Fréttablaðið - 13.10.2004, Qupperneq 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 107 stk.
Keypt & selt 29 stk.
Þjónusta 38 stk.
Heilsa 9 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 7 stk.
Tómstundir & ferðir 7 stk.
Húsnæði 14 stk.
Atvinna 36 stk.
Tilkynningar 6 stk.
Opnir tímar í tréskurði
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagurinn 13.
október, 287. dagur ársins 2004.
Reykjavík 8.13 13.14 18.14
Akureyri 8.02 12.59 17.54
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Námskeið í pastellitamálun er að hefjast
hjá Mími símenntun og það er nýjung þar á
bæ. Kennari er Birgir Rafn Friðriksson
myndlistarmaður, sem er aðdáandi pastel-
lita en segir þá hafa goldið þess síðustu ár
að vera ekki í tísku. „Pastel er þó virt teg-
und innan myndlistar í heiminum og gaml-
ir meistarar eins og Svavar Guðnason og
Hringur Jóhannesson tileinkuðu sér hana,
að ógleymdum hinum spænska Míró,“ segir
listamaðurinn brosandi þar sem við hittum
hann á vinnustofu sinni Gallerí Teiti í Engi-
hjallanum. Þar lifir listin góðu lífi og
pastellitirnir liggja á borðinu. Þeir líkjast
vaxlitum í útliti. Birgir Rafn segir þá mjög
handhæga, ekki síst þurrpastel sem hann
muni nota á námskeiðunum. „Það er gaman
að handleika þessa liti og hægt að leika sér
heilmikið með þá. Það má eiginlega segja
að þeir séu mitt á milli vatnslita og olíulita
og notkun þeirra sameinar veigamestu
þætti myndlistar svo sem teikningu, lita- og
formskilning,“ segir hann. Ýmis verkfæri
og hjálparmeðul nýtast með pastellitunum,
svo sem sköfur og tannburstar og einnig
úði til að festa pastelinn niður svo hægt sé
að fara fleiri umferðir. Birgir Rafn segir
auðvelt að skapa mismunandi áferð á
myndirnar með áhöldum og ólíkum tegund-
um pappírs.
Námskeiðið verður á Grensásveginum í
höfuðstöðvum Mímis og stendur í átta vik-
ur. Birgir Rafn segir það verða miðað út frá
því að það henti bæði byrjendum og lengra
komnum.
gun@frettabladid.is
Pastellitanámskeið hjá Mími:
Litir sem Svavar,
Hringur og Míró notuðu
Ljósmynda- og tískuförðun
verður kennd á 13 vikna nám-
skeiði í Förðunarskóla Make up
for ever og hefst 18. október.
Tímarnir eru fjórum sinnum í
viku, fjóra tíma í senn og auk
þess er tekin ein vinnuhelgi á
þessum 13 vikum. Að sögn
Bjargar Snjólfsdóttur, fram-
kvæmdastjóra skólans, er
námið góður grunnur undir
frekara nám í kvikmyndaförð-
un, leikhúsförðun, sjónvarps-
förðun eða tískuförðun. Förðun-
arskólinn er í Hamraborg 7 í
Kópavogi.
Erjur og átök Hofverja í Vopna-
firði og Krossvíkinga verða eitt
aðalefni Jóns Böðvarssonar
cand.mag á námskeiði sem
nefnist Sögur og þættir úr
Vopnafirði og hefst annað kvöld
hjá Endurmenntun HÍ. Þorsteins
saga hvíta, Vopnfirðinga saga,
Þorsteins þáttur stangarhöggs,
Brand-Krossa þáttur og Þorsteins
þáttur uxafóts verða þar krufnar
og rætt um tengsl við aðrar Aust-
firðingasögur og Brennu-Njáls-
sögu.
Skemmtileg fræðsla í fullri
alvöru er yfirskrift fjölbreyttra
námskeiða sem Iðntækni-
stofnun býður upp á nú á
haustmánuðum. Eitt þeirra
hefst á morgun 14. október er
nefnist Leiðbeinandinn - kynning
og framsögn og eru ætluð þeim
sem þurfa að halda kynningar,
fræðslufundi og námskeið á
vinnustað eða í félagslífi. Það
stendur í tvo daga, samtals 16
kennslustundir. Lager og
vörustjórnun heitir annað
námskeið sem hefst 26. október.
Nánari upplýsinar er að finna á
iti.is
nam@frettabladid.is
Ragnhildur Guðjónsdóttir og börnin Katrín Brynja Kristinsdóttir, Embla Rut Erlends-
dóttir og Ívar Bjarki Erlendsson fylgjast með Birgi R. Friðrikssyni handleika pastelliti.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í NÁMINU
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Vinur minn er
búinn að eignast
nýjan pabba en
ég á ennþá bara
þennan sama
gamla sem ég
fæddist með.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA