Fréttablaðið - 06.09.2004, Side 32
14 6. september 2004 MÁNUDAGUR
4ra herbergja
FOSSVOGUR DALALAND. Björt og
falleg 4ra herb. íbúð á þessum eftirsótta
stað. Hol með fataskápum. Stofa með stór-
um suður-svölum. Herb. sem nú er notað
sem borðstofa. Tvö önnur herb. Eldhús
með borðkrók. Baðherb. flísalagt, baðkar,
innrétting og tengi fyrir þvottavél. Sér-
geymsla er á jarðhæð, sameiginlegt þvotta-
hús og hjólageymsla. V. 14,6 millj.
GRAFARVOGUR
LÆKKAÐ VERÐ Falleg 104,3 fm,
4ra herb. íbúð á jarðh. við LAUFENGI með
sér lóð, ásamt 26,5 fm bílageymslu. Björt
stofa, parket. Eldhús með borðkrók, flísar á
gólfi. Þvottaherb. Þrjú svefnherb., parket.
Flísalagt fallegt bað, með baðkari, sturtu og
innréttingu. Geymsla. Innangengt í bíla-
geymslu. ÍBÚÐIN ER LAUS STRAX. V. 15,2
millj.
SÓLVALLAGATA VESTURBÆR.
Falleg og björt 111,3 fm, 4ra herb. íbúð á 3.
hæð í Vesturbænum. Íbúðin skiptist í eld-
hús, baðherb., þvottaherb., geymslu/tölvu-
herb., hjónaherb. og tvö rúmgóð svefnherb.
Parket á gólfum. Sameignlegt bílastæði.
ÍBÚÐIN ER LAUS NÚ ÞEGAR. V. 16,9 millj.
Landsbyggðin
GRUNDARGATA
GRUNDARFIRÐI Til sölu ca. 170
fm. einbýlishús, hæð og ris. Fjögur svefn-
herb., stórar stofur, ofl. Laust fljótt.
V. 9,6 millj.
HÖFÐAGATA
STYKKISHÓLMI Mjög rúmgóð
157,4 fm íbúð á tveimur hæðum. Á neðri
hæð er forstofa, hol, tvær samliggjandi
stofur, eldhús og baðherb. Á efri hæð eru
fjögur svefnherb. og baðherb. Sameiginlegt
þvottahús. Svalir út af hjónaherb. Flísar á
forstofu og baðherb. Parket á holi, stofu og
eldhúsi og á þremur herb. á efri hæð. Út-
sýni. V. 10,5 millj.
LÁGHOLT - STYKKISHÓLMI
Til sölu gott einbýlishús á tveimur hæðum
ca. 210 fm. ásamt ca. 39 fm. bílskúr og fal-
legri ca. 16 fm. sólstofu. Stór sólpallur og
fallegur garður með mikilli rækt. Nýlegt og
fallegt eldhús, góð gólfefni. Tvö böð ofl.
Skoðaðu myndir á netinu. V. 14,9 millj.
NORÐURBYGGÐ
ÞORLÁKSHÖFN Gott og vel
skipulagt 125,4 fm, endaraðhús ásamt 42,5
fm. bílskúr. Frágenginn uppgróinn garður.
Forstofa, hol sem opnast inn í stóra stofu,
parket, fjögur rúmgóð svefnherb.. Rúmgott
bað. Lagt fyrir þvottavél. Búr innaf eldhúsi.
Stór bílskúr með rafmagni, hita og hurðar-
opnara. Geymsla í enda bílskúrsins.
V 14,5 millj.
SUNDABAKKI
STYKKISHÓLMI 143,6 fm efri sér-
hæð ásamt 31,8 fm. bílskúr í einu fallegasta
sjávarþorpi landsins þar sem er mikla vinnu
er að fá og fasteignir standa fyrir sínu. Fjög-
ur svefnherb. og rúmgóðar stofur. Útsýni.
Til greina kemur að taka minni eign í
Reykjavík uppí. V. 11,9 millj.
ÆGISGATA
STYKKISHÓLMI Fallegt hús
ásamt 31 fm bílskúr. Lóðin er að mestu frá-
gengin með holtagrjóti og plankahleðslum,
stórt bílastæði. Ægisgata er lítil lokuð gata
við sjóinn. V. 11,5 millj.
