Tíminn - 03.07.1973, Page 9

Tíminn - 03.07.1973, Page 9
Þri&judagur 3. júli 1973. TÍMINN 9 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsbiaðs Timans). Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i A&alstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasfmi 19523. Askriftagjaid 300 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 18 kr. eintakið. Blaðaprent h.f Sókn byggða stefnunnar Landsfundur Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn var á siðastl. vori, var óvenjulegur og eftirminnilegur að einu leyti. Aðalmálgagn; flokksins, Morgunblaðið, birti viðtal við all- marga landsfundarfulltrúa, sem voru búsettir utan Stór-Reykjavikur-svæðisins. Viðtölin fjölluðu einkum um framkvæmdir i heima- héruðum þeirra. Niðurstaða þeirra var einróma sú, að hvarvetna væru miklar fram- kvæmdir á döfinni og þvi viðast skortur á vinnuafli. Alveg sérstaklega vakti það athygli, að þeir töldu ibúðabyggingar vera með allra mesta móti. Það sýnir augljósan áhuga á, að fólk vill vera um kyrrt i heimahögum og að fólksstraumurinn er þvi að snúast við i þessum efnum. Þetta er næsta ólikt þeirri mynd, sem blasti hér við á siðasta kjörtimabili „viðreisnar- stjórnarinnar”. Þá var mikið atvinnuleysi á mörgum stöðum út um land. Þá voru þar litlar framkvæmdir i atvinnumálum. Alveg sérstak- lega voru ibúðabyggingar litlar. Þá lá áfram fólksstraumur til þéttbýlisstaðanna við Faxaflóa og jafnvel alla leið til útlanda. Með tilkomu núv. rikisstjórnar hefur þetta snúizt við. Hvarvetna út um land er nú fengizt við miklar atvinnuframkvæmdir. Ný og full- komin skip eru að koma. Miklar endurbætur eru gerðar á hraðfrystihúsum og öðrum fiskiðjuverum. útfærsla fiskveiðilögsögunnar skapar nýja trú á sjávarútveginn. Alveg sér- staklega eru þó framkvæmdir viðast miklar á sviði ibúðabygginga. Takist að halda þannig áfram, mun hefjast alveg nýr timi viðnáms og sóknar i sögu landsbyggðarinnar. í grein, sem Tómas Árnason birti nýlega hér i blaðinu, var greint frá stórauknum lán- veitingum Byggðasjóðs á siðastl. ári. Það segir hins vegar ekki nema litinn hluta sögunnar. Lánveitingar annarra framkvæmdasjóða, eins og fiskveiðasjóðs og stofnlánadeildar land- búnaðarins, hafa stóraukizt til framkvæmda utan Reykjanessvæðisins. Sama gildir um framlag til vegamála og er það skemmst að minna á hringveginn, Austurlandsáætlun, Norðurlandsáætlun og Djúpveginn. 1 raforku- málum sveitanna hefur verið hafin ný sókn. Þannig mætti lengi rekja þau algeru umskipti, sem hafa orðið i sambandi við málefni hinna dreifðu byggða. Þetta er að vissu leyti ekki nein ný saga. Þetta hefur alltaf gerzt, þegar Framsóknar- flokkurinn hefur farið með völd. Þá hefur byggðastefnan jafnan verið leidd til öndvegis. Aldrei hefur það verið ljósara en á árunum 1927-’31, þegar Framsóknarflokkurinn fór einn með stjórnina. Þá hélt Framsóknarflokkurinn einn uppi fána byggðastefnunnar. Nú hefur það ánægjulega gerzt, að fleiri flokkar viðurkenna hana i orði og jafnvel Heimdellingar ferðast um landið til að boða ágæti hennar. En reynslan er ólygnust i þessum efnum eins og öðrum. Hún sýnir og sannar, að byggðastefnan blómgast bezt, þegar Framsóknarflokkurinn heldur um stjórnvölinn. Þ.Þ. Þórarinn Þórarinsson: Vill Mbl. ekki lóta kæra Breta fyrir órós? Beöið eftir Nato Morgunblaðið hefur undanfarið gert það að umræðuefni, að rikisstjórnin hefur enn ekki kært Breta fyrir hernaðarlega innrás þeirra i fiskveiðilögsögu íslands. Blaðið veit þó vel, hvað þessum drætti veldur. Sú leið var valin, að reyna fyrst á, hvort Nato fengi þvi áorkað, að Bretar kölluðu herskipin burtu, og láta nægja á meðan þá orð- sendingu til Oryggis- ráösins, að ísland áskildi sér rétt til að taka þetta mál upp siöar á vettvangi þess. Hörð málsókn á vettvangi Sameinuðu þjóðanna gæti orðið til þess að torvelda starf Nato meðan það ynni að þvi, að fá Breta til að fara á brott með herskipin. Til viðbótar þessu hefur svo undirritaður bent á, að þótt málskot til öryggis- ráðsins gæti haft verulega áróðursþýðingu og þvi ætti ekki að sleppa sliku tækifæri, ef deilan leystist ekki, þá gæti tsland ekki vænzt jákvæðrar niðurstöðu hjá ráðinu, þar sem Bretar myndu beita neitunarvaldi til að fella allar tillögur, sem þeir teldu ganga gegn sér. Slikt væri i fullu samræmi við það, sem stórveldin, sem hafa neitunarvald, hafa alltaf áður gert og væri sizt að vænta þess, að Bretar reyndust öðrum betri i þessum efnum. 