Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 16
Það efast víst enginn um að þorri mannkyns vildi frekar sjá John Kerry en George Bush í embætti forseta Bandaríkjanna. Líklega hefur enginn forseti í sögu þessa mikla ríkis mætt eins djúpri andúð og almennri fyrirlitningu um alla heimsbyggðina og George Bush. Bandaríska þjóðin virðist hins veg- ar klofin í jafnar fylkingar í af- stöðu til forsetans. Um tvennt virð- ast þó heimamenn og útlendingar sammála. Annað er að kosningarn- ar í nóvember séu einhverjar hinar mikilvægustu í nýlegri sögu Bandaríkjanna og hitt að sjaldan hafi kjósendur staðið frammi fyrir eins skýru vali og nú. Margir segja að kjósendur hafi ekki fengið að velja á milli jafn ólíkra kosta síðan Nixon vann sinn yfirburðasigur á McGovern 1972. Þetta kann að vera rétt en það segir þá í leiðinni heilmikla sögu um bandarískt lýð- ræði. Andúð manna á Bush um víða veröld virðist gera þessar kosning- ar að skýrari átökum í hugum fólks en málflutningur forsetaefnanna gefur tilefni til. Ef litið er til stefnu frambjóðendanna tveggja í helstu málaflokkum er erfitt að forðast þá niðurstöðu að ef Kerry og Bush væru í stjórnmálabaráttu í Evrópu en ekki Bandaríkjunum væru þeir í sama flokki. Sá flokkur væri held- ur ekki einn af þessum breiðu evr- ópsku hægriflokkum, heldur lítill flokkur úti á kanti evrópskra stjórnmála. Þessi niðurstaða af at- hugun á stefnumálum Bush og Kerrys er hins vegar gersamlega á snið við tilfinningu manna um allan heim fyrir kosningunum í nóvem- ber. Í Evrópu virðist það vera nokk- uð almenn, en sennilega röng trú, að ef Kerry sigri muni utanríkis- stefna Bandaríkjanna breytast í veigamiklum atriðum og verða miklu líkari stefnu Evrópuríkja. Hér í álfu virðist menn líka al- mennt trúa því að sigur Kerrys myndi hafa í för með sér breyting- ar í innanlandsmálum í Bandaríkj- unum sem myndu draga úr þeim mikla mun sem er á þjóðfélögum Evrópu annars vegar og Banda- ríkjunum hins vegar. Menn geta hins vegar ekki bæði trúað þessu og trúað því sem Kerry segir sjálf- ur um sína stefnu. Annað hvort er skoðun Evrópu á Kerry röng eða Kerry er að ljúga að bandarísku þjóðinni. Lítum fyrst á utanríkismál. Í engu máli er gjáin á milli Banda- ríkjanna og Evrópu dýpri en í Palestínumálinu. Þar hefur Kerry sömu stefnu og Bush. Hann styður stefnu Ísraelsmanna og vill ekki beita bandarískum þrýstingi til að milda hernám þeirra og hernað gegn Palestínumönnum. Gjáin í af- stöðu Evrópu og Bandaríkjanna til Íraks er litlu grynnri. Kerry studdi innrásina, vill vinna hernaðarsigur í landinu og hafa bandaríska her- menn þar næstu árin. Hann sagði fyrst að hann hefði stutt innrásina þótt hann hefði vitað að hún var gerð á fölskum forsendum en breytti þeirri afstöðu þegar her- námið fór að vera óvinsælla í Bandaríkjunum. Þriðja málið sem skilur á milli Evrópu og Ameríku er stofnun Alþjóða stríðsglæpadóm- stólsins sem hefur verið baráttu- mál Evrópuríkja og allra áhuga- manna um mannréttindi og viðnám gegn stríðsglæpum. Líkt og Bush er Kerry á móti því að dómstóllinn hafi lögsögu yfir Bandaríkjamönn- um, sem einir allra manna í veröld- inni eiga að vera friðhelgir gagn- vart dómstólnum að kröfu Bush og Kerrys. Afstaða þeirra til Samein- uðu þjóðanna er heldur ekki ólík. Kerry er á móti því meginatriði í stofnskrá SÞ að ríki megi einungis beita hervaldi ef á þau er ráðist eða árás er yfirvofandi nema öryggis- ráð SÞ veiti til þess heimild. Hann vill þó teygja sig lengra til að fá al- þjóðlegan stuðning. Í innanlands- málum hafa Bush og Kerry ólíkar áherslur án þess að róttækur mun- ur sé á stefnu þeirra. Bandaríkin eru eina iðnvædda land veraldar þar sem hið opinbera sér ekki öll- um borgurum fyrir heilbrigðis- þjónustu. Ein afleiðing þess er að barnadauði er hærri víða í Banda- ríkjunum en á hinni örsnauðu Kúbu. Kerry vill gera eitthvað meira en Bush í þessu máli og þar er að finna stærsta muninn á stefnu þeirra en jafnvel