Tíminn - 24.03.1973, Side 11
Laugardagur 24. marz 1973.
TÍMINN
11
um
rauninu
halda ferð sinni áfram i hrauninu.
Askan og hraunið er vel volgt,
nema þar sem mesta vatns-
kælingin hefur verið, og þar hefur
kælivatnið skolað lausri öskunni i
burtu, svo eftir er aðeins rautt
hraunið.
Menn voru niður-
dregnir
Fyrst i gærmorgun voru menn i
Eyjum frekar niðurdregnir, og
varla búnir að átta sig á
atburðum næturinnar. Uppgjafa-
hljóð var i mörgum fyrst i stað, en
þegar sólin fór að skina um
hádegið, hresstust menn, og
ræddu um það sin á milli hvað
væri nú til bragðs. Einir sjö
loðnubátar lónuðu úti fyrir nýja
landinu austast á Heimaey fyrst i
morgun, en um hádegisbilið mátti
sjá sjómenn koma i hópum upp á
umbrotasvæðið, og virða fyrir sér
hamfarir næturinnar.
Undanfarna daga, þegar
hraunið hefur verið að færa hvert
húsið á fætur öðru i kaf, virðist
sem það hafi bókstaflega slitið
sum húsin af grunnunum, og ýtt
þeim á undan sér áður en veggir
og þök brotnuðu niður. Timbur-
húsin hafa sum hver lagzt saman,
svona álika og þegar stigið er á
eldspýtustokk. önnur timburhús
hefur hraunknaturinn slitið i
sundur, og fært efri helminginn
töluvert úr stað. Þetta mátti t.d.
greinilega sjá á Heimagötu i gær,
þar sem helmingur af timburhúsi
var kominn næstum þvert yfir
götuna.
Samninga-
fundur
deilu-
aðila
í Khöfn
NTB—Kaupmannahöfn.— Samn-
ingafundur með aöilum i vinnu-
deilunni i Danmörku hófst kl. 3
siðdegis i gær að áeggjan Ankers
Jörgensen forsætisráðherra, sem
i gær bað sáttasemjara rikisins,
Sigurð Wechselmann, að gera
nýja sáttatilraun.
Ef samningagrundvöllur næst,
breiðast verkföll sennilega ekki
út meira en orðið er, en i gær var
óljóst, hvort von væri til þess.
Alvarleg áhrif af verkfallinu
eru farin að gera vart við sig. A
fimmtudagsmorgun stöðvuðust
vöruflutningar á aðaljárn-
brautarstöðinni i Kaupmanna-
höfn, og allir vöruflutningar til og
frá höfuðborginni. Tæknimenn
flugvalla og raforkuvera boðuðu
verkfall i annað sinn á fimmtu-
dagskvöld. En komi það i fram-
kvæmd 3. aprfl, svo sem boðað er,
verður ástandið mjög alvarlegt.
Siðari fréttir
Samningamenn voru vongóðir
að loknum fundinum i gær, þrátt
fyrir það, að daginn áður hefðu
þeir sætt sig við, að deilan yrði
löng. Gera þeir sér vonir um, að
deilan verði leyst i fyrsta lagi 1.
april eða i seinasta lagi þann 6.
Verkföllum verður þó ekki af-
lýst fyrr en sáttatillaga liggur
fyrir, en sáttasemjari getur nú
frestað frekari verkföllumi
a.m.k. 14 daga. Það merkir, að
ekki verður úr verkfallinu 3. april
hjá flugvallarafstöðvatækni-
mönnum.
Forseti tslands dr. Kristján Eldjárn kom til Heimaeyjar I gær, og hér er hann á gangi á syðri hafnargarðinum, en þar hefur hraunið hlaðist
upp eins og myndin sýnir. (Tímamyndir Kári)
Þessi mynd var tekin af Flakkaranum, og sér þarna yfir snævi þakinn bæinn.
Rendur á stofuveggjunum
sýna hæð vikurskaflanna
JAFNVEL þau hús i
Vestmannaeyjum, sem
hvorki hafa sligazt und-
an þunga gjallsins, er á
þau hefur hlaðizt, né
heldur orðið fyrir vatns-
skemmdum af þeim
sökum, að vatnspipur
hafi sprungið i frostum,
eru sum hver að
minnsta kosti mjög illa
leikin af raka.
Þar sem gjall liggur
hátt upp á veggi, hefur
raki siazt i gegn um þá i
rigningunum að undan-
förnu.
— Ég var i Eyjum á
dögunum, sagði ungur
maður, sem leit til Tim-
ans i gær, og fór inn i hús
föður mins i vestur-
bænum, og raunar fleiri
hús. Þar blasti þetta við.
Við gátum séð nákvæm-
lega á stofuveggjunum,
hve hátt vikurskaflarnir
náðu úti yfir, þvi að þar
voru rakarendur i sömu
hæð. Að þessu eru áreið-
anlega mikil brögð,
þannig að hús, sem i
fljótu bragði virðast heil
og óskemmd, hafa þegar
betur er að gáð orðið
fyrir miklum spjöllum.
KIRKJA - GRUNNSKÓLI
A FUNDI sinum 20. þ.m. sam-
þykkti menntamálanefnd þjóð-
kirkjunnar eftirfarandi:
„Menntamálanefnd þjóð-
kirkjunnar beinir þeim tilmælum
til háttvirts Alþingis, að það gefi
sér góðan tima til athugunar á
frumvarpi þvi til laga um grunn-
skóla, sem nú liggur fyrir. Telur
nefndin æskilegt, að skipuð verði
milliþinganefnd til þess að starfa
að athugun á frumvarpinu og
þeim afleiðingum, sem liklegt er,
að lögbinding þess hafi i för með
sér”.