Fréttablaðið - 24.08.2004, Side 46

Fréttablaðið - 24.08.2004, Side 46
„Ég hafði aldrei komið til Evrópu áður en ég kom til Íslands,“ segir Julianna Rose Mauriello sem leik- ur Sollu stirðu í sjónvarpsþáttun- um um Latabæ eða Stephanie í Lazytown eins og persónan kallast á bandarísku sjónvarpsstöðinni Nick Junior þar sem þættirnir eru sýndir um þessar mundir. „Það var snjór þegar ég kom til lands- ins í janúar en þá var líka snjór í New York þar sem ég bý og það sem ég tók fyrst eftir á Íslandi var tungumálið, sem mér fannst hljóma mjög erfitt.“ Er að læra íslensku Julianna elur nú manninn að mestu í stúdíói í Garðabænum þar sem unnið verður að upptökum á Lazytown þar til í lok desember. „Hanna Maja, sem sér um hár og förðun í Latabæ, er að kenna mér íslenskuna og ég stefni á að læra hana vel áður en ég fer aftur til Bandaríkjanna,“ segir Julianna. „Orðið „svona“ var það fyrsta sem ég lærði því fyrsta daginn minn voru Magnús Scheving og Hanna Maja að tala um gervið mitt. Þau stóðu fyrir framan mig, böðuðu út höndunum og endurtóku í sífellu, „svona“, „svona“ og „svona“ og að lokum varð ég að fá að vita hvað orðið þýddi.“ Julianna hefur greinilega eytt drjúgum tíma í förðunarherberg- inu því hún er farin að skilja ís- lenskuna ansi vel. „Þegar fólk spyr mig núna hvað ég segi gott í dag þá svara ég: „Ég er alveg þokkalega hress,“ segir Julianna sem er ekki viss um hvort blaða- maður vilji skrifa nýjasta orðið sem bæst hefur í orðaforðann. „Ég lærði síðast orðið rassgat. Ég segi það alltaf við hundinn minn því mér er sagt að það geti líka þýtt að hann sé algjört krútt.“ Audrey Hepburn í uppáhaldi Hundinn fékk Julianna í af- mælisgjöf á Íslandi. „Hundurinn heitir Audrey Hepburn því Audrey er fyrirmyndin mín og uppáhaldsleikkona,“ segir Juli- anna. „Ég átti afmæli í maí en mig langaði ekki í neitt sérstakt í af- mælisgjöf fyrir utan hund. Eldri systir mín var stödd á landinu og hún sagði mér að ég ætti ekki að gera mér of miklar vonir. Á af- mælisdaginn fórum við mamma svo út að borða með öllu sam- starfsfólkinu í Latabæ og ég fékk hamborgara sem er uppáhaldið mitt. Svo stóð Magnús Scheving allt í einu upp og hélt ræðu og sagði að það sem hópurinn ætlaði að gefa mér í afmælisgjöf hefði aldrei stigið fæti inn fyrir stúdíó- ið fyrr. Þá vissi ég að þau ætluðu að gefa mér hund.“ Þótt Julianna hafi fengið ham- borgara á afmælinu segist hún ekki borða jafnmikla óhollustu og Siggi sæti í Latabæ. „Ég borða einstaka sinnum nammi. En ég reyni oftast að borða hollt og æfi reglulega og dansa mikið.“ Hóf ferilinn á Broadway Samhliða venjulegu grunn- skólanámi í Bandaríkjunum hefur Julianna stundað nám í Pro- fessional Performance Art School þar sem hún leggur stund á leik- list, söng og dans en Julianna hóf ferilinn á Broadway. „Ég er með umboðsmann og fékk hlutverk í söngleiknum Oklahoma eftir að hafa farið í prufur. Mér finnst mjög gaman að vera á sviði og í sjónvarpi,“ en aðspurð um fram- tíðardraumana segir Julianna vonast til að leika í bíómyndum síðar meir. Það er ekki ólíklegt að sá draumur rætist því skólafélagar, vinir og fjölskylda eru nú þegar farin að fylgjast með Julianna í bandarísku sjónvarpi. Vinirnir dýrka Lazytown „Ég sakna oft vina minna og fjölskyldu en mamma, sem er með mér hér á Íslandi, hefur hjálpað mér mjög mikið. Hún styður mig í vinnunni og þegar ég sakna fólksins heima. Þau horfa nú á mig í sjónvarpinu og voru ótrúlega spennt þegar Latibær var frumsýndur. Vinir mínir dýrka þáttinn og ég hef fengið mörg email frá þeim þar sem þau lýsa ánægju sinni. Þau segjast æfa sig á morgnana fyrir framan sjónvarpið og dansa og teygja sig heima í stofu.“ Þegar Julianna heldur til New York í desember hefur Lazytown verið í sjónvarpinu um nokkra mánaða skeið. Julianna má því vænta þess að vera þekkt meðal jafnaldra sinna í Bandaríkjunum. „Það verður ábyggilega skrýtið að koma aftur heim en ég er líka mjög spennt yfir því.“ tora@frettabladid.is ■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 9.725 Í Hveragerði Kabbalah Ég er alveg þokkalega hress „Þetta er frábært tækifæri,“ segir leikkonan Aníta Briem en hún er nú stödd á Spáni þar sem hún leik- ur aðalhlutverk í nýrri kvikmynd sem ber heitið La Monja eða Nunnan. „Ég leik sautján ára bandaríska stelpu sem leggst í að rannsaka fortíð móður sinnar eft- ir að hún er drepin á dularfullan hátt,“ segir Aníta. „Móðirin hafði á sínum yngri árum verið í skóla á Barselóna og dóttirin heldur þangað en í Barselóna fer af stað undarleg atburðarás.