Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 18
Á vefsíðunni fjarkennsla.is er hægt að fjárfesta í mörgum margmiðlunarkennslubókum og þess vegna setjast á skólabekk heima í stofu við tölvuna. Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is Færð þú MasterCard Ferðaávísun? Stúdentaferðir er í samstarfi við háskóla, listaháskóla, hótel- og ferðamálaskóla um víða veröld. Allar nánari upplýsingar liggja frammi á skrifstofu okkar eða á www.exit.is. Við aðstoðum þig við að finna rétta skólann! ,,Við ætlum fjórar vinkonur saman aftur og aftur! Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“ Sumarnámskeið fyrir skapandi börn, eldri og yngri, keramik, teikning, málun - allt innifalið - litlir hópar. Aðeins 8500 kr. vikan! Skráning í Keramik fyrir alla, sími 552 2882, Laugavegi 48b. Sjá lýsingu: www.keramik.is Hvað segja börnin um námskeið í Keramik fyrir alla?Krakkar! Komið að mála keramik. Notið tímann og gerið jólagjafirn r. Opið virka daga kl. 8-18. Keramik fyrir alla, Laugavegi 48b, sími 552 2882 www.keramik.is Hér er tálgað af kappi. Næstur er Sigmundur Hansen, þá Sveinbjörn Sigurjónsson. Við hlið hans situr Eygló Halldórsdóttir og ystur er Gunnar Helgason. Opnir tímar í tréskurði: Þar sem margir fagrir munir verða til Tréskurður tilheyrir bæði tóm- stundagamni og nytjalist og þá kúnst er hægt að læra á Vestur- götu 7 í Reykjavík. Leiðbeinandi er Sigmundur Hansen og hann segir alla velkomna í tíma, á hvaða aldri sem þeir eru. „Margir halda að þessi staður sé bara fyrir eldri borgara en það er misskiln- ingur. Hingað er öllum frjálst að koma til að taka þátt í því sem fram fer,“ segir hann og undir það tekur Harpa Rún Jóhannsdóttir, forstöðumaður. „Félagsstarfið er fyrir alla Reykvíkinga og er opið virka daga frá 9 til 17.“ Tréskurðurinn er á dagskránni á miðvikudögum milli kl. 13 og 16 og þar verða margir fallegir mun- ir til. Sigmundur kveðst yfirleitt forvinna hlutina heima því hann sé mikill föndurkarl. „Síðan legg ég þetta upp í hendurnar á fólkinu og kenni því handbrögðin. Eitt aðalmálið er að finna út hvernig liggur í viðnum, því það verður að beita hnífunum eins og æðarnar liggja,“ segir hann og heldur áfram: „Við eigum tólf járn og lánum þau byrjendum en ef fólk vill halda áfram þá kaupir það sér áhöldin sjálft. Sumir fá sér sett með þremur hnífum og halda áfram að tálga heima hjá sér en koma svo yfirleitt aftur og fá frekari leiðbeiningar.“ Á Vesturgötunni eru hin ýmsu námskeið í gangi, auk tréskurðar- ins, svo sem myndlist, bútasaum- ur, skrautskrift og postulínsmál- un. Þar fyrir utan er spilað og teflt og einn dagskrárliður heitir Spurt og spjallað. Föstudagarnir eru alskemmtilegastir, þá er safn- ast við flygilinn og sungið og svo dansað í aðalsalnum á eftir. Föstu- dagarnir heita líka „sparidagar“! gun@frettabladid.is Hulda Ósk Ágústsdóttir sker út ramma fyrir klukku og barómet. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Námskeið fram undan: Ættarsagan skráð Íslendingar eru þekktir fyrir mikinn áhuga á ættfræði. Þorgrímur Gests- son virkjar þann áhuga í námskeiði sem hann kennir í Námsflokkum Reykjavíkur og kallast Ritun ættar- sögu. „Námskeiðið er til dæmis hugsað fyrir fólk sem er að standa fyrir ættarmóti og langar til að skrifa sögu ættarinnar í stuttu máli. Einnig hafa þeir sem teknir eru að eldast áhuga á að punkta ýmislegt niður, ég leiðbeini þeim hvernig best er að haga þeirri vinnu. Síðan kynni ég þátttakendum hvernig leita ber á söfnum og fer með þá inn á helstu bókasöfnin,“ segir Þorgrímur. Viðtalstækni er atriði sem Þorgrím- ur kennir: „Fólk tekur gjarnan viðtöl við elstu fjölskyldumeðlimina, ég kem með ábendingar hvernig best er að standa að því, kenni fólki einnig hvernig það getur nýtt sér segulbandstækni og fleira.“ Gamlir nemendur Þorgríms hafa sumir hafist handa við að skrá ætt- arsögu sína. „Síðasti hópur var mjög áhugasamur og skemmtileg- ur,“ segir Þorgrímur og hlakkar til að hitta næsta hóp. Nánari upplýsingar á síðunni nams- flokkar.is Ýmsan fróðleik er að finna á bókasöfnum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.