Tíminn - 31.07.1973, Síða 23
Þriöjudagur 31. júli 1973.
TíÍVÍÍNN
23
Myndin er tekin af byrjunarfram-
kvæmdum viö annan áfanga húss
verkfræöi- og raunvisindadeilar-
innar. Fyrsti áfanginn sést á
myndinni, en þar er aöstaöa til
kennslu i eölis- og efnafræöi.
Timamynd Gunnar.
Leiðrétting
1 grein minni, Þjórsárdalur —
land draums og ævintýris, sem
birtist i ,,ferðablaði” Timans 28.
júli, varð slæm prentvilla, þar
sem ég tók upp orðrétt úr grein
Jóns Helgasonar i Kaupmanna-
höfn, Gauks sága Randilssonar,
— og er prófessorinn hér með
beðinn velvirðingar á þessu. Rétt
er málsgreinin svona:
,,Það var af einskærri hendingu
að þeim erþettaritar varð litið á
hana i þesskonar Ijósbirtu sem
skýrast sýndi atriðisorðin, en sið-
an óvandara að fika sig frá þeim
til hinna.”
Þvi má' svo bæta við til frekari
áréttingar, að sú uppskrift af
Gauks sögu Trandilssonar, sem
próf. Jón Helgason talar um i
þessari grein, var aldrei gerð.
Gauks saga komst aldrei inn i
Möðruvallabók — og þjóðin varð
einni Islendinga-sögu fátækari.
—VS.
Annar áfangi verkfræði-
deildarhússins
NÚ eru hafnar framkvæmdir við
byggingu annars áfanga húss
verkfræði- og raunvisindadeildar
Háskóla Islands, sem mun standa
við Lóugötuna. Fyrsti hluti húss-
ins hefur nú verið i notkun i tvö
ár, en þar eru aðallega stofur
o Víðivangur
við 70 ára aldurinn, að kurvan
stigur aftur.
(Þessar tölur hef ég leyft
mér að taka úr timaritinu
N.M. maí 1972, úr grein eftir
prof. Mogens Andreasen).
Þetta táknar þaö, að hættan
á þvi, aö lenda f umferðarslys-
um, er mest á þvi aldurs-
skeiði, sem hæfni sú, er talin
vera þýðingarmest við á-
byrgðarmikil störf, eins og
akstur bifreiða i nútima um-
ferð, er i hámarki, en það er
likamshreysti og viðbragðs-
flýtir. Erfitt er að skýra þetta,
eða gæti verið eitthvert sam-
band á milli hraða ökutækis og
slysanna? — TK.
fyrireðlis- og efnafræðikennslu. í
þessum nýja áfanga verða
kennslustofur, aðstaða fyrir
kennara og lesstofur fyrir stú-
denta.
Samkvæmt upphaflegri áætlun
átti annar áfanginn að vera
tilbúinn til notkunar haustið 1974,
en þegar er fyrirsjáanlegt að sú
áætlun mun ekki standast, og er
Leiðrétting
FJÓRAR villur hafa orðið i grein-
inni um ættingjamótið á Ingjalds-
sandi á dögunum.
1 fyrsta lagi er Jón H. Guð-
mundsson skólastjóri sagður
tendasonur Guðmundar Einars-
sonar á Brekku, en er einn sona
hans. 1 öðru lagi fluttist systirin,
sem bjó i Álfadal til Flateyrar, en
ekki Þingeyrar. 1 þriðja lagi er
alnafni ættföðurins, Guðmundur
Einarsson, sonarsonur Guð-
mundu Guðmundsdóttur. I
fjórða lagi heitir bróðirinn, sem
ekki var vestra, Ragnar, en ekki
Arni.
liklegt að verkinu seinki um eitt
ár.
Þriðji áfangi húsins verður svo
tengiálma milli fyrstu tveggja
áfanganna og verða stórar fyrir-
lestrastofur i þeirri álmu. Ekki
hefur verið tekin ákvörðun um,
hvænær hafizt verður handa við
þriðja áfangann. —gj.
© Gamla fólkið
sjúklingum, og þar að auki 140 á
sérstökum geðveilustofnunum og
drykkjumannahælum, og um 230
rými á dvalarheimilum aldraðs
fólks.
„Framkvæmdir eru miklar á
nær öllum sviðum”, segir siðan
um þetta i Heimilispóstinum, ,,en
bygging elliheimila og
hjúkrunarheimila — hvað um
þær. Við þurfum fleiri banka-
byggingar, fleiri skóla, fleiri or-
lofshús, iþróttahús. Við getum
svo margt, en fyrirhyggjan um
framtið okkar i ellinni — það fer
nokkuð litið fyrir henni hjá öllum
þorra manna.”
Það kemur þvi á óvart, er segir
i greinarlok, að „beiðnir þurfandi
fólks um vistpláss berast nær
daglega, stundum margar á
dag”, en þeim er örðugt að sinna
eins og i pottinn er búið.
Goðafoss Eimskipafélags tslands kom til Reykjavíkur á föstudagskvöld frá Bandarfkjunum Skipið var
fullhlaðið vörum, eins og þessi mynd G.E. sýnir og voru 77 bflar meðal varnings, bæði nýir og notaðir.
Þrátt fyrir að nokkrir bilanna stæðu óvarðir á dekki — meö leyfi eigenda — komust þeir allir heilir til
lands — og skipverjinn, sem sóttur var á haf út, er óðum að hressast eftir vel heppnaðan uppskurö.
SEVYLOR
BÁTAR
fyrirliggjandi og
væntanlegir
í sumarferöir
unnai óZfozetibbon h.f.
Suöurlandsbraut 16