Fréttablaðið - 24.08.2004, Qupperneq 37
ÞRIÐJUDAGUR 24. ágúst 2004
es.xud.www
21:21 XUD
Sænsk hágæðarúm The
DUX® Bed
m a d e i n S w e d e n
„Áratuga reynsla á Íslandi“
DUXIANA
Háþróðaður svefnbúnaður
Ármúla 10 • 108 Reykjavík
Sími: 5689950
7007 XUD
ÓLYMPÍULEIKAR Bandaríkjamaðurinn
Justin Gatlin, sem sigraði í hund-
rað metra hlaupi á Ólympíuleikun-
um í Aþenu, hefur vakið mikla at-
hygli fyrir hógværa framkomu.
Gatlin hefur haldið sér niðri á jörð-
inni í stað þess að dásama sjálfan
sig eins og kollegar hans hafa jafn-
an gert eftir sigur á stórmótum.
„Ég vil vera góð fyrirmynd. Ég
er ekki að segja að einhver hafi
gert lítið úr íþróttinni en ég vil
sýna að það er til fullt af góðu fólki
sem keppir á leikunum,“ sagði
Gatlin. „Ég vildi líka sýna að góði
strákurinn gæti unnið.“
Gatlin hljóp hundrað metrana á
9.85 sekúndum, 0,01 sekúndu á
undan Portúgalanum Francis
Obikwelu og 0,02 sekúndum á und-
an Maurice Greene frá Bandaríkj-
unum.
Gatlin, sem er fljótasti maður
heims um þessar mundir, bætti sitt
persónulega met en hann hafði
best hlaupið á 9,92. ■
Bandaríkjamaðurinn Justin Gatlin frá New York:
Fljótasti maður heims
GULLIÐ Í HÖFN
Justin Gatlin kom fyrst-
ur í mark í hundrað
metra hlaupi karla á
Ólympíuleikunum í
Aþenu.
Ch a n t e l l eNewbery frá
Ástralíu er Ólympíu-
meistari kvenna í
dýfingum af tíu
metra palli.
Newbery var dyggi-
lega studd af lönd-
um sínum, sem
veifuðu fánum og kengúrum úr plas-
ti, henni til stuðnings. „Ég get varla
trúað hvernig þetta gekk fyrir sig allt
saman,“ sagði Newbery. Julie Kent,
þjálfari Newbery, sagði andartakið
mjög þýðingarmikið fyrir ástralskar
dýfingar.
Ekki er hægt aðsegja að Rúss-
neska fimleikakon-
an Svetlana Khork-
ina hafi endað feril-
inn með sóma á
Ólympíuleikunum.
Khorkina hafði
stefnt að því að næla sér í þriðja
Ólympíutitilinn í röð í greininni og
verða þar með fyrsta fimleikakonan til
að ná þeim árangri. En henni voru
mislagðar hendur og fór grátandi út
úr höllinni í Aþenu. Khorkina kenndi
dómurum um að vera hlutdrægir og
færa þar með Carly Patterson frá
Bandaríkjunum sigurinn. „Ég gerði allt
rétt. Samt voru dómararnir mér ekki
hliðhollir,“ sagði Khorkina.
Frændur okkar,Svíar, geta verið
stoltir af þrístökkvar-
anum Christian
Olsson. Hann stóð
uppi sem sigurveg-
ari í þrístökkskeppni
Ólympíuleikanna
um helgina. Olsson
stökk 17,70 metra og skaut Rómverj-
anum Marian Oprea ref fyrir rass sem
stökk 17,55 og átti ekki möguleika í
Svíann.
Söluhæsta fartölvan í Evrópu
ACER
tækni
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
WWW.SVAR.IS
tækni
FARTÖLVUR