Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Íslensk ofurhetja Á dauða mínum átti ég von, enekki því að Danir tækju sig og smíðuðu fyrstu íslensku ofurhetj- una síðan á dögum Agga Skalla- grímssonar og Gunna Hámundar. Ofurhetjan heitir Hallgrímur Örn Hallgrímsson og kom fram á sjónar- sviðið í fyrrakvöld í framhaldsþætti í Danska sjónvarpinu (rás 1) sem heitir „Örninn“. DANIR eru miklir sómamenn. Fyrst björguðu þeir íslensku hand- ritunum í hús og varðveittu þau á tímum sem Íslendingar notuðu þau ýmist í uppkveikju eða í bætur á skóna sína. Svo skiluðu þeir heila klabbinu aftur og „Fladö-bogen, ves- gú“ varð að íslensku máltæki. OG NÚ hafa Danir orðið fyrstir allra þjóða til að viðurkenna í verki að það sé töff að vera Íslendingur. Örninn var nefnilega töff þáttur. Lögregluforinginn Hallgrímur Örn var á leiðinni til Íslands að heim- sækja mömmu sína sem var í andar- slitrunum, en varð að fresta ferð- inni um óákveðinn tíma vegna að- kallandi skyldustarfa: Lögreglu- þjónn sem hafði verið að fá sér smók inni á klósetti á Kastrup-flug- velli var myrtur með karatehöggi á nefið, og rússneska mafían og arab- ískir hryðjuverkamenn leika laus- um hala í flugstöðinni. SEM SANNUR Íslendingur er Hallgrímur jafngáfaður og hann er harðsnúinn, og hann talar reiprenn- andi rússnesku og arabísku, fyrir utan íslensku og dönsku, og auk þess má auðvitað gera ráð fyrir því að hann hafi lært latínu, þýsku og frönsku í menntaskóla. Svona mað- ur er vitanlega umsvermaður af kvenfólki. Bara við það eitt að sjá þennan eldklára íslenska töffara réttist úr manni þar sem maður húkti í sjónvarpssófanum. Allar göt- ur síðan 1262 hefur verið misjafn- lega púkalegt að vera Íslendingur, og nú er það allt í einu breytt. Eftir nokkur hundruð ár í skammakrókn- um eru íslenskar ofurhetjur aftur komnar fram á sjónarsviðið, og það er Danska ríkissjónvarpinu að þakka. Einhver kynni að álíta að það hefði verið í verkahring RUV að sjá íslenskum sjónvarpsáhorfendum fyrir íslenskum ofurhetjum – en það er nú eins og það er, og fæst orð bera minnsta ábyrgð. ■ BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.