27. greinin Af hálfu Mbl. hefur þessu verið mótmælt og það máli sinu til áréttingar vitnaö i 27. grein sátttmála Sameinuðu þjóðanna, þar sem segir um atkvæðagreíðslur. i öryggis- ráðinu, að i ákvöröunum mála, sem nefnd séu i VI. kafla, skuli deiluaðili sitja hjá við atkvæða- greiðslu.Þetta fullyrðir Mbl., þótt ritstjórar þeirra viti vafalaust, að I — fyrsta lagi hefur þetta ákvæði aldrei orðið raunhæft gagnvart fimmveldunum, sem hafa neitunarvald i öryggis- ráðinu, og i — ööru lagi heyrir það ótvirætt undir VII. kafla sáttmála Sameinuðu þjóðanna, þegar riki er kært fyrir innrás og þess krafizt, að það dragi herafla sinn i burtu. Skal nú þetta rakið nokkru nánar. Sáttagerð í frið- samlegri deilu VI. kaflinn, sem Mbl. vitnar til, fjallar um meðferð deilumála, sem ekki hafa leitt til vopnaðrar ihlutunar eða árekstra, en kynnu að geta gert það. Samkvæmt honum er ekki kært til öryggisráðsins, heldur er „hverjum meðlima hinna Sameinuðu þjóða heimilt að vekja athygli öryggisráðsins eða Allsherjarþingsins á hverju sliku deilumáli eða vandamáli”. (35. grein ). Afskipti öryggisráðsins af sliku máli eru ákveðin i 36. grein og skulu þau fólgin i þvi, að ráðinu er heimilt ,,að mæla með hæfilegum aðgerðum eða aðferðum til leiðréttingar á deilunni eða vandamálinu”. Hér er nánast sagt um sáttastarf að ræða i deilum, sem enn eru friðsamlegar eða hafa ekki leitttilvopnaviðskipta. Þvi er öryggisráðinu ekki gefiðneitt vald samkvæmt þessum kafla. Það getur t.d. ekki samkvæmt honum mælt svo fyrir, að Bretar skuli fara burtu með herskipin úr fisk- veiðilögsögunni. Þrátt fyrir það, þótt öryggisráðið sé valdalaust samkvæmt þessum kafla og geti aðeins mælt með vissum aðgerðum eða aðferðum, hafa fimmveldin óvéfengt og óátalið haft að engu ákvæði 27. greinar um hjásetu deilu- aðila í málum, sem falla undir þennan kafla. Greini- legasta dæmið um þetta er Panamamálið, sem öryggis- ráðið fjallaði um á siöastl. vetri. Panamamálið Panama-málið er þannig til komið, að 1903 var gerður samningur milli Bandarikj- anna og Panama, þar sem Bandarikjunum var veittur til eilifðar (perpetuity) umráðaréttur á allstóru landsvæði meðfram Panamaskurðinum. Stjórn Panama hefur á siðari áratugum réttilega talið þennan samning skerðingu á sjálfstæði sinu og óskað eftir nýjum samningi. Arið 1964 lýstu bæði rikin yfir þvi, að þau vildu leysa þetta ágreiningsmál með nýjum samningum og hófust viðræður samkvæmt þvi. Þessum viðræðum var svo langt komið 1967, að búið var að ganga frá uppkasti að þremur nýjum samningum, sem áttu að leysa samning- inn frá 1903 af hólmi. Þegar til undirskriftar kom, taldi Panama-stjórn þessi upp- köst óaðgengileg og varð þvi ekkert úr staðfestingu þeirra. Jafnframt fór Panama- stjórn fram á nýjar viðræður og hófust þær 1971. I þeim hefur enn ekki miðað neitt i samkomulagsátt. Af þeim ástæðum fengu Suður- Amerikurikin það samþykkt i öryggisráðinu 2. febrúar i vetur, að það héldi sérstakan fund i Panama og var tilgangurinn með þvi, að ræða þar sérstaklega þetta deilumál Panama og Banda- rikjanna. Bandarikin voru mótfallin þessu fundarhaldi I Panama, en gátu ekki að gert, þvi að neitunarvaldið gildir ekki, þegar um er að ræða fundarsköp, eða önnur formleg störf ráðsins. Bandarikin beittu neitunarva Idinu Eins og Suður-Ameriku- rikin höfðu fyrirhugaö, varð Panamamálið aðalmálið á Panamafundi öryggis- ráðsins. Atta riki báru fram tillögu, þar sem lýst var ánægju yfir þvi, að bæði Bandarikin og Panama höfðu lýst sig fús til viðræðna um nýja samninga, sem tryggðu til fulls yfirráð Panama yfir landi sinu. 1 framhaldi af þvi skoraði ráðið á bæði þessi riki aö halda viðræðunum áfram i anda vináttu, gagnkvæmrar virðingar og samvinnu og gera tafarlaust nýjan samn- ing, sem leysti deilu þeirra. Hér var ekki um fyrirmæli ráðsins að ræða, heldur tilmæli eða áskorun samkv. 