Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 13. október 2004 Tækifæri í fjölbreyttu samfélagi: Lýðræði – jafnrétti – fjölmenning Málþing Rannsóknarstofnunar KHÍ Kennaraháskóla Íslands v/ Stakkahlíð Málþingið hefst föstudaginn 15. október kl. 14:00 og lýkur laugardaginn 16. október kl. 15.30 Aðalfyrirlesarar: Föstudagur: Laugardagur: Dr. Finn Thorbjørn Hansen, heimspekingur Dr. Gillian Klein, ritstjóri tímaritsins Race Equality Teaching Guðrún Pétursdóttir, félagsfræðingur Gylfi Jón Gylfason, sálfræðingur Kolbrún Vigfúsdóttir, leikskólaráðgjafi Hróbjartur Árnason, lektor Ketill Magnússon, heimspekingur Edda Kjartansdóttir, kennari Hafdís Ingvarsdóttir, dósent Helga Rúna Gústafsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi Ingibjörg Margrét Ísaksdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi Á laugardag verða haldin ríflega hundrað erindi í málstofum frá kl. 8:50 – 15:30 Kynnt verður m.a. þróunar- og nýbreytnistarf á öllum skólastigum, frá leikskóla til háskóla, á sviði símenntunar, innan mismunandi námsgreina, um menntun kennara, með fötluðu fólki innan og utan skóla, notkun tölvu- og upplýsingatækni, um aga og hegðun, um viðhorf unglinga, áhrif prófa, félagsstörf með nemendum og foreldrasamstarf. Sjá dagskrá á http://malthing.khi.is Þátttökugjald er kr. 1500 Málþingið er haldið á vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ í samráði við Félag framhaldsskólakennara, Félag grunnskólakennara, Félag íslenskra framhaldsskóla, Félag leikskólakennara, Félag tónlistarskólakennara, Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Grunn – samtök forstöðumanna skólaskrifstofa, Heimili og skóla, Leikskóla Reykjavíkur, Menntamálaráðuneytið, Skólastjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélag Íslands Málþingið er styrkt af Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Kennarasambandi Íslands, Leikskólum Reykjavíkur, Menntamálaráðuneyti og Þroskaþjálfafélagi Íslands. Sævar Karl, verslunareigandi og tískufrömuður í Bankastræti, telur að bunga sú, sem sást á baki George W. Bush Bandaríkjafor- seta í fyrstu sjónvarpskappræðum á móti Kerry hafi stafað af því að hann hafi verið með eitthvað innan á sér. Hann tekur því útskýringu klæðskera forsetans, um að bung- an hafi myndast þegar forsetinn krosslagði handleggina og beygði sig fram, ekki trúanlega. „Hann hlýtur að vera með eitthvað á bakinu innan und- ir jakkanum þarna,“ sagði Sævar Karl, sem hefur næmt auga fyrir því hvernig fatnaður á að fara á fólki og hefur skoðað myndir af Bush með bunguna. „Þessi jakkaföt eru úr mjög þunnu efni, sem er mikið notað þarna núna. Þessi maður er nú ekki best klæddi maður í heimi. Mér finnst hann ekki sérlega flottur í tauinu, allt að því hálf lura- legur,“ bætti Sævar Karl við. A ð s p u r ð u r sagði hann að Kerry væri litlu betri. Þessi amerísku föt væru dá- lítið sérstök. Jakkarnir væru yfir- leitt ófóðraðir, eða hálffóðraðir. „En þessir menn eru í lúxusföt- um sem kosta 3-5.000 dollara,“ sagði hann. Það jafngildir 200- 350 þúsund íslenskum krónum. „Þeir ganga ekkert í ódýrari fötum en það. En þetta er bara þeirra stíll. Þeir eru ekki eins flottir og Kofi Annan sem gengur í Brione-fötum og hlýðir klæðskeranum sínum hvað varðar stíl- inn. Jay Leno er klædd- ur fötum sem eru meira á evrópska vísu. Hann er flottur, gjarnan í Armani og maður sér svolítið handbragðið. Þetta er annar stíll heldur en á þessum þunnu efnum en for- s e t a f r a m - bjóðendurn- ir þurfa kannski að vera í amer- ískum stíl,“ sagði Sævar Karl, sem vildi þó ekki fallast á að kalla þetta „hamborgara- stíl“. jss@frettabladid.is Ekki flottir í tauinu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.