Atvinnuhúsnæði
ENGJATEIGUR-LISTHÚS
Til sölu ca. 47 fm. fallegt pláss á besta stað
í Listhúsinu við Engjateig. Plássið er mjög
vel staðsett. Getur hentað undir margskon-
ar starfsemi ss. teiknistofu, verkfræðinga,
verslun, ofl.ofl.. Plássið er laust.
Fyrirtæki
ENNISBRAUT Fiskverkunarhús í
Ólafsvík. Iðnaðarhús byggt 1981 með leyfi
fyrir saltfiskverkun, 843,9 fm. Öll tæki til
saltfiskverkunar fylgja með, þ.m.t. flatn-
ingsvél. Kaffistofa. Tvö salerni og fata-
geymsla . Góð starfsmannaaðstaða.
Sími 575 8585 – Spönginni 37 – 112 Reykjavík
Sverrir
Kristjánsson
Gsm 896-4489
Lögg.fasteignasali
í 33 ár
SAMTENGD SÖLUSKRÁ SEX FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MINNI KOSTNAÐUR - MARGFALDUR ÁRANGUR. www.hus.is
opið virka daga
frá kl. 09:00-18:00.
www.fmg.is
LAUFÁSVEGUR
GALTAFELL
Til sölu virðulegt og sögu-
frægt hús í hjarta bæjarins,
Galtafell við Laufásveg. Hús-
ið skiptist í jarðhæð, aðal-
hæð og turnherbergi samtals
ca. 500 fm.. Húsið er eitt
glæsilegasta hús bæjarins
teiknað af Einari Erlendssyni
húsameistara og byggt af
miklum efnum af Pétri Thor-
steinssyni frá Bíldudal föður
Muggs listmálara. Miklar og
fallegar stofur, að hluta með mikilli lofthæð þar sem birta og virðuleiki skapa glæsi-
lega umgjörð. Stórt turnherbergi, en þaðan er frábært útsýni. Húsið býður upp á
mikla möguleika með núverandi nýtingu eða sem glæsilegt einbýlishús.
EINSTÖK EIGN Í HJARTA BÆJARINS.
SELTJARNARNES
Glæsilegt einbýlishús á besta stað
við Melabraut. Húsið er samtals
236,6 fm ásamt 26,8 fm bílskúr. Stór
fallegur garður sem býður upp á
mikla möguleika. Á efri hæðinni eru
4 barnaherb., hjónaherb. og glæsi-
legt flísalagt bað með sturtuklefa. 3
stofur og eldhús á aðalhæð. Í kjall-
ara er stór geymsla og þvottaher-
bergi. Þar hefur verið útbúin um 50
fm stúdio-íbúð. V. 38,9 millj.
BJARKARGATA
Frábærlega staðsett sögulegt
“hefðarsetur” í hjarta miðborgarinn-
ar. Glæsileg staðsetning við horn
Tjarnarinnar í Reykjavík með útsýni
yfir elsta og virðulegasta hluta
Reykjavíkurborgar. Stærð hússins
er 312 fm. (271,5 fm. skv. FMR) á
þremur hæðum auk óinnréttaðs
háalofts og 26,8 fm. bílskúrs. Húsið
þarf talsverðar viðgerðir, en fyrir
liggur kostnaðaráætlun ábyrgra fag-
aðila vegna viðgerða sem gera þarf utanhúss. ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐUM.
Fasteignasalinn:
Gott að
búa nálægt
miðbænum
Nafn og vinnustaður:
Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmað-
ur, DP Lögmenn og DP fasteignir.
Hversu lengi hefur þú verið fast-
eignasali?
Ég hef rekið lögmannsstofu um tæp-
lega 10 ára skeið en ákvað í byrjun
þessa árs að bæta fasteignasölu við
þá þjónustu sem lögmannsstofa mín
býður upp á. Í mörgum málum þarf
fólk einnig á aðstoð fasteignasölu að
halda og það hentar því vel að geta
boðið þjónustuna á sama stað.
Skemmtilegast við starfið?
