Fréttablaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 13. október 2004
Model 6337
14.4 borvél
2.6 amp rafhl
1/2” patr, 65 Nm
Auka rafhl.
23.900
TILBOÐSDAGAR 13.10 - 15.10.04
Model 6347
18 v borvél
1/2” patr, 80 Nm
2.6 amp rafhl
Auka rafhl.
28.900
Model HR2440
Höggborvél
780 W
2.7 Joule
14.900
Model 5704R
Hjólsög
0=190mm
1200 Wött
4.6 kg.
14.900
Model 1902
82 mm Hefill
580 Wött
2.5 kg.
13.500
REYKJAVÍK • AKUREYRI
Auk þess: KEÐJUSAGIR, FRÆSARAR, NAGLARAR, SVERÐSAGIR
STINGSAGIR, BORVÉLAR, BROTVÉLAR, PÚSSIVÉLAR OG FL.
GÓÐAR VÉLAR - BETRI VERÐ
a›eins í eina viku
mi›vikudagur 13 október
til mi›vikudags 20 október
opnunartími:
virka daga kl. 11 - 18
laugardaga 11 - 16
(loka› sunnudag)
nike lagersala allt a› 70% afsláttur
n‡legar vörur a.m.k. 40% afsláttur
n‡jar vörur 20% afsláttur
peysa.........
buxur.........
gallar.........
bolir...........
skór...........
sundbolir...
bolir.........
buxur.......
peysur......
1990
1990
4990
990
1990
790
Ver›dæmi
490
1490
1490
Ver›dæmi
n‡jar vörur
daglega
www.ithrottabudin.com
KÖRFUBOLTI Anna María Sveinsdótt-
ir, leikmaður kvennaliðs Keflavík-
ur í körfubolta, spilar tímamóta-
leik í kvöld þegar hún verður
fyrsta körfubolta-
konan til þess að
spila 300 deildar-
leiki í efstu deild.
Keflavíkurliðið
tekur þá á móti
nýliðum Hauka á
Sunnubrautinni í
Keflavík en þar
hefur heimavöllur
Önnu Maríu verið
allan hennar feril
í efstu deild sem
spannar nú 19
tímabil.
Anna María lék
sinn fyrsta leik
gegn KR 6. októ-
ber 1985 þegar
Keflavíkurliðið
vann eins stigs
sigur í sínum
fyrsta leik í efstu deild. Síðan þá
hefur Keflavík leikið 343 leiki í
efstu deild.
Anna María hefur verið með í
299 þeirra og verið þátttakandi í
öllum 22 stóru titlunum sem
kvennalið félagsins hefur unnið.
Anna María hefur alls unnið 36
titla með Keflavík á þessum 19
árum, 11 Íslandsmeistaratitla, 11
bikarmeistaratitla, 8 deildar-
meistaratitla, 2 fyrirtækjabikara
og Meistarakeppni KKÍ 4 sinnum.
Þá hefur enginn leikmaður
leikið fleