Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 4
4 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR MENNTAMÁL Menntamálaráðu- neytið hefur boðað viðræður við stjórn Fjölmenntar um endur- skoðun þjónustusamnings Fjöl- menntar og Geðhjálpar seinni hluta þessa mánaðar. „Við verðum að trúa því að þetta boði eitthvað gott,“ sagði Sveinn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar. Menntamál geðsjúkra hafa ver- ið í mikilli óvissu allt frá því í fyrravor, þar sem ekkert lá fyrir um fjárframlög til að reka haustönn. Búið var að segja öll- um starfsmönnum upp en stjórnvöld létu 6 milljónir til málaflokksins. Það þýddi að hægt var að veita um 60% af þeirri menntun sem geðsjúkir höfðu sótt um. Að sögn Helga Jósepssonar verkefnisstjóra kom samdrátturinn verst niður á þeim sem eiga við lestrar- og skriftarörðugleika að etja. Þá þurfti að sleppa viðbótar- kennslu fyrir þá einstaklinga sem voru í fjarnámi, svo og end- urmenntun fyrir fólk sem hafði búið sig undir að fara út á vinnu- markaðinn, til dæmis við störf í mötuneyti. Sveinn sagði að kostnaðar- áætlun sem Geðhjálp hefði lagt fyrir Alþingi fyrir rúmu ári hefði verið 22 milljónir króna fyrir skólastarf allan veturinn. -jss Barnabætur breytast ekki Forsætisráðherra segir ekki gert ráð fyrir að barnabætur verði hækk- aðar á næsta ári. Formaður Samfylkingar segir að ráðherrann hafi síðast í fyrradag boðað slíka hækkun á næsta ári. STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að barna- bætur hækki ekki á næsta ári. „Barnabæturnar munu ekki hækka á árinu 2005, heldur á ár- unum 2006 til 2007.“ Halldór segir að tekjuskatturinn lækki um 1 prósent á næsta ári og þar verði látið staðar numið í skattalækkun- um í bili. Eftir sé að ákveða dag- setningar á þriggja prósentustiga lækkun tekjuskatts til viðbótar og sömuleiðis hækkun barnabóta. Halldór vildi ekki slá því föstu að barnabæturnar hækkuðu strax 2006, eftir væri að útfæra það. Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, lýsti undrun sinni á um- mælum forsætisráðherra enda hefði mátt skilja annað á honum í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Fyrirspyrjandinn, Össur Skarp- héðinsson formaður Samfylking- arinnar, tekur í sama streng. „Mér finnst ótrúlegt að heyra að forsætisráðherra skuli með af- dráttarlausum hætti segja að barnabætur skuli ekki hækkaðar strax. Síðast í gær varðist hann gagnrýni Alþýðusambandsins á stefnu ríkisstjórnarinnar með vís- an til væntanlegrar hækkunar. Það var með engu móti hægt að skilja Halldór öðruvísi en það yrði á næsta ári. Orð skulu standa og það á við um forsætisráðherra jafnt sem aðra.“ Aðspurður um hvort ekki hefði mátt skilja hann þannig á Alþingi í gær að barnabætur yrðu hækk- aðar strax, segir Halldór Ás- grímsson að gagnrýni hans á mál- flutning Alþýðusambands Íslands hefði falist í því að benda á að ekki væri hægt að tala um þróun kaupmaáttar til langs tíma án þess að gera ráð fyrir hækkun barnabóta. Gylfi Arnbjörnsson bendir svo á að í fjárlagafrumvarpinu sé gert ráð fyrir 3,5 prósenta verðbólgu en um 2,5 prósent í forsendum kjarasamninga. „Ef þetta gengur eftir munum við óska eftir endur- skoðun kjarasamninga í nóvem- ber á næsta ári enda myndi eins prósents kaupmáttaraukning sem gert var ráð fyrir étast upp með þessu móti.“ a.snaevarr@frettabladid.is FRÁ UNDIRRITUN Björgólfur Guðmundsson og Þröstur Ólafsson. Landsbankinn og Sinfónían: 25 milljónir í ferðastyrk MENNING Landsbanki Íslands mun styrkja Sinfóníuhljómsveit Íslands um 25 milljónir króna til utan- ferða. Í samkomulagi bankans og hljómsveitarinnar segir að í ferð- um hljómsveitarinnar skuli fagleg- ur metnaður og kynning íslenskrar tónlistar vera í fyrirrúmi. Björgólfur Guðmundsson, for- maður bankaráðs Landsbankans, og Þröstur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveit- ar Íslands, undirrituðu í gær sam- komulag um stuðning bankans til þriggja ára til að efla tónleikaferð- ir hljómsveitarinnar á erlendri grund. - bþe Á að banna reykingar á kaffihús- um og skemmtistöðum? Spurning dagsins í dag: Á ríkið að auka tekjur sveitarfélaga til að liðka fyrir samningum við kennara? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 39,2% 60,8% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun VIÐ AKUREYRARHÖFN Lögregla handtók forystumenn sjómanna. Sólbakur: Lögbann á sjómenn KJARAMÁL Lögbann hefur verið sett á aðgerðir sjómannasamtaka og verkalýðsfélaga við löndun úr togaranum Sólbaki frá Akureyri. Útgerðarfélag skipsins fór fram á bannið hjá Sýslumanninum á Akureyri í gær. Lögbannið tekur þegar gildi en útgerðarfélagið þarf að höfða mál því til staðfestingar innan viku. Sólbakur landar á Akureyri í dag og stoppar í höfn í tvo til þrjá daga vegna lagfæringa um borð. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir að félagsmenn hans muni hlíta lögbanninu. „Ég veit ekki hvenær við hefjum aðgerðir aftur en við erum með lausa kjarasamninga og það kemur til skoðunar að nota okkur það.“ ■ ENDURSKOÐUN Loks hefur verið boðað til viðræðna um endurskoðun á samningi um samstarfs- verkefni Fjölmenntar og Geðhjálpar. Menntamálaráðuneytið blæs til fundar: Loks endurskoðun á menntasamningi ÞJÓÐKIRKJAN Kirkjuþing hefst á sunnudaginn en samkoman fer með æðsta vald í málefnum þjóð- kirkjunnar. Ýmis mál liggja fyrir þinginu og má búast við heitum umræðum um sum þeirra. Að sögn Þorvalds Karls Helga- sonar biskupsritara verður sérstök áhersla lögð á innri mál kirkjunn- ar. Þannig verða fræðslu- og tón- listarmál í öndvegi og er búist við að fjárveitingar til þessara mála- flokka verði auknar til samræmis við það. Prestssetrasjóður hefur óskað eftir heimild til að fá að selja sjö prestssetur og hluta úr áttundu jörðinni. Ýmis sögufræg býli eru þar á meðal, svo sem Bergþórs- hvoll í V-Landeyjum, Prestbakki við Hrútafjörð, Vatnsfjörður við Ísafjarðardjúp og Árnes á Strönd- um. Búist er við að styr muni standa um tillögur um að fækka prófasts- dæmum landsins úr sextán í tíu og þannig er gert ráð fyrir að Vest- firðir verði eitt prófastsdæmi. Endanleg ákvörðun um málið verður þó ekki tekin á þinginu heldur fer það í héruðin til um- sagnar fái það til þess brautar- gengi. Þingið fer fram í Grensáskirkju dagana 17.-22. október og situr það 21 fulltrúi, þar af tólf leikmenn. - shg Kirkjuþing fram undan: Prestssetrum og próföstum fækkað GRENSÁSKIRKJA Þar fer fram kirkjuþing í næstu viku. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Samfylkingin og ASÍ töldu hann lofa hækkun barnabóta 2005 en nú slær Hallldór það út af borðinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Mennirnir tveir sem létust í bíl- veltu á Þjórsárdalsvegi á sunnu- dagsmorgun hétu Þórarinn Björn Magnússon, 23 ára, til heimilis á Vatnsendabletti 6 í Kópavogi, og Stephan Bernard Kahn, 35 ára Brasilíumaður. Kenneth Bigley: Þjófar stálu minningarbók BRETLAND, AP Þjófar stálu bók sem vegfarendur höfðu ritað samúðar- kveðjur í til fjölskyldu Kenneths Bigley. Minningarbókin lá frammi í mosku í Birmingham ásamt mynd af Bigley, sem myrtur var af gíslatökumönnum í Írak, kertum og samúðarkortum. Öllu þessu var stolið. Mohammed Naseem sagði þjófnaðinn til marks um sjúkan hug þess eða þeirra sem stálu bók- inni. „Þetta veldur okkur þungri kvöl og fjölskyldu Bigleys án efa líka,“ sagði hann. Fyrr á árinu var minningarbók um fórnarlamb Madrídarárásanna á Spáni einnig stolið. ■ ■ BANASLYS ■ ÍRAK ÞÓRARINN BJÖRN MAGNÚSSON STEPHAN BERNARD KAHN GÍSL ÁKÆRIR AL-JAZEERA Sádi- Arabi sem var tekinn í gíslingu í Írak en er nú laus úr haldi hefur ákært Al-Jazeera sjónvarpsstöð- ina og krefst þess að hún greiði honum skaðabætur. Hann segir myndatökumann stöðvarinnar hafa myndað rán sitt en ekki til- kynnt yfirvöldum um mannránið. TÍU GÍSLUM SLEPPT Íslamskir uppreisnarmenn slepptu í gær tíu Tyrkjum sem þeir hafa haft í gíslingu. Gíslarnir sögðu að gísla- tökumenn hefðu komið vel fram við sig og ekki beitt sig ofbeldi í gíslingunni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.