Fréttablaðið - 13.10.2004, Síða 14
14 13. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
SKILAR INN RIFFLI
Þessi kona var meðal þeirra íbúa Bagdad
sem skiluðu inn vopnum samkvæmt sam-
komulagi milli yfirvalda og stuðnings-
manna róttæka klerksins Muqtada al-Sadr
um afvopnun þeirra síðarnefndu.
Of lítið fé og lágur eftirlaunaaldur grafa undan kerfinu:
Eftirlaunin í hættu
BRETLAND, AP Breska eftirlaunakerf-
ið er ekki í takt við raunveruleik-
ann og hefur í för með sér að marg-
ir kunna að búa við fátækt þegar
þeir fara á eftirlaun á næstu ára-
tugum. Þetta er niðurstaða nefndar
á vegum breskra stjórnvalda sem
hefur kannað eftirlaunakerfið og
framtíð breskra launþega þegar
þeir fara á eftirlaun.
„Meira en níu milljónir vinn-
andi manna horfa fram á eftirlaun
sem þeim kunna að þykja óviðun-
andi nema þeir séu reiðubúnir að
spara meira eða hætta störfum
miklu síðar en foreldrar þeirra,“
sagði Aldair Turner, formaður eft-
irlaunanefndarinnar.
Turner sagði að síðustu tuttugu
árin hefðu stjórnvöld, fyrirtæki og
einstaklingar lifað í blekkingu þeg-
ar kæmi að því að búa sig undir að
fjölmennar kynslóðir fari á eftir-
laun. „Nú er svo komið að við verð-
um að horfast í augun við þá blekk-
ingu og hegða okkur í takt við
raunveruleikann,“ sagði Turner.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að íhuga þyrfti
hvort rétt væri að fólk færi á eftir-
laun við 60 eða 65 ára aldur. ■
SAMGÖNGUR Áfangastöðum ís-
lensku innanlandsflugfélaganna
hefur fækkað mjög frá því sem
var þegar áætlun var til fjöl-
margra byggðarlaga landsins.
Smátt og smátt hefur kvarnast úr
leiðarkerfinu, síðast um mánaðar-
mótin þegar flugi til Sauðárkróks
var hætt. Tvö flugfélög, Flugfélag
Íslands og Landsflug, halda uppi
áætlunarflugi frá Reykjavík til
tíu flugvalla og eitt félag, Flug-
félag Vestmannaeyja, flýgur frá
Vestmannaeyjum á Bakkkaflug-
völl í Landeyjum.
Sú var tíðin að áfangastaðir
flugfélaganna voru mun fleiri, en
bættar vegasamgöngur og fólks-
fækkun víða um land hafa dregið
úr áhuga á að halda uppi flugi til
nokkurra staða. Flugfélögin eru
enda drifin áfram af hagnaðarvon
og sjá skiljanlega ekki ástæðu til
að greiða með farþegunum. Á
nokkrum leiðum ber flugið sig
alls ekki en það þykir engu að síð-
ur nauðsynlegt að halda uppi flug-
samgöngum á þeim leiðum. Ríkið
hleypur þar undir bagga og styrk-
ir félögin til flugsins.
Sjóslys rannsökuð í flug-
stöð
Flugfélag Íslands flýgur til Ísa-
fjarðar, Egilsstaða og Akureyrar.
Frá Akureyri er svo flogið til
Grímseyjar, Þórshafnar og
Vopnafjarðar og eru þær leiðir
styrktar. Landsflug, sem ný-
lega varð til við sölu innan-
landsdeildar Íslandsflugs,
flýgur til Bíldudals, Gjög-
urs, Hafnar og Vest-
mannaeyja og njóta þrjár
fyrstnefndu leiðirnar
styrkja.
Það er af sem áður
var þegar sam-
keppnin í háloftun-
um var blóðug,
helstu áfanga-
staðir félaganna
voru þeir sömu
og fargjöldin
svipuð og
bensínfyll-
ing á með-
albíl.