Ég annast samningagerðina sem
fasteignaviðskiptum tengist, þ.e. frá-
gang kaupsamninga og gerð afsala. Í
lífi flestra er kaup og sala fasteigna
stærsti samningurinn sem gerður er
og aleigan liggur oft undir. Það skipt-
ir því miklu að tryggilega sé frá öllu
gengið og það er mitt hlutverk að sjá
til að svo sé. Svo er auðvitað ein-
staklega ánægjulegt að taka þátt í
slíkum viðburðum í lífi fólks.
Fyrsta eignin sem þú seldir?
Fyrsta eignin sem seldist á fasteigna-
sölunni var gullfalleg íbúð í Grafar-
vogi.
Uppáhaldshverfið?
101 Reykjavík.
Hvar myndir þú vilja búa ef ekki í
Reykjavík?
London eða New York.
Flottasta húsið?
Mörg hús hér á landi eru ákaflega
falleg og aðlaðandi.
Hvernig myndir þú lýsa þinni íbúð?
Ég bý í 70 ára einbýlishúsi í því sem
nú er oft kallað Þingholtin, en mun
að réttu heita gamli austurbærinn.
Húsið er hæfilega stórt og einkennist
af rúmgóðum herbergjum og björt-
um. Nálægðin við miðbæinn þykir
mér mikill kostur.
Keilufell:
Einbýlishús með
aukaíbúð og góðum garði
Timburhús með aukaíbúð að Keilu-
felli 35 í Reykjavík er til sölu hjá
Fasteignasölunni Draumahús.
Húsið er byggt árið 1973 og við-
byggingin er frá 1985. Húsið sjálft
er 146,8 fermetrar að stærð og við-
byggingin 45 fermetrar, þannig að
eignin er samtals 191,8 fermetrar
ásamt um 40 fermetra sólpalli og
góðum garði. Tvö upphituð einka-
bílastæði fylgja með, auk fleiri
stæða út við götu. Húsið var málað
að utan fyrir tveimur árum og þak-
ið í sumar. Til er teikning að stækk-
un á risi, með kvisti og svölum.
Svo eigninni sé lýst nánar er
gengið inn í forstofu með flísum á
gólfi og góðum skápum. Þaðan er
bæði gengið í rúmgott forstofuher-
bergi með parketti á gólfi og inn í
salerni með sturtu.
Stofan er björt með glugga á tvo
vegu, þaðan er gengið út á sólpall-
inn sem snýr í suður og austur. Utan
við hann er garður í góðri rækt. Eld-
húsið er rúmgott, með parketti á
gólfi, hvítri innréttingu, keramik-
helluborði, ofni og tengi fyrir upp-
þvottavél. Flísar eru milli skápa.
Góður borðkrókur er í eldhúsinu og
eldhúsborðið er sambyggt innrétt-
ingunni. Bekkur til að sitja á við
borðið fylgir með innréttingunni. Á
neðri hæðinni er þvottahús og það-
an eru dyr út í garð.
Á efri hæðinni eru tvö svefn-
herbergi; hjónaherbergi með dúk
á gólfi og góðum skápum og
barnaherbergi með dúk á gólfi og
skáp. Úr holi er opið inn í teppa-
lagt sjónvarpsherbergi sem auð-
velt er að gera svefnherbergi úr.
Þaðan er líka hægt að fara upp í
stóra geymslu í risinu. Í baðher-
berginu er dúkur á gólfi, baðker
og hvít innrétting.
Í viðbyggingu sem byggt var
sem verkstæði listamanns er nú
stúdíóíbúð sem auðvelt er að
breyta í bílskúr ef vilji er fyrir
hendi. Hún er með svefnlofti og
fataherbergi yfir helmingi
grunnflatar. Neðri hæðin er eitt
stórt rými með eldhúsinnrétt-
ingu, auk baðherbergis. Eld-
húsinnréttingin er hvít. Aukahús
og forstofuherbergi eru leigð út
og eru leigutekjur nú um 84 þús-
und á mánuði. Úr Keilufellinu er
stutt í verslanir, skóla og útivist-
arsvæði. ■
Húsið er með aukaíbúð sem hægt er að breyta í bílskúr.