evrópskum hægrimönnum þættu þær umbæt- ur fátæklegar. Ójöfnuður í lífskjör- um hefur vaxið stórkostlega á síð- ustu áratugum í Bandaríkjunum en stefna Kerrys er ekki líkleg til að draga verulega úr honum enda mið- ast stefnumál hans yfirleitt við þarfir miðstétta frekar en þarfir þeirra tuga milljóna Bandaríkja- manna sem búa við öryggisleysi og djúpa fátækt. Í utanríkis- sem og innanríkismálum virðist stefna Kerrys snúast um að hægja á ferð Bandaríkjanna í burtu frá evrópsk- um gildum og viðmiðum en ekki um breyttan kúrs. ■ E kki er í sjónmáli að takist að leysa verkfall grunnskólakenn-ara. Það ástand sem er í þjóðfélaginu vegna verkfallsins eróviðunandi. Ekki bara fyrir kennara og sveitarfélögin held- ur þjóðfélagið í heild. Samúð með málstað kennara hefur farið vaxandi í samfélaginu. Almennt geta menn verið sammála um að þeir sinni krefjandi og mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Menntun skipar stöðugt stærri sess í samfélaginu og mikilvægi hennar er óvíða dregið í efa. Almennt er einnig viðurkennt að laun kennara séu lág og þau þurfi að hækka. Víðtækur skilningur er einnig á því að sveitarfé- lögin ráði illa við að greiða þau laun sem farið er fram á í kröfu kennara. Vandamálið liggur því nokkuð skýrt fyrir en einhverja breytu þarf í viðbót til að finna lausnina. Við þessar kringumstæður verð- ur ekki séð að ríkisstjórnin geti setið hjá og látið eins og sér komi deilan ekki við. Gera verður þá kröfu til menntamálaráðherra og forsætisráðherra að þeir beiti sér í deilunni. Skiljanlegt er að á fyrstu stigum deilunnar hafi ríkisvaldið haldið sig til hlés. Nú er hins vegar að verða fullreynt á þeim forsendum sem liggja fyrir. Nýtt útspil þarf að koma til. Sveitarfélögin tókust á hendur gríðarlegt verkefni þegar grunn- skólinn var fluttur til þeirra. Samhliða hefur verið staðið yfir ferli sem leiða á til fækkunar og stækkunar sveitarfélaganna. Flutning- ur grunnskólans ýtti á eftir þessari þróun þar sem smærri sveitar- félög réðu einfaldlega ekki við verkefnið. Við núverandi kringum- stæður má spyrja sig hvort flutningur grunnskólans hafi verið of snemma á ferðinni miðað við samrunaþróun sveitarfélaganna. Fleira ætti að gera það að verkum að ríkisvaldið finni til ábyrgð- ar. Sjálft gerði ríkið samninga við framhaldskólakennara og aðrar háskólamenntaðar stéttir. Ekki er ósanngjarnt að grunnskólakenn- arar leiti samsvörunar í kjörum þeirra sem hafa svipaða menntun og ábyrgð. Ef sveitarfélögin ráða ekki við að mæta þeim saman- burði sem ríkið hefur skapað þarf að endurskoða stærð þeirra og tekjustofna. Þetta eru viðamikil verkefni og verða ekki leyst í einu vetfangi. Forysta kennara þarf líka að líta í eigin barm. Efast má um tíma- setningu verkfalls. Leikskólakennarar eru með lausa samninga og sambærilegar stéttir við grunnskólakennara munu brátt setjast að samningaborðinu. Þetta skapar þrýsting við samningaborðið sem grunnskólakennarar gætu vel verið án. Skammtímasamningur, án þess að hengt væri of mikið af hliðarkröfum á hann, hefði hugsan- lega skapað tíma til að leysa úr þeim grundvallarvanda sem blasir við að leysa í deilunni. Staða efnahagsmála er vissulega einnig áhyggjuefni viðsemj- enda kennara. Heyrst hafa raddir stjórnarþingmanna um að kjara- bætur kennara muni ýta undir þenslu og verðbólgu. Þær raddir verða hjáróma þegar fjárlög og skattalækkunartillögur senda út skilaboð til samfélagsins um að ekki sé mikil ástæða til að óttast þenslu. ■ 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR SJÓNARMIÐ HAFLIÐI HELGASON Kennaradeilan leysist ekki á núverandi forsendum. Stjórnin finni til ábyrgðar FRÁ DEGI TIL DAGS Skiljanlegt er að á fyrstu stigum deilunnar hafi ríkisvaldið haldið sig til hlés. Nú er hins vegar að verða fullreynt á þeim forsendum sem liggja fyrir. ,, Jólahlaðborð á Hótel Örk Hafðu samband í síma 483 4700, info@hotel-ork.is, www.hotel-ork.is Útvegum bíla fyrir hópa, stóra sem smáa. Munið okkar frábæru árshátíðakjör. Jólahlaðborð að hætti Eika 20. 