Fréttablaðið - 13.10.2004, Side 6
6 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
Aukin framlög til táknmálstúlkunar:
Heyrnarlausir fagna ákvörðuninni
STJÓRNMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra tilkynnti í gær á fundi með
fulltrúum heyrnarlausra að fram-
lög til heyrnleysingjatúlkunar
hefðu verið aukin um 2 milljónir í
ár og 6 milljónir á næsta ári. Yrði
alls varið 10 milljónum til tákn-
málstúlkunar fyrir heyrnarlausa
á fjárlögum 2005. „Ég hef sjaldan
fengið eins góðar móttökur og á
fundinum,“ sagði Þorgerður
Katrín.
Hafdís Gísladóttir, fram-
kvæmdastjóri Félags heyrnar-
lausra, sagðist í sjöunda himni:
„Við höfum beðið lengi eftir
þessu.“
Menntamálaráðherra tilkynnti
um framlögin á Alþingi í umræð-
um utan dagskrár um málið að
kröfu Samfylkingarinnar. Máls-
hefjandinn Rannveig Guðmunds-
dóttir sagði: „Þorgerður Katrín
fær mörg prik hjá mér fyrir
þetta“. Samfylkingin hafði óskað
eftir að umræðan yrði táknmál-
stúlkuð en Halldór Blöndal, for-
seti Alþingis, hafnaði því. Lofaði
hann hins vegar að kanna hvort
hægt væri að túlka allar umræður
úr ræðustól þingsins. -ás
DÓMSMÁL Mannréttindadómstóll
Evrópu kvað í gær upp þann úr-
skurð að íslenska ríkinu hefði ver-
ið óheimilt að skerða lífeyrissjóðs-
réttindi Kjartans Ásmundssonar,
fyrrverandi sjómanns, og voru
honum dæmdar um sjö milljónir
króna í skaðabætur, auk kostnaðar
og málsvarnarlauna.
Kjartan varð fyrir slysi um
borð í togaranum Sléttbaki í des-
ember 1978 en hann hafði þá starf-
að við sjómennsku í tíu ár og greitt
í Lífeyrissjóð sjómanna. Frá árinu
1979 fékk hann greiddar lífeyris-
bætur sem tóku mið af því að hann
væri 100 prósent öryrki til fyrri
starfa vegna afleiðinga slyssins.
Árið 1992 var lögum um sjóðinn
breytt á þann veg að ekki var leng-
ur tekið mið af hæfni til fyrri star-
fa heldur til almennra starfa. Þar
sem örorkumat Kjartans til al-
mennra starfa var minna en 35
prósent átti hann ekki rétt á lífeyri
úr sjóðnum og féllu allar greiðslur
til hans niður frá og með 1. júlí
1997.
Kjartan höfðaði mál fyrir ís-
lenskum dómstólum og byggði á
því að þessi skerðing réttinda hans
gengi gegn ákvæðum stjórnar-
skrár og Mannréttindasáttmála
Evrópu um friðhelgi eignarréttar
og jafnræðisreglu. Tapaði Kjartan
málinu bæði í héraði og fyrir
Hæstarétti en í júní árið 2000
skaut hann málinu til Mannrétt-
indadómstólsins í Strassborg.
Lögmaður Kjartans, Lilja
Jónasdóttir, hæstaréttarlögmaður
á Lögmannsstofnunni Lex, sagði í
samtali við Fréttablaðið að þau
Kjartan væru himinlifandi með úr-
skurðinn. „Stærsti sigurinn fyrir
Kjartan felst í viðurkenningu
Mannréttindadómstólsins á því að
ríkið hafi brotið gegn ákvæðum
Mannréttindasáttmála Evrópu um
friðhelgi eignarréttarins. Auk þess
er stór hluti af fjárhagslegri kröfu-
gerð hans tekinn til greina,“ sagði
Lilja.
Hún sagði dóminn geta haft for-
dæmisgildi, þó svo að mikil
áhersla væri lögð á aðstæður
Kjartans í forsendum dómsins.
„Ég tel að mál þetta sé vissulega
fordæmisgefandi fyrir alla þá að-
ila sem voru í sambærilegri stöðu
hjá Lífeyrissjóði sjómanna og
Kjartan. Einnig verður að ætla að
ýmsir aðrir lífeyrisþegar, sem
kunna að hafa verið sviptir rétti til
lífeyrisgreiðslna hjá öðrum lífeyr-
issjóðum á liðnum árum, geti
byggt rétt á þessum dómi. Það þarf
þó að skoða hvert einstakt tilvik
fyrir sig sérstaklega,“ sagði Lilja.
borgar@frettabladid.is
VEISTU SVARIÐ?