Meðal þeirra staða sem horfið
hafa úr áætlanaleiðum félaganna
á undanförnum árum eru Stykkis-
hólmur, Patreksfjörður, Þingeyri,
Sauðárkrókur, Siglufjörður, Húsa-
vík, Kópasker, Raufarhöfn, Norð-
fjörður og Fáskrúðsfjörður. Víð-
ast hvar er flugvölllunum haldið
við enda nauðsynlegt vegna
sjúkraflugs. Þá standa stæðilegar
flugstöðvar við suma vellina, eins
og t.d. á Stykkishólmsvelli, en
fróðir menn segja að áætlunar-
flug þangað hafi lagst af svo að
segja um leið og ný og fín flugstöð
var byggð. Hýsir hún nú starf-
semi rannsóknanefndar sjóslysa.
Skiptir ekki máli
Sauðárkrókur datt síðast út af
flugkortinu en bæjaryfirvöld hafa
átt í viðræðum við forystumenn
Landsflugs um möguleikann á að
hefja flugið á ný. Misjafnt er
hvernig flugleysið fer í Króksara
en Aðalsteinn Þorsteinsson, for-
stjóri Byggðastofnunar, saknar
flugsins ekkert sérstaklega, ekki
eins og málum var háttað undir
það síðasta. „Það
verður nú að
segjast alveg
eins og er að
þetta skiptir ná-
kvæmlega engu
máli. Þegar
Byggðastofnun
flutti hingað
norður sumarið
2001 voru tvö
flug á dag flesta
daga vikunnar
og við nýttum
okkur það enda
gott að fara að
heiman á morgn-
ana og koma til
baka um kvöldið.
Síðan fór að síga
á ógæfuhliðina,
þetta varð eitt
flug á
dag og svo ekki einu sinni alla
daga vikunnar og þá skipti þetta
ekki máli.“
Aðalsteinn segir starfsmenn
Byggðastofnunnar yfirleitt aka til
Akureyrar og fljúga þar í gegn til
fundahalda í höfuðborginni enda
margar ferðir á dag og aksturinn
ekki nema um klukkustundar
langur.
„Auðvitað myndum við kjósa
að hér væri alvöru flugþjónusta
eins og var en úr því sem komið
var þá breytir það engu fyrir okk-
ur þó að flugið hafi alfarið lagst
af.“
Samkeppnin að baki
Siglfirðingar hafa verið
háværari í mótmælum
sínum enda drjúgur
spölur á næsta flug-
völl. Lengi vel var
beint flug til Siglu-
fjarðar. Því var
hætt og við tók
flug í gegnum
S a u ð á r k r ó k .
Svo var því
hætt og boðið
upp á rútu-
ferðir á
Krókinn. Í
n ý l e g r i
á l y k t u n
b æ j a r -
r á ð s
S i g l u -
fjarð-
a r
um flugið segir meðal annars að
ekki verði unað við að samgöngur
við Siglufjörð verði lagðar niður
til lengri tíma og hefjist Sauðár-
króksflugið ekki á ný muni ráðið
krefjast útboðs á beinu áætlunar-
flugi til Siglufjarðar.
Á talsmönnum flugfélaganna
er að heyra að litlar breytingar
verði á áætlunarfluginu í bráð,
þau hafi fundið sér álitlega
áfangastaði sem gefi bærilega í
aðra hönd, ýmist með eða án ríkis-
styrkja. Á suma staði er flogið
margsinnis á dag, t.d. eru 5 til 7
ferðir daglega til Akureyrar og
Egilsstaða.
Samkeppnin er að baki, hvort
félag situr að sínu og meira að
segja eiga þau með sér samstarf
sem birtist meðal annars í að bók-
að er í flug Landsflugs á vef Flug-
félags Íslands.
Langvarandi tapi á rekstri
Flugfélags Íslands, áður inn-
anlandsdeild Flug-
leiða, hefur verið
snúið í hagnað og
forsvarsmenn
Landsflugs eru
bjartsýnir á
komandi tíð.
Ókyrrðin er að
baki og skyggn-
ið virðist gott.
bjorn@frettabladid.is
STÁLU HLJÓÐKERFI Brotist var
inn í félagsheimilið Árblik í Búð-
ardal um síðustu helgi og þaðan
stolið stórum hluta af hljóðkerfi
staðarins. Þjófurinn eða þjófarnir
spenntu upp glugga til að komast
inn. Verðmæti tækjanna sem
stolið var er á bilinu tvö til þrjú
hundruð þúsund krónur. Málið er
í rannsókn.
