Tíminn - 31.07.1973, Síða 20
20
TÍMINN
Þriöjudagur 31. júli 1973.
Forn-
leifa-
fræð-
ingar að
störfum
TíMINN fylgdist með því,
þegar tekin var upp
vikingaa Idaröxin, sem
nýlega fannst í Reykjavík.
Þessar myndir gefa ofur-
litla innsýn í starfshætti
fornleifafræðinganna og
sýna, hvert nákvæmnis- og
þolinmæðisverk slíkar
rannsóknir eru — þar
verður ekki hlaupið að
nokkrum hlut. En þannig
verður þetta að vera, ef
rannsóknin á að koma að
gagni. Þó er sá þáttur rann-
sóknanna, sem hér er
sýndur, einungis lítill hluti
þess sem gera verður, því
að hluturinn sem slíkur
hefur auðvitað minnst gildi
— það er sú saga sem hann
hefur að segja okkur af lífi
og störfum forvera okkar í
landinu, sem sótzt er eftir,
og hún fæst ekki nema með
frekari rannsóknum.
(Texti: HHJ)
8 Ljósm.: M.S.)
Öxin lá að hálfu hulin undir vænu hellublaði, svo að Guðmundur Ólafsson
varð að taka á honum stóra sinum.
Þá var að hreinsa alla mold frá öxinni af mikilli varkárni, þvi að öxin var
öll bólgin og brunnin af ryði og mátti þess vegna ekki við hnjaski. í slikum
tilvikum beitir fornleifafræðingurinn finum sköfum og burstum.
Hér er búið að bursta burtu hverja moldarörðu, en þá er eftir að mæla,
teikna og ljósmynda, áður en hægt er að hreyfa öxina.