1Hvernig lauk landsleik U-21 liða Ís-lands og Svíþjóðar í forkeppni heims-
meistarakeppninnar í fótbolta?
2Hver skrifaði ævisögu Valtýs Gunn-arssonar sem er nýkomin út?
3Forsætisráðherra hvaða lands máttihlýða á framíköll þingmanna þegar
hann ávarpaði þing sitt í fyrra kvöld?
Svörin eru á bls. 30
EFTIR
PER GUSTAVSSON
MYNDABÓK ÁRSINS
SVONA GERA PRINSESSUR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
†
R
‹
IN
STÓRSKEMMTILEG
OG FALLEG BÓK
FYRIR PRINSESSUR
OG PRINSA Á
ALDRINUM 2-7 ÁRA
Dómi Hæstaréttar
snúið í Strassborg
Kjartan Ásmundsson, fyrrverandi sjómaður, vann í gær mál á hendur íslenska ríkinu fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu. Íslenska ríkið mátti ekki svipta hann lífeyrisréttindum bótalaust.
Við erum himinlifandi, segir lögmaður Kjartans.
LILJA JÓNASDÓTTIR
Lögmaður Kjartans Ásmundssonar segir
skjólstæðing sinn vera að vonum himinlif-
andi með niðurstöðuna. „Dómur Mannrétt-
indadómstólsins er stórsigur fyrir málstað
Kjartans. Með dómnum er það loksins við-
urkennt, eftir 10 ára baráttu, að ríkinu hafi
ekki verið heimilt að svipta hann bótalaust
áunnum og virkum lífeyrisréttindum,“ sagði
Lilja í samtali við Fréttablaðið.
Ríkissáttasemjari:
Tillaga ekki
tímabær
KJARABARÁTTA Ekki er tímabært að
leggja miðlunartillögu fyrir
samninganefndir kennara og
sveitarfélaganna þar sem mjög
mikið ber í milli í nánast öllum
atriðum, segir Ásmundur Stefáns-
son ríkissáttasemjari. Hann ræðir
við deilendur í
sitt hvoru lagi í
Karphúsinu í
dag.
„Ef sett yrði
fram miðlunar-
tillaga nú
myndi það ein-
faldlega þýða
að fram kæmi
eitthvað sem
báðir aðilar
myndu hafna
og menn sætu
ennþá fast-
bundnari en
áður,“ segir Ás-
mundur. Hann
segir fleiri en einn ráðherra hafa
spurst fyrir um framgang mála í
viðræðum kennara og sveitar-
félaganna.
- gag
Fjarskipti:
Tetra
til Símans
VIÐSKIPTI Síminn hefur tekið við
rekstri tetra-fjarskiptakerfisins
af Tetra Íslandi. Eftir þessa breyt-
ingu verður enginn fastur starfs-
maður hjá fyrirtækinu.
Tetra Ísland hefur átt í miklum
rekstrarvanda á undanförnum
misserum en nú hefur verið samið
við skuldunauta og samningar við
kaupendur þjónustunnar, þar á
meðal sveitarfélög og dómsmála-
ráðuneyti, hafa verið endurnýjað-
ir.Gert er ráð fyrir að starfsmenn-
irnir sem sagt var upp hjá Tetra
fái einhverjir störf hjá Símanum.
- þk
ÁSMUNDUR
STEFÁNSSON
Fjölmiðlanefndin:
Stjórnarand-
staðan með
STJÓRNMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra kynnti á ríkisstjórnarfundi í
morgun að fjölgað yrði í fjöl-
miðlanefndinni til að koma til
móts við stjórnarandstöðuflokk-
anna. „Ég hafði ekki hugmynda-
flug til að ímynda mér að þeir
yrðu ekki sáttir við tvo fulltrúa en
fyrst svo er legg ég til að fjölga í
nefndinni,“ sagði hún að loknum
ríkisstjórnarfundi í gær. Stjórnar-
flokkarnir skipa fjóra fulltrúa en
stjórnarandstaðan þrjá. Hvorki
blaðamenn né útgefendur fá full-
trúa, en ráðherra sagði að sam-
starf yrði haft við geirann. - ás
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
Fékk prik hjá stjórnarandstæðingum og lof
heyrnleysingja þegar hún tilkynnti að fram-
lög til táknmálstúlkunar yrðu hækkuð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L