri er Kristján Jónsson, og
hefur sýningum verið mjög vel
tekið. Nú er i undirbúningi að fara
með leikritið til nálægra staða, og
verður sýning i Búðardal i kvöld,
og á morgun verða tvær sýninj
á Akranesi. Um næstu helgi
svo ráðgert að fara með leikim
Snæfellsnes og hafa þá sýninga
Sandi og Lýsuhóli. Frekari fer
eru ekki áformaðar að sin
Skalla-Grlmur hefur flest ár s
upp eitthvert leikrit, og leiklist;
starf staðið með blóma i Borg;
nesi.
Unrtið að því að þétta
bátana í fjörunni
og ná þeim út
ÓH-Gunnarsstöðum.— Hér hefur
verið afbragðstið að undanförnu,
þótt nú hafi heldur kólnað i veðri.
Vegir eru auðir og nær allur snjór
horfinn úr byggð.
Menn eru farnir að róa á rauð-
maga, og svo er grásleppan að
fara að ganga, og allar trillur að
verða klárar til að taka á móti
henni . Harpan hefur verið á
loðnuveiðum og aflað vel.
Eftir bátsskaðana i óveðrinu
um daginn, hafa komið hingað
tveir nýir bátar, sem nú stunda
róðra. Arni Helgason, sem átti
Fagranesið, fór strax til Kefla-
vikur og keypti þar nýjan 50 lesta
stálbát, Borgþór að nafni, og auk
þess kom nýr eikarbátur, sem
smiðaður var i Vestmannaeyjum
handa Þórshafnarbúa, sem þar
var. Hann heitir Votaberg. Þessir
bátar róa með net.
Unnið er að þvi að þétta bátana
i fjörunni, og til stendur að ná
þeim út. 1 þvi skyni hefur jarðýta
verið að gera rás bfjöruklungrið,
svo að draga megi þá á flot.
Vélarnar eru taldar litið
skemmdar, og er meiningin að
endurgera bátana. Hafa skipa-
smiðastöðvarnar, sem smiðuðu
þá, boðizt til að gera þá upp. Eru
þvi horfur á, að betur rætist úr
þessum málum en á horfðist i
upphafi, og er það m.a. að þakka
hinni góðu og stórviðralausu tið,
sem hefur komið i veg fyrir, að
bátarnir skemmdust meira i
upphafi, þegar þá rak upp.
VELJUM ÍSLENZKT
Aska að Skógum undir Eyjafjöllum. — Ljósmynd: A.J.
HÆTTA Á FLÚOREITRUN
Á SUÐURLANDI
ALLT FRA upphafi gossins I
Heimaey hefur verið fylgzt með
öskufalli á landi og einkennum á
gróðurskemmdum af völdum
flúoreitrunar. Greinileg merki
flúorsins hafa fundizt á gróðri, en
engin eitrun hefur enn komið
fram á búfé svo vitað sé. En
þegar grös fara að grænka og fé
verður hleypt út eykst eitrunar-
hættan. Eru þvi tilmæli til bænda
á öskufailssvæðinu að hafa fé
eins lengi i húsi og kostur er á,
til að koma i veg fyrir stjórfelldan
skaða af völdum flúoreitrunar.
A vegum landbúnaðarráðu-
neytisins hefur verið stofnuð
samstarfsnefnd sérfræðinga um
áhrif Heimaeyjargossins á
gróður og búfé. Á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var i gær,
sagði Jónas Jónsson, aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra, að
ráðuneytið hafi tryggt greiðslu
alls kostnaðar við rannsóknirnar,
og að skipulagðir verði rann-
sóknahópar til að fylgjast með
yfirvofandi hættu vegna flúor-
eitrunar. Sagði hann að það færi
mikið eftir vinnubrögðum bænda
á öskufallssvæðinu hvort tjón
hlytist af öskufallinu eða ekki.
Frá Heimaey hefur aska aðal-
lega borizt á land á svæðinu milli
Ytri-Rangár og Vikur I Mýrdal.
Tilnefndir hafa verið tveir menn
fyrir austan, sem fylgjast með
öskufalli og eru bændur á svæðinu
beðnir að snúa sér til þeirra, ef
þeir verða varir við öskufall eða
æskja leiðbeininga. Mennirnir
eru Kristinn Jónsson, tilrauna-
stjóri á Sámsstöðum og Einar
Þorsteinsson, ráðuneutur á Sól-
heimum.