ÖLVAÐUR TEKINN FYRIR
HRAÐAKSTUR Tíu ökumenn voru
teknir fyrir of hraðan akstur í
umdæmi lögreglunnar á Dalvík
um síðustu helgi. Einn ökumann-
anna reyndist vera ölvaður við
aksturinn og hann ók einnig hrað-
ast eða á tæplega 130 kílómetra
hraða.
■ EVRÓPA
MIKLAR SVEIFLUR
Miklar sveiflur eru í bensínverði þessa
dagana.
Bensínið upp og niður:
Hækkar um
tvær krónur
ELDSNEYTI Stóru olíufélögin þrjú
hækkuðu fullt þjónustuverð á
bensíni um tvær krónur í gær,
eftir að hafa lækkað það um sömu
upphæð nú fyrir helgina. Hækk-
anir urðu einnig á sjálfs-
afgreiðsluverði.
Sömu olíufélög höfðu hækkað
verðið um 2 krónur í byrjun októ-
ber, þá öll nema Orkan. Verðið hjá
Atlantsolíu var óbreytt í gær, lítr-
inn af 95 oktana á 103,90 krónur.
Orkan var einnig með óbreytt
verð, lítraverð frá 103,40 í Hvera-
gerði upp í 105,50 á höfuðborgar-
svæðinu. ■
MÓTMÆLTU HÆKKUN SKÓLA-
GJALDA Um tuttugu námsmenn
ruddust inn á skrifstofur Fianna
Fail, stjórnarflokksins á Írlandi,
til að mótmæla hækkun skóla-
gjalda. Öryggisverðir báru mót-
mælendurna út og lögregla tók
sér stöðu við skrifstofurnar án
þess þó að aðhafast.
HALLALAUS FJÁRLÖG Belgíska
þingið samþykkti í gær hallalaus
fjárlög fimmta árið í röð. Stefnt
er að hallalausum fjárlögum að
ári og tekjuafgangi árið 2007.
Með þessu reyna stjórnvöld að
borga niður skuldir ríkissjóðs,
sem nema 90 af hundraði lands-
framleiðslu og eru með því mesta
í Evrópu.
HANDTEKNIR FYRIR MANSAL
Slóvakíska lögreglan hefur hand-
tekið ellefu smyglara sem hjálp-
uðu í það minnsta 226 ólöglegum
innflytjendum að fara um landið
á leið sinni til Vestur-Evrópu. Ár
hvert eru þúsund ólöglegra
flóttamanna stöðvuð í Slóvakíu á
leið sinni til ríkja Evrópusam-
bandsins.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
ALDAIR TURNER
Formaður eftirlaunanefndar breskra stjórn-
valda sagði marga eftirlaunaþega framtíð-
arinnar munu glíma við fátækt ef ekki
verði gripið til aðgerða.
Áfangastöðum fækkar
og samkeppni minnkar
Margt hefur breyst í flugheimum að undanförnu. Áfangastöðum hefur fækkað og samkeppnin
sem ríkti á sumum leiðum innanlands er að baki. Ríkið styrkir flug til nokkurra staða.
INNANLANDSFLUGIÐ Í TÖLUM
Farþegar Vörur og póstur
1994 348.921 2.568 tonn
1997 415.517 1.511 tonn
2000 445.500 1.582 tonn
2001 352.511 1.311 tonn
2002 335.935 1.389 tonn
2003 355.700 1.351 tonn
Heimild: Flugmálastjórn
■ KENNARAVERKFALL
FORELDRAR KAUPA SKÓLAVÖRUR
Gríðarleg aukning er sögð hafa
átt sér stað í innkaupum foreldra
í Skólavörubúðinni auk þess sem
heimsóknum á vef verslunarinn-
ar, www.skola.is, hefur fjölgað
verulega. Rafn Benedikt Rafns-
son, framkvæmdastjóri verslun-
arinnar, segir að í þessu megi
greina eina afleiðingu kennara-
verkfallsins.