Tíminn - 03.07.1973, Síða 4
4
TÍMINN
mtpoQfmmTr
Þriöjudagur 3. júli 1973.
Aðsetur fyrir tigna
gesti
Hótel Petersberg, sem er i út-
jaöri Bonn, var eitt sinn notað
sem dvalarstaður fyrir tigna
gesti, sem heimsóttu V.-Þýzka-
land. Nú hefur hótelið aftur ver-
ið tekið i notkun og enn er það
gert i sama skyni. Hótelið
stendur á hæð einni og má
greina bygginguna i talsverðri
fjarlægð. Arið 1970 höfðu Þjóð-
verjar hætt notkun þessarar
frægu byggingar. Þegar Lonid
Brézjnef lagði svo leið sina til
Þýzkalands nú nýlega sáu Þjóð-
verjar, að ekki var til heppilegri
staður i öllu landinu til að láta
flokksleiðtogann búa á en Hótel
Petersberg. A timabilinu frá
1954 og til 1970 gistu 40 erlendir
þjóðhöfðingjar þarna, þeirra á
meðal, Elisabet Englands-
drottning og Haile Selassie
keisari i EthiopiU|Sem áður hét
Abyssinia.
bönnuð. Fyrst um sinn, verður
aðeins fimmtungur farþega-
rýmisins frátekinn fyrir þá sem
reykja ekki, en ef nauðsynlegt
reynist verður það svæði stækk-
að.
Könnun var gerð á vegum
flugfélagsins á þvi hversu
margir farþegar reyktu meðan
á flugferð stæði. 1 ljós kom að
það gera 47% farþeganna, en
fullur þriðjungur lýsti þvi yfir,
að hann fyndi til óþæginda sakir
þess að samferðamenn þeirra
reyktu.
Áköf afbrýðisemi
75 ára italskur bóndi, Rosario
Guelterini, stakk nýlega sjötuga
eiginkonu sina með hnff, þannig
að hún hlaut bana af. Þetta
gerði hann vegna þess, að hann
frétti að hún hefði haldiö fram
hjá honumfyrir 34 árum sfðan.
,,Ég varð að drepa hana til að
varðveita heiður minn”, sagði
Gualterini, þegar lögreglan
kom og handtók hann. Eigin-
konan hafði skömmu áður trúað
honum fyrir þvi, að hún hefði
nokkrum sinnum haldið fram
hjá honum meðan hann gegndi
herþjónustu árið 1939.
>f)f)f)f)4-
)f)f)f)f4
Franskt verkfall
Leigubflstjórarnir, sem starfa á
Orly flugvelli i Paris fóru ný-
lega i stutt verkfall, þegar ung
ensk stúlka i topplausum bað-
fötum lagðist i sólbað á palli
nokkrum, sem vel var sjáanleg-
ur frá þeim stað, þar sem bil-
stjórarnir biða venjulega við-
skiptavina sinna. Leigubilstjór-
unum þótti sýnilega mikilvæg-
ara að njóta útsýnisins meðan
tækifærið gafst, heldur en að
keyra misskemmtilega farþega
i átt til miðborgarinnar. Far-
þegum var þvf neitað um akst-
ur, þar til stúlkan hafði sólað sig
að vild, en sólbaðið varði I rúm
an klukkutíma.
Reykingar á undan
holdi
— Brezka flugfélagið BEA
ætlar bráðlega að taka upp þann
háttinn aö skipta farþegaklefum
flugvéla sinna i tvennt, þannig
að reykingamenn verði að
kúldrast hver innan um annan,
en þeir sem lausir eru við sigar-
ettuþorstann geta fengið aö sitja
i sérstökum hluta farþegarým-
isins. A þessu svæði verður
hvers kyns reykingastarfsemi
)f)f)f)f)f)f
Dóna barnið
bjargaði hinu
Þegar Lesley Ridings, 29 ára
gömul ensk frú, horfir á h'nn
hrausta og glaða son sinn,
minnist hún harmleiks þess,
sem gerði henni mögulegt að
eignast hann. Fyrra barn
hennar, Angela litla, varð sem
sé að deyja, til að Richard yrði
heilbrigður. Hún var haldin svo-
nefndri „Tay Sachs-veiki”, en
börn með hana verða aldrei
meira en þriggja ára. örlögin
hafa hagað þvi einhvernveginn
þannig til ( að börn með þessa
veiki eru undurfalleg, með stór
augu löng augnhár og fallegar
brúnir. Þau eru kolluð „Kina-
dúkkur” Þegar Angela dó, gáfu
foreldrarnir hikandi leyfi til að
læknar fengju að taka úr henni
heilann og gera tilraunir með
hann. Þær heppnuðust á þann
veg, að hægt var að uppgötva
aðferð til aö ákveða strax á
fósturstigi, hvort barn er
„Kinadúkka”. Þess vegna upp-
götvaðist, að næsta barn frú
Ridings var eins.og fóstrinu var
eytt. En i þriðja sinn reyndust
sýnishorn neikvæð og svo fædd-
ist Richard. Angela litla hafði
ekki dáið til einskis.
V V? V ♦ F* t'* f -
— Þú slærð allt of fast, Þór!
DENNI
DÆMALAUSI
Mikið er þoka skemmtileg.
Meira að segja þú ert sæt i henni
Margrét.