26. og 27. nóvember 03. 04. 10. og 11. desember Veislustjóri: Flosi Ólafsson Drekkhlaðin veisluborðin svigna undan gómsætum kræsingum úr smiðju matreiðslumeistara Hótel Arkar. Verð: 4.490,- krónur ( með gistingu krónur 8.790,- á mann í tvíbýli). Föstudagstilboð: 3.990,- krónur ( með gistingu krónur 7.990,- á mann í tvíbýli). ATH: Uppselt í gistingu 20. og 27. nóvember, laust í sal. ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Skipta kosningarnar máli? Engin hetja Þó að argentínski byltingarmaðurinn og kommúnistinn Ernesto Che Guevara sé búinn að hvíla í gröf sinni í næstum fjóra áratugi er persóna hans enn heitt deiluefni um allan heim og þar á með- al á Íslandi. Nýlega opnuðu ungir frjáls- hyggjumenn sérstaka vefsíðu til að láta í ljós óánægju sína með það hvernig mynd Che Guevara er hampað á tísku- fatnaði. Á slóð- inni che.uf.is má lesa þessi um- mæli: „Í dag kemst maður vart í gegn um daginn án þess að sjá einhvern í Che Guevara bol. En hver er þessi maður? Af hverju er hann í tísku? Sumir halda að hann hafi verið „frelsishetja“ og baráttumaður fyrir mannréttindum og bættum lífskjörum. Raunin er önnur. Ef málið er skoðað betur kemur í ljós dekkri og ógeðfelldari mynd en flestir láta sig dreyma um.“ Síðan er rakinn ferill Guevara sem er blóði drifinn. Meðal annars að hann hafi stofnað fyrstu þrælabúðirnar á Kúbu, fyrirskipað aftökur á saklausu fólki og sjálfur tekið fólk af lífi með köldu blóði. Á hrós skilið Stjórnmálamenn sem hlusta á gagnrýni og bregðast við henni á jákvæðan hátt stækka áreiðanlega fyrir vikið í augum almennings. Hinir sem þora ekki að bakka með neitt, jafnvel þótt þeir viti upp á sig vitleysu, eru á villigötum. Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra á hrós skilið fyrir að bregðast við gagnrýni stjórnarandstöð- unnar á skipan nýrrar fjölmiðlanefndar með því að fjölga í nefndinni eins og krafa var gerð um. Yfirlýsing hennar í gær um að nefndin eigi að vinna í ná- inni samvinnu við hagsmunaaðila, svo sem Blaðamannafélag Íslands, er einnig jákvætt innlegg í mál- ið og hjálpar von- andi til að skapa grundvöll fyrir því að hægt sé að ræða málefnið af yfirvegun og þekk- ingu. Í DAG FORSETAKJÖR Í BANDARÍKJUNUM JÓN ORMUR HALLDÓRSSON Í Evrópu virðist það vera nokkuð almenn, en sennilega röng trú, að ef Kerry sigri muni utanríkis- stefna Bandaríkjanna breyt- ast í veigamiklum atriðum og verða miklu líkari stefnu Evrópuríkja. ,, Vefritið Vísir.is hefur tekið miklum breytingum að undanförnu. Undir Skoðanir á vefnum hefur skapast öflugur vettvangur fyrir þjóðfélagsumræðu. Þar birtist daglega nýtt efni sem ekki hefur birst annars staðar og einnig efni eftir pistlahöfunda Frétta- blaðsins. Lesendur geta skrifað athugasemdir við greinar á vefnum og er hugmynd- in að segja frá þeim framlögum í Fréttablaðinu eftir því sem tilefni gefst til. Aðal- greinin á Vísi í dag fjallar um fjölmiðla og er hana eingöngu að finna á vefnum. Þar er sagt frá skiptum skoðunum í Frakklandi um eignarhald á fjölmiðlum í framhaldi af því að vopnaframleiðandinn og auðkýfingurinn Serge Dassault eignaðist marga helstu fjölmiðla landsins. Í greininni er efnið einnig tengt umræðum hér á landi um eignarhald á íslenskum fjölmiðlum. Skoðanir og umræður á Vísir.is ORÐRÉTT Málað sig út í horn Sjarminn lekur af Katrínu og traustið af Illuga. Ólafur Teitur hefur hins vegar fyrir löngu málað sig út í horn íslenskrar fjölmiðlunar og væri best geymdur á þingi án kjörs. Eiríkur Jónsson DV 12. október Upplýsa um eiturvopnin Á hinn bóginn hefir margan undrað að stríðsfélagar Íslend- inga í Írak skuli ekki hafa gengið á Halldór Ásgrímsson að hann upplýsti þá um eitur- efnavopnin, en hann lýsti yfir í fjölmiðlum með flírubrosi 13. janúar sl. að „ég hefi alltaf vit- að að þau voru til“. Sverrir Hermannsson Morgunblaðið 12. október gm@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.