Fréttablaðið - 24.08.2004, Síða 10
10 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
DÝFINGAR Á ÓLYMPÍULEIKUM
Ástralinn Robert Newbery keppti í gær í
undankeppni dýfinga karla af þriggja
metra bretti á Ólympíuleikunum í Aþenu í
Grikklandi.
Talsmaður norður-kóreska utanríkisráðuneytisins:
Bush líkt við Hitler og
sagður pólitískur auli
BANDARÍKIN, AP Talsmaður norður-
kóreska utanríkisráðuneytisins
segir að George W. Bush Banda-
ríkjaforseti sé auli og svo mikill
harðstjóri að Hitler falli jafnvel
í skuggann af honum.
Talsmaðurinn lét þessi orð
falla eftir ræðu Bush í síðustu
viku þar sem Bandaríkjaforseti
líkti Kim Jong-il, einræðisherra
í Norður-Kóreu, við harðstjóra.
„Hann er pólítískur auli með
greindarvísitölu grunnskóla-
barns,“ sagði talsmaðurinn í við-
tali á KCNA, norður-kóresku
ríkisfréttastofunni.
Á sama tíma og Bush lýsti
Kim Jong-il sem harðstjóra
þrýsti hann á Norður-Kórea að
leggja til hliðar kjarnorkuáætl-
un sína. Eitthvað virðist hafa
legið illa á talsmanninum því
auk þess að neita ásökunum
Bandaríkjamanna um að Norð-
ur-Kórea héldi kjarnorkuáætlun
sinni til streitu, hótaði hann því
að landið myndi efla heimavarn-
ir sínar þúsundfalt. Talsmaður
norður-kóreska utanríkisráðu-
neytisins sagði að Norður-
Kóreumenn myndu ekki mæta á
undirbúningsfund fyrir viðræð-
ur sex ríkja um kjarnorkuáætl-
un landsins. ■
KÁRAHNJÚKAR
Ekki hefur verið skrifað undir hliðarsamn-
ing sem felur í sér ákvæði um ákveðnar
bónusgreiðslur til handa starfsmönnum.
Bónusgreiðslur:
Þrýstingur ber
ekki árangur
KJARAMÁL „Það hefur ekki tekist á
koma á fundi varðandi þetta mál
enn sem komið er,“ segir Oddur
Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður
samráðsnefndar verkalýðsfélag-
anna að Kárahnjúkum.
Frá því að virkjunarsamningar
voru undirritaðir hefur staðið til
að skrifa undir annan hliðarsamn-
ing sem felur í sér ákvæði um
ákveðnar bónusgreiðslur til
handa starfsmönnum ef það tekst
að stytta framkvæmdatímann en
Impregilo hefur enn sem komið er
ekki sýnt áhuga á að koma að
samningaborði vegna þessa.
„Við höfum þrýst á um þetta at-
riði en undirtektir hafa verið eng-
ar í sumar og enginn fundur boð-
aður.“ ■
SÍLDARVINNSLAN Í NESKAUPSTAÐ
Um 300 milljóna króna hagnaður varð á
rekstrinum fyrstu sex mánuði ársins.
Síldarvinnslan:
Hagnaður um
300 milljónir
SJÁVARÚTVEGUR Hagnaður af
rekstri Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað nam 302 milljónum króna
á fyrri hluta þessa árs en áætlanir
gerðu ráð fyrir 525 milljóna króna
hagnaði á árinu öllu. Í þeim áætl-
unum var gert ráð fyrir góðri
kolmunnaveiði en hún hefur verið
afar dræm að undanförnu. Hagn-
aður samstæðunnar fyrir skatta
reyndist 368 milljónir króna.
Hækkandi olíuverð hefur haft
mikil áhrif á reksturinn þetta árið
þar sem olíukaup eru jafnan einn
stærsti útgjaldaliður útgerða á
Íslandi. Hafa forsvarsmenn
áhyggjur af ört hækkandi heims-
markaðsverði en telja ekki tilefni
til endurskoðunar á uppgefinni
áætlun að svo stöddu. Hins vegar
séu kjarasamningar við hluta sjó-
manna enn lausir og komi til verk-
falls muni það enn fremur hafa
áhrif á rekstrarniðurstöðu félags-
ins. ■
Skinnastaðakirkja:
Kirkja
endurvígð
KIRKJA „Það var verið að endur-
nýja þessa 150 ára gömlu kirkju
en hún var færð í upprunalegt
horf og er núna eitt fallegasta
guðshús á Íslandi,“ sagði Jón Að-
alsteinn Baldvinsson, vígslubisk-
up á Hólum, eftir að hafa endur-
vígt Skinnastaðakirkju í Öxarfirði
í gær.