“ Flestir meðleikarar Anítu eru spænskar kvikmyndastjörnur þar sem meirihluti myndarinnar ger- ist á Spáni. En kvikmyndin, sem er í leikstjórn hins spænska Luis de La Madrid, er leikin á ensku og framleidd með Bandaríkjamarkað í huga. Aníta Briem útskrifaðist frá breska leiklistarskólanum Royal Academy of Dramatic Art nú í júlí. Hún hefur unnið með um- boðsmanninum Jeromy Conway síðan í janúar og óhætt er að ful- lyrða að ferill hennar fer kröftule- ga af stað. Áður en Aníta hélt til Spánar lék hún aðalhlutverk í breskum sjónvarpsþætti sem ber heitið Doctor og verður sýndur á BBC um jólin. „Það var viku vinnutörn og mjög góð reynsla fyrir mig áður en mér var hent út í djúpu laugina hér á Spáni. Ég hef aðal- lega leikið á sviði og sjónvarp og kvikmyndir eru alveg ný reynsla. Ég er alin upp við að vinna fyrir mínu en hérna fær maður varla að halda á handtöskunni sinni sjálf- ur. Það er svolítið skrýtið að detta inn í svona stórt verkefni og venj- ast því að dekrað sé við mann áður en maður hefur á nokkurn hátt þurft að sanna sig. Það að vera innan um allt þetta klára fólk hvetur mann þó bara til að leggja sig allan fram og gera sitt besta.“ tora@frettabladid.is Aníta Briem í spænskri hrollvekju ANÍTA BRIEM Ferillinn fer vel af stað hjá þessari nýút- skrifuðu leikkonu. 30 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR … fær Ísleifur Þórhallsson fyrir að flytja gamla snillinginn Lou Reed til landsins en kappinn hélt eftirminnilega tónleika í Höllinni á föstudaginn. HRÓSIÐ SJÓNVARP LATIBÆR ■ Ungstjarnan Julianna Rose Mauriello unir sér vel á Íslandi. KVIKMYNDIR ANÍTA BRIEM ■ Hefur leikið í breskum sjónvarpsþætti sem sýndur verður á BBC um jólin og leikur nú aðalhlutverk í nýrri kvikmynd. JULIANNA ROSE MAURIELLO Leikur Stephanie í Latabæ. Hér er hún fyrir framan búningsherbergið sitt í stúdíó Latabæj- ar í Garðabænum, Gollywood Íslands. í dag Karlinn er farinn frá Kattakonunni og heimtar forræði yfir hundunum þeirra Lou Reed fór á Rómeó og Júlíu og gekk út í hléi Bæjarstjórnin í Bolungarvík hvetur íbúana til að njóta ásta 1 5 6 87 9 12 15 10 13 16 17 11 14 18 2 3 4 Lárétt:1bjór, 5jól,6au,7ör, 8tuð,9 tagl,10gg,12lui,13von,15nn,16 iðar, 18mára. Lóðrétt:1björgvin, 2jór, 3ól,4auð- linda,6augun,8tal,11goð,14nam, 17rá. Lárétt: 1 drykkur, 5 hátíð, 6 tvíhljóði, 7 píla, 8 raus, 9 á hesti, 10 tveir eins, 12 hann á frönsku, 13 vænting, 15 ónefnd- ur, 16 hreyfist, 18 afríkumann. Lóðrétt: 1 bær í noregi, 2 hestur, 3 fæddi, 4 náma, 6 skynfærin, 8 mál, 11 æðri vera, 14 lærði, 17 slá. LAUSN. Aðspurður um uppáhaldsmyndasögu- bókina sína segir Pétur Yngvi Yamagata í versluninni Nexus: „Það breytist dag frá degi en Invisibles er verkið sem ég hef lesið hvað oftast. Invisibles fjallar um vandræðaungling frá Liverpool sem dregst inn í hryðjuverkasamtök sem hafa það að markmiði að granda Status quo eða því óbreytta ástandi sem ríkir í heim- inum. Þetta er fjörug sería og þarna birt- ast skemmtilegar persónur úr öðrum bókmenntum og úr mannkynssögunni.“ Marquis de Sade er einn þeirra sem dúkk- ar upp í Invisibles. „Margir segja að hann sé upphafsmaður sadó masó en í Invisi- bles mætir greifinn í nútímann til að búa til þjóðfélag þar sem afsláttur er gefinn af kynlífi. Þarna er líka ungur brasilískur drengur sem er alinn upp sem norn en verður klæðskiptingur þegar hann full- orðnast. Nánast hver einasta paranoi- upæling sem til er, er tekin fyrir í þessari myndasögu og þarna er að finna enda- lausar tilvitnanir í hinar og þessar bók- menntir.“ „Þessi saga kemst næst því að hafa skap- að pönk í myndasögunum enda umturn- aði hún öllu í myndasögugeiranum þegar hún kom út fyrir tíu árum. Fólk er að upp- götva söguna núna því höfundurinn var svo langt á undan sinni samtíð.“ | SÉRFRÆÐINGURINN | Uppáhaldsmyndasagan: Pétur Yngvi í Nexus INVISIBLES Er uppáhaldsmyndasaga Péturs enda tímamótaverk í þessum bókmenntageira.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.