36. grein VI. kafla. Mál þetta heyrði eins augljóslega undir VI. kafla sáttmála Sameinuðu þjóð- anna og verða má. Þar sem Bandarikin voru annar deiluaðilinn, hefðu þau átt að sitja hjá, ef þau hefðu talið að hjásetuákvæði 27. greinar næði til þeirra. Þau gerðu það ekki, heldur greiddu atkvæði móti tillög- unni, eitt allra rikja i öryggisráðinu. Þessu var ekki mótmælt, enda hefur sú hefö skapazt, að fimmveldin sitji ekki hjá i slikum deilu- málum, sem snerta þau. Til- lagan náði þvi ekki formlegu samþykki, þótt 13 af 15 rikjunum i öryggisráðinu greiddu henni atkvæði. Mót- atkvæði sitt byggðu Bandarikin á þvi, að blærinn á tillögunni væri hliðhollari Panama en Bandarikjunum. Hver trúir þvi, að Bretar myndu ekki nota sér þetta fordæmi Bandarikjanna eða önnur slik fordæmi, ef samþykkja ætti tillögu, sem þeir teldu óhliðholla sér, eins og t.d. að þeir væru hvattir til að kalla herskipin burtu, ef þeir ætluðu ekki að gera það á annað borð? Formdeila Morgunblaðið reynir, máli sinu til stuðnings, að vitna i ályktun, sem var samþykkt á Panamafundinum, þar sem þrjú af fimmveldunum sátu hjá. Tillaga {iessi fjallaði um viðleitni erlends fjármálavalds til að beita þvingunaraðgerðum. Til- lagan beindist ekki gegn neinu sérstöku riki eða fyrir- tækjum. Hún snerti þannig ekki neitt hjásetuákvæði 27. greinar um deiluaðila. Tillagan var mjög óljós og óákvæðin, eins og oft er um sambræðslutillögur á vett- vangi S.Þ., en Suöur- Amerikurikin töldu heldur skárra fyrir sig, að hún yrði samþykkt eftir að Panama- tillagan var fallin. Stórveldin þrjú, sem sátu hjá við at- kvæðagreiðsluna, þ.e. Frakkland, Bretland og Bandarikin, töldu sig ekki efnislega ósamþykk tillög- unni, en hins vegar heyrðu efnahagsmálin, sem hún fjallaði um, frekar undir Efnahagsráðið og Alls- herjarþingið en öryggis- ráðið. Hjáseta þeirra var þannig byggð á formlegum - astæðum, en ekki efnis- legum. Að vissu leyti hefði það verið eðlileg afstaða hjá þeim, að láta fara fram at- kvæðagreiðslu um, hvort til- lagan ætti að koma til at- kvæða, þar sem hún heyrði ekki undir verksvið öryggis- ráðsins. Mótatkvæöi þeirra þriggja við slika atkvæða- greiðslu, hefði þó ekki breytt neinu, þar sem skýrt er tekið fram i 2. málslið 27. greinar, að við atkvæðagreiðslur um formleg efni eins og fundar- sköp gildi neitunarvaldið ekki. Fimmveldin geta þvi aldrei hindrað að mál sé tekið fyrir eða tillaga látin koma til atkvæða, ef meiri- hluti er fyrir þvi. Meðferð kærumáls Annars skiptir hjásetu- ákvæði 27. greinar um deilu- aðila ekki máli i sambandi við innrás Breta i fiskveiði- lögsöguna. Ef Islendingar taka málið upp á vettvangi öryggisráðsins, þá hlýtur það að gerast með þeim hætti, að þeir kæri Breta fyrir árás og krefjist þess, aö þeir fari tafarlaust burtu með herskipin úr fiskveiði- lögsögunni. Slik krafa og kæra fellur hiklaust undir 39. grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna, en hún er fyrsta greinin i VII. kafla, en hann fjallar um „aðgeröir vegna ófriðarhættu, friðrofa eða árása.” Samkvæmt þessari grein, ákveður öryggisráðið i fyrsta lagi, þegar kæra um árás hefur borizt, hvort um árás sé að ræða, og svo i öðru lagi i framhaldi af þvi, hvaða fyrirskipanirskuligefa, t.d. i þessu tilfelli, hvort skipa eigi brezku herskipunum aö fara úr fiskveiðilögsögunni. Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.