Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 2
2 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Launanefnd sveitarfélaganna: Óskar ekki meiri fjárheimilda KJARABARÁTTA Ekki hefur verið ósk- að eftir auknum fjárheimildum til sveitarfélaganna til að mæta kröf- um kennara, segir Birgir Björn Sigurjónsson, formaður launa- nefndar sveitarfélaganna: „Við höfum ekki óskað eftir að þeim for- sendum sem við störfum eftir verði breytt.“ Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakennara, hvatti launanefndina á baráttufundi kennara í Háskólabíói á mánudag til að fara heim í bakland sitt og sækja meiri peninga. Samkvæmt óbirtri niðurstöðu könnunar á þeim áherslum sem kennarar vildu sjá í kjaraviðræð- unum kemur fram að rúmur þriðj- ungur kennara hafi verið ósáttur við verkstjórnartíma skólastjóra. Sama könnun greinir frá að stór hluti kennara sættist á núverandi vinnutíma en kysi helst hærri laun; samkvæmt upplýsingum frá trún- aðarmanni kennara. Birgir Björn segir að þær kröf- ur sem kennarar hafi lagt mesta áherslu á lúti að kennsluskyldu og vinnutíma: „Það eru þeirra áhersl- ur.“ Finnbogi segir opnar spurning- ar í könnuninni hafa gefið mun ná- kvæmari niðurstöðu en krossa með spurningum um verkstjórnartím- ann. Eftir því sé unnið. - gag Múrar banka hafa brostið Fyrrum eigandi Véla og þjónustu segir fjárfestingasvið KB banka hafa nýtt sér upplýsingar viðskiptasviðs til að reyna yfirtöku á fyrirtækinu. Yfirlögfræðingur bankans segir málið snúast um innheimtu skulda. VIÐSKIPTI Reglur um aðskilnað milli fjárfestinga- og viðskipta- bankasviðs voru ekki virtar af KB banka í viðskiptum við Vélar og þjónustu hf., segir Stefán Bjarnason, fyrrum fjármála- stjóri og einn eigenda fyrirtæk- isins. Stefán segir KB banka hafa reynt yfirtöku á fyrirtækinu og hafa ætlað að selja það við- skiptavini. Bankinn hafi nýtt til þess upplýsingar um bága fjár- málastöðu fyrirtækisins og því krafist greiðslu á skuldum, sem leiddi til gjaldþrots þess. Helgi Sigurðsson, yfirlög- fræðingur KB banka, segir yfir- töku á fyrirtækinu Vélum og þjónustu ekki hafa staðið til. Hagsmunir bankans í máli fyrir- tækisins hafi eingöngu verið og sé að gera allt sem hægt sé til að takmarka tjón bankans, rétt eins og í öðrum vanskilamálum þar sem ekki sé staðið í skilum við skuldbindingar: „Enda ber bankanum skylda til þess sam- kvæmt lögum. Ekki síst ef grun- semdir eru um refsiverða hátt- semi.“ Maður kunnugur kjötmarkaði segir verklag KB banka þó ekki einsdæmi. Enginn vafi leiki á að ólík svið innan bankanna vinni saman. Þau hafi tangarhald á öllum og geti til dæmis stjórnað kjötmarkaði að eigin geðþótta. Vinnuferli þeirra sé þekkt og hafi viðgengist í erfiðleikum kjötmarkaðarins á síðasta ári. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir það reglulega til athugunar hvort Kínamúrar séu nægilega heldir í fjármálatækjum. Hann þekki ekki til máls Véla og þjónustu og tjái sig ekki um það. „Það kemur reglulega upp að okkur finnst Kínamúrar ekki nægilegar góðir í einstaka fyrir- tæki og við gerum þá athuga- semdir við það,“ segir Páll og bætir við: „Í þeim tilvikum þar sem mál eru sprottin af kvört- unum einstakra viðskiptamanna er þeim einnig greint frá niður- stöðu málsins. Það er þá á þeirra forræði hvort málinu er vísað til lögreglu.“ Viðurlögin séu mis- jöfn eftir atvikum. Afturköllun á starfsleyfi fjármálafyrirtækja sé meðal úrræðanna. Helgi segir KB banka upp- fylla ströngustu reglur um fjár- málafyrirtæki. Hann þekki ekki dæmi um að bankinn hafi fengið athugasemdir vegna aðskilnað- ar starfssviða: „Þetta mál snýst ekki um kínverska múra heldur innheimtu.“ gag@frettabladid.is Grafreitur mafíunnar: Grófu upp lík á lóð BANDARÍKIN, AP Lögreglan í New York fann á dögunum lík á yfirgef- inni lóð sem hefur um langt árabil verið kölluð grafreitur mafíunnar vegna gruns manna um að þar hafi verið grafin lík manna sem glæpaforinginn John Gotti lét myrða. Fyrsta líkið sem fannst í grafreit mafíunnar fannst fyrir rúmum tutt- ugu árum þegar börn að leik sáu handlegg mafíuforingjans Alph- onse „Rauða Sonny“ Indelicato standa upp úr jörðinni. Frekari leit þá bar engan árangur en leit hófst á ný fyrir skemmstu eftir ábendingu um hvar nokkur lík væri að finna. ■ CLINTON Á ÍSLANDI Veikindi Clintons greindust skömmu eftir heimsóknina til Íslands. Vegna þeirra getur hann lítið tekið þátt í kosningabaráttunni. Forsetakosningar: Clinton í baráttuna BANDARÍKIN, AP Bandarískir kjós- endur mega eiga von á símtali frá Bill Clinton, fyrrverandi Banda- ríkjaforseta. Þeim gefst reyndar ekki mikið færi á að rökræða við Clinton því símtalið verður upp- taka Clintons þar sem hann hvet- ur fólk til að kjósa flokksbróður sinn, demókratann John Kerry, í forsetakosningunum í nóvember. Þar sem það tekur Clinton drjúgan tíma að jafna sig eftir hjartaskurðaðgerð getur hann ekki farið á kosningafundi fyrir Kerry. Þess í stað tekur hann upp skilaboðin sem verða hringd út til kjósenda og ávarpar kjósendur hugsanlega líka í útvarpsauglýs- ingum. ■ „Nei, ég þarf ekkert að horfa á hann til að vita hvað þarf til að leysa deiluna.“ Eiríkur Jónsson er formaður Kennarasambands Ís- lands. Kennarar krefjist þess að sveitarfélögin sæki meira fé til ríkisins svo ganga megi frá samningum. Eftirminnilegasta setningin í mynd- inni Jerry Maguire var: „Show me the money!“ SPURNING DAGSINS Eiríkur, hefurðu verið að horfa á Jerry Maguire? NORÐURSKAUTSSVÆÐIÐ Norðurskautssvæðið og viðkvæm lífkerfi þess eru enn í mikilli hættu vegna geisla- virkni. Norðurskautssvæðið: Geislavirkni minnkar NOREGUR, AP Geislavirkni á norð- urskautssvæðinu fer nú minnk- andi, mörgum árum eftir að Sovétmenn hættu að stunda kjarnorkutilraunir ofanjarðar og kjarnorkuslysið varð í Tsjernóbyl 1986. Norðurskautssvæðið og við- kvæm lífkerfi þess eru enn í mik- illi hættu vegna geislavirkni, ekki síst vegna þess að ástand kjarn- orkuvopna fyrrum Sovétríkjanna fer sífellt versnandi með aldri, og hið sama gildir um kjarnorkuver í Norðvestur-Rússlandi. Mun lengri tíma tekur að draga úr geislavirkni á Norður- skautinu en annars staðar í heim- inum vegna þess að gróður túndrunnar, mosar, sveppir og grös, tekur í sig mun meiri geisl- un en aðrar plöntur. ■ Glitnir kemur flér í samband vi› rétta bílinn – traustur samstarfsa›ili í fjármögnun LÖGREGLA Fjöldi vopna fannst í þremur húsleitum á Hellissandi um síðustu helgi. Leitarheimild var fengin eftir að par, fólk á fer- tugs- og fimmtugsaldri, var hand- tekið grunað um fíkniefnamis- ferli. Parið hafði húsin þrjú til um- ráða sem leitað var í. Tveir rifflar, þrjár haglabyss- ur, tvær skammbyssur, fjórir hnífar og tveir hljóðdeyfar fund- ust í húsleitunum ásamt fimm til sex hundruð skotum af ýmsum gerðum. Þá fundust einnig 85 grömm af maríjúana og var um helmingur þess í litlum pakkning- um. Tvær byssur eru skráðar á manninn en sjálfur hefur hann ekki tjáð lögreglu um ástæðu vopnasafnsins. Honum og kon- unni var sleppt að loknum yfir- heyrslum hjá lögreglu. Næstu daga verður uppruni vopnanna rannsakaður en óstaðfestur grun- ur er um að ein byssan sé illa fengin. Parið verður kallað aftur til yfirheyrslu fljótlega, að sögn Ólafs Guðmundssonar, yfirlög- regluþjóns á Snæfellsnesi. - hrs Fjöldi vopna fannst í húsleit á Snæfellsnesi: Grunar að ein byssan sé illa fengin VOPNASAFNIÐ Parið sem handtekið var og húsleitirnar voru gerðar hjá verður kallað aftur í yfirheyrslur hjá lögreglu þegar ljóst verður hvaðan byssurnar hafa komið. M YN D /L Ö G R EG LA N Á S N Æ FE LL SN ES I ■ ASÍA SKUTU ELDFLAUG Í TILRAUNA- SKYNI Pakistanar gerðu í gær til- raun með Ghauri V-eldflaug sem getur borið kjarnorkusprengjur 1.500 kílómetra leið, þar á meðal til margra indverskra borga. Eld- flaugin er nefnd eftir Shahbuddin Ghauri, sem vann vesturhluta Indlands á sitt vald á tólftu öld. KB BANKI Hefur verið ásakaður um að brjóta Kínamúra innan fyrirtækisins. Það hafi leitt til gjaldþrots Véla og þjónustu. Yfirlögfræðingur bankans segir málið snúast um innheimtu skuldar. Múr- ar hafi ekki brostið en bankanum beri að bregðast við grun um refsiverða háttsemi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N ■ AFRÍKA VIÐURKENNA EKKI FORSETANN Stjórnvöld í Sómalílandi, héraði sem sagði skilið við Sómalíu 1991, neita að viðurkenna Abdullahi Yusuf sem forseta, en hann var kosinn forseti á bráða- birgðaþingi Sómala sem haldið var í Kenía. Ekkert ríki hefur viðurkennt sjálfstæði Sómalí- lands, sem hefur verið friðsælla en Sómalía. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA LAUNANEFND SVEITARFÉLAGANNA Hefur ekki orðið við óskum kennara um aukið fé til að mæta kröfum þeirra.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.