Fréttablaðið - 24.08.2004, Side 8
8 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
NORÐURLÖND Lægsta verðbólgan
innan Evrópusambandsríkja er
meðal þeirra Norðurlanda sem
þar eru meðlimir samkvæmt nýj-
ustu tölum þar um. Meðal sam-
bandsríkja lækkaði verðbólga í
júlí niður í 2,3 prósent frá 2,4 pró-
sentum í júní. Reyndist verðbólg-
an mest í Slóvakíu og Ungverja-
landi en minnst í Finnlandi, Dan-
mörku, Svíþjóð og Hollandi. Verð-
hækkanir á tímabilinu júlí 2002 til
júlí 2003 í þeim Norðurlöndum
sem ekki eiga aðild að Evrópu-
sambandinu, Íslandi og Noregi,
reyndist verðbólga mun meiri, 1,6
prósent í Noregi og 2,8 prósent á
Íslandi.
Allar Norðurlandaþjóðirnar
nema Ísland eru þar með vel
undir meðallagi hvort sem miðað
er við Evrópusambandssvæðið
eða evrusvæðið. Tekið er sérstakt
tillit til þess að á Norðurlöndunum
virðist ganga sérstaklega vel að
halda vöruverði í skefjum og þar
með viðhalda almennum kaup-
mætti.
Í gær kynnti KB banki lán sem
ætluð eru viðskiptavinum bank-
ans og bera 4,4 prósenta vexti.
Bankinn seilist með þessu inn í
þann hluta lána heimilanna sem
hingað til hafa verið á könnu
Íbúðalánasjóðs. Vextirnir eru 0,1
prósenti lægri en vextir Íbúða-
lánasjóðs í síðasta lánaflokki.
Með þessum lánum má búast
við að samkeppni um lán til ein-
staklinga harðni til muna.
Helena Jónsdóttir, forstöðu-
maður sölu- og þróunardeildar
bankans segir markmiðið að bjóða
viðskiptavinum betri kjör en áður
hafi þekkst og verða leiðandi í
fjármögnun íbúðarhúsnæðis.
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri bankans, segir lánin frá-
brugðin lánum Íbúðalánasjóðs að
því leyti að ekki verði sett skilyrði
um að lánin séu notuð til íbúða-
kaupa. Lánin miðast við 80 pró-
sent af verðmæti eignar og ekkert
hámark er á lánunum. „Við erum
að uppfylla loforð
við sameiningu
bankanna um að
v i ð s k i p t a v i n i r
muni njóta stærð-
ar bankans. Útrás
bankans og vel-
gengni erlendis
gerir okkur kleift
að keppa við
Íbúðalánasjóð, án
þess að bankinn
njóti ríkisábyrgðar.“ Hann segir
bankann munu fjármagna lánin
með innlendri skuldabréfaútgáfu
auk innlána. „Við vorum fyrst til
að bjóða skuldabréf í íslenskum
krónum á erlendum markaði sem
ég tel þá aðgerð bankans sem
bætt hefur lífskjör mest hér á
landi,“ segir Hreiðar Már.
Lánshlutfallið er 80 prósent á
höfuðborgarsvæðinu og á Akur-
eyri, en 60 prósent annars staðar.
Friðrik S. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptabanka-
sviðs bankans, segir lánin verða
að taka mið af stöðu markaðar á
hverjum stað.
Lánin eru annað hvort til 25 eða
40 ára og vextir eru verðtryggðir
og fastir. Viðskiptavinur sem
breytir lánastokki upp á 10,5 millj-
ónir þar sem meirihluti lána er til
25 ára, léttir greiðslubyrði sína um
34.500 á mánuði. Dæmið er ekki
fyllilega samanburðarhæft, hreinn
vaxtasparnaður á ári nemur 122
þúsund krónum, hvort sem um 25
eða 40 ára lán er að ræða. KB
banki telur ekki óeðlilegt að íbúða-
lán séu til 40 ára, enda sé endingar-
tími húsnæðis langur.
Erlendis er þekkt að húsnæðis-
eigendur endurfjármagni lán sín
þegar skilyrði eru góð á lána-
markaði. KB banki setur skilyrði
um viðskipti við bankann fyrir
þessum kjörum. Aðrir geta tekið
slík lán en í þeim tilvikum eru
vextirnir hærri eða 5,3 prósent.
haflidi@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Og Vodafone og Orku-
veita Reykjavíkur hafa undirritað
viljayfirlýsingu um að félögin eigi
samstarf um ljósleiðaravæðingu
heimila og fyrirtækja á höfuð-
borgarsvæðinu.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni
á Og Vodafone að einbeita sér að
markaðssetningu, vöruþróun og
þjónustu við viðskiptavini, meðan
Orkuveitan einbeitir sér að rekstri
og uppbyggingu ljósleiðaranets-
ins. Stefnt er að því að Orkuveitan
starfi á heildsölusviði en Og Voda-
fone á sviði smásölu. Samstarfið
felur í sér að Og Vodafone eignast
hlut Orkuveitunnar í Línu. neti og
Orkuveitan tekur yfir ljósleiðara-
lagnir Og Vodafone.
Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitunnar, segir þetta
áframhald á samstarfi sem fyrir-
tækin hafa átt í allt frá því að Ís-
landssími var stofnaður. Með
þessu sé Orkuveitan ekki að
keppa um viðskiptavini í smásölu
og haldi sig við heildsöluna.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, fagnar því að Orkuveitan sé
búin að losa sig við Línu.net.
„Ódýrast hefði verið fyrir borgar-
búa hefði það verið gert fyrr,“
segir hann. ■
KJARAMÁL „Ekkert sérstakt,“ gerð-
ist á tveggja klukkustunda fundi
sjómanna og útvegsmanna í gær,
segir Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasam-
bands Íslands.
Hólmgeir segir aðeins hafa
verið um vinnufund að ræða og
gögn um mönnun á skipum skoð-
uð. Deilendur standi í sömu spor-
um og fyrir fundinn.
Samningur milli sjómanna og
útvegsmanna hefur verið laus frá
áramótum. Sjávarútvegsráðherra
hefur boðað að hann komi ekki að
deilunni með lagasetningu.
Næsti fundur er boðaður hjá
ríkissáttasemjara um miðja næstu
viku. ■
25 þúsundum slátrað:
Sláturtíð
í nánd
HÖFN Stefnt er að því að slátra um
25 þúsund fjár í sláturhúsinu á
Höfn í haust. Það er litlu minna en
síðasta haust.
Einar Karlsson sláturhússtjóri
segir að ekki hafi orðið að sumar-
slátrun þar sem ekki nægilega
margir dilkar hefðu fengist til þess
að farið yrði af stað með slátrun.
Einar er ekki bjartsýnn á að vel
gangi að fá mannskap í sláturhúsið
og verða eins og áður nokkrir Bret-
ar við vinnu í sláturhúsunum í
haust.
Sláturtíðin hefst um 20. septem-
ber. Þetta kemur fram á vefritinu
Hornafjordur.is. ■
SVONA ERUM VIÐ
TÖLVUNÁM ELDRI BORGARA – BYRJENDUR
Hefst mánudaginn 6. sept kl. 13:00, ekki í janúar eins og
misritaðist í bæklingi sem fylgir blaðinu í dag.
TÖLVUNÁM ELDRI BORGARA - FRAMHALD
Hefst þriðjudaginn 7. sept kl. 13:00, ekki í janúar eins og
misritaðist í bæklingi sem fylgir blaðinu í dag.
Námskrá skólans fylgir
Fréttablaðinu í dag!
10
1995 1998 2001 2003
20
30
40
50
60 milljónir
LÁNVEITINGAR TIL HÆNSNA-
HÚSA FRÁ LÁNASJÓÐI LAND-
BÚNAÐARINS 1995–2003
Heimild: Lánasjóður landbúnaðarins
BÖRKUR
Síldveiðiskipið Börkur í höfn.
Kjör sjómanna:
Í sömu sporum
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR
Samkvæmt viljayfirlýsingu tekur Og Voda-
fone yfir hlut Orkuveitunnar í Línu.neti og
Orkuveitan tekur yfir ljósleiðaralagnir Og
Vodafone.
Orkuveita Reykjavíkur:
Losar sig við Línu.net
HARÐNANDI SAMKEPPNI
KB banki boðar harðnandi samkeppni í lánum til einstaklinga. Bankinn býður nú lægri vexti en Íbúðalánasjóður. Vextirnir eru fastir eins
og vextir Íbúðalánasjóðs. Lánin eru gegn fyrsta veðrétti í íbúðarhúsnæði en ekki er skilyrði að lánin séu notuð til íbúðakaupa.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
,,Við vor-
um fyrst til
að bjóða
skuldabréf
í íslenskum
krónum á
erlendum
markaði.
Bankalán í keppni
við Íbúðalánasjóð
KB banki kynnti í gær lán með fyrsta veðrétti í íbúð með 4,4 prósenta
vöxtum. Bankinn segist vera að standa við loforð um að viðskiptavinir njóti
stærðar bankans. Vextirnir eru 0,1 prósenti lægri en vextir Íbúðalánasjóðs.
Norðurlöndin í Evrópusambandinu:
Lægsta verðbólgan
MATVÆLI
Öll Norðurlöndunum hefur tekist vel að
viðhalda kaupmætti þegna sinna undan-
farin misseri.