Jón Aðalsteinn segir venju að
endurvígja kirkjur þegar þær eru
gerðar upp frá grunni og nánast
allt sé nýtt. Endurbygging kirkj-
unnar hófst árið 2002 eftir nokk-
urra ára undirbúning. Skinnastað-
ir hafa verið kirkjustaður allt frá
upphafi kristni í landinu. Séra Jón
Ármann Gíslason er sóknarprest-
ur í Skinnastaðakirkju. ■
Bandarískur gísl í Írak:
Sleppt úr
haldi
BAGDAD, AP Bandaríska blaða-
manninum Micah Garen, sem var
rænt í Írak fyrir rúmri viku, var
sleppt úr haldi ræningjanna í
fyrradag. Garen ræddi við arab-
íska sjónvarpsstöð í gær og stað-
festi að sér hefði verið sleppt.
Aðstoðarmaður sjíaklerksins
Muqtada al-Sadr hafði skýrt frá
því skömmu áður að gíslinum
hefði verið sleppt.
Garen var tekinn í gíslingu 13.
ágúst þegar hann var á gangi
ásamt íröskum túlk á útimarkaði í
borginni Nasiriyah. Tveir borg-
aralega klæddir menn réðust á
þá.■
GEORGE W. BUSH
Talsmaður norður-kóreska utanríkisráðuneytisins hótaði því að Norður-Kórea myndi efla
heimavarnir sínar þúsundfalt.
Nýjar landnemabyggð-
ir á Vesturbakkanum
Ísraelsk yfirvöld ætla að reisa 500 nýbyggingar undir landnema á Vestur-
bakkanum. Ákvörðunin kemur í kjölfar stefnubreytingar Bandaríkja-
manna. Á næsta ári á smíði aðskilnaðarmúrsins að ljúka, ári á eftir áætlun.
JERÚSALEM, AP Stjórnvöld í Ísrael
tilkynntu í gær að þau munu
reisa rúmlega 500 byggingar á
Vesturbakkanum, til viðbótar
við þúsund nýbyggingar sem
einnig munu rísa í landnema-
byggðum. Þá kunngjörðu þau að
smíði aðskilnaðarmúrsins ljúki
ekki fyrr en árið 2005, ári á eft-
ir áætlun.
Tilkynningin kom í kjölfar
stefnubreytingar Bandaríkja-
manna varðandi landnemabyggð-
ir Ísraelsmanna, en landnám þeir-
ra brýtur í bága við alþjóðalög.
Nýbyggingarnar og aðskilnað-
armúrinn eru liðir í áætlun Ariels
Sharon, forsætisráðherra Ísrael,
að skilja Ísrael og Palestínu al-
gjörlega að. Hún kveður einnig á
um brotthvarf Ísraelsmanna frá
Gaza-ströndinni eftir ár. Banda-
ríkjamenn eru hlynntir brott-
hvarfinu en hafa hingað til ekki
viljað nýjar landnemabyggðir. Á
því hefur orðið breyting.
Palestínumenn eru ósáttir við
stefnubreytinguna og segja
hana ógna friði. Ahmed Quera,
forsætisráðherra Palestínu, sak-
ar Ísraela um að efna vísvitandi
til ófriðar. Landnemabyggðir
Ísraela á Vesturbakkanum og
Gaza-ströndinni ógna áætlunum
Palestínumanna um stofnun
sjálfstæðs ríkis. Ísraelsher her-
nam svæðin árið 1967 og hefur
stjórnað þeim æ síðan. Rúmlega
230 þúsund ísraelskir landnem-
ar búa þar núna, langflestir á
Vesturbakkanum.
Varnarmálaráðherra Ísraels
sagði í gær að tæplega hálfum
milljarði króna yrði varið í að
færa aðskilnaðarmúrinn í sam-
ræmi við úrskurð hæstaréttar
Ísraels frá því í júní. Dómurinn
sagði að á 30 kílómetra svæði
bryti múrinn í bága við mann-
réttinda- og alþjóðalög. Múrinn
verður því færður til á 60 kíló-
metra kafla. Sameinuðu þjóðirn-
ar hafa lýst múrinn í heild sinni
ólöglegan og farið fram á að
hann verði rifinn niður.
Fullbyggður verður múrinn
680 kílómetra langur, þegar er
búið að reisa um 200 kílómetra.
Múrinn veldur fjölda Palestínu-
manna miklum vandkvæðum
þar sem hann skilur fólk frá
vinnustöðum, skólum og ná-
grannabæjum. ■
BYGGINGAR RÍSA
Verkamenn vinna hörðum höndum við að reisa nýbyggingar undir ólöglegar byggðir ísrealskra landnema á Vesturbakkanum.