Flúormagn i ösku, sem féll i
Fljótshlið 24. janúar, reyndist
115-2600 partar úr milljón, en 8.
febrúar mældust 1000 partar af
flúor úr ösku þaðan.
1 Skógum undir Austur-Eyja-
fjöllum 1200 partar i ösku 8.
febrúar, en i Nýjabæ undir
Vestur-.Eyjafjöllum 100 partar
17. febrúar.
Mest flúor hefur mælzt i sýni
frá Skammadalshóli 19. febrúar
— 3000 partar úr milljón.
í byrjun Heklugossins 1970
mældust 2000 partar i ösku, er
féll i Biskupstungum fyrstu daga
gossins, og 1000-1400 partar i
Húnavatnssýslu. Benda þessar
mælingar nú til þess, að flúor-
magn I ösku úr Heimaey sé sizt
minna en var i Heklugosinu.
Oskufallið úr Heimaey hefur hins
vegar verið litið hverju sinni,
miðað við öskuna, sem féll úr
Heklu, en er ekki siður hættulegt,
þar sem endurtekið öskufall
mengar svæðið hvað eftir annað.
Flúormagn hefur einnig verið
mælt i úrkomuvatni og úr pollum
og skurðum: Á veður-
athugunarstöðinni á Hellu á
Rangárvöllum, hefur flúor i
úrkomu mælzt frá 0.13 i 7.8. En i
pollum hefur mælzt 4.6 partar
flúor.
Flúormagn i ösku virðist oft
vera meira, eftir þvi sem fjær
dregur gosstöðvunum. Þvi fin-
gerðari sem kornastærð ösk-
unnar er, þvi meira flúormagn er
i henni.
Sjáanleg einkenni flúoreitrunar
eru á gróðri á öskufallssvæðinu.
Sumar tegundir mosa eru dauðar
að ofan og fléttur hafa drepizt af
öskufalli. Sigrænar jurtir eins og
grenitré hafa skemmzt einkum
nálarnar á þeim hluta trjánna,
sem snýr að gosstöðvunum.
Halldór Pálsson, búnaðarmála-
stjóri, sagði, að reynslan frá
Heklugosinu 1970 sýndi, að veiki
hafi helzt komið i það fé, sem var
úti þegar öskufallið var hvað
mest... Var þá strax reynt að fá
bændur á öskufallssvæðinu til að
hafa fé i húsi og þeir, sem urðu
við þeim tilmælum sluppu bezt.
Er þvi rik ástæða til að beina þvi
til bænda að halda skepnum á
öskufallssvæðinu frá gróðri og
yfirborðsvatni i kyrrum pollum
og skurðum. Þeir bændur, sem
ekki höfðu góða húsvist, girtu
sumir kringum húsin og hleyptu
skepnunum ekki á beit, þótt þær
væru úti við.Gafstþetta ágætlega.
Páil A. Pálsson, yfirdýralæknir
sagði, að flúoreitrun væri tvenns
konar. Bráð eitrun og verða
skepnurnar þá daufar, lystar
lausar og máttlausar. Sérstak-
lega er ám, sem komnar eru
nærri burði, hætt við eitruninni.
Eitrunin getur einnig verið
hægfara og koma þá eitrunarein-
kennin ekki i ljós fyrr en löngu
eftir að flúorinn komst i skepn-
urnar. Safnast hann i bein og
tennur. Oft ber þá á helti áður en
beinhnútar myndast, en þeir
koma siðar. Þá fer að bera á
tannskemmdum og samtimis þvi
á skepnan erfitt með að nýta
fóðrið og veslast upp. Yfirdýra-
læknir sagði, að það bezta, sem
hægt er að gera fyrir skepnur,
sem fengið hafa flúoreitrun væri
að láta þær hafa nóg af stein-
efnum og bætiefnum.
Haldið verður áfram að taka
sýni af gróðri, vatni og ösku á
öskufallssvæðinu ogfylgztvel með
flúormagni ogbændumgefnar ráð-
leggingar um meðferð búfjár
meðan hættuástand varir. En
eins og nú er ástatt er bændum
eindregið ráðlagt að hleypa fé
ekki út fyrr en visindamennirnir
telja tryggt að eitrunarhættan sé
liðin hjá. —OÓ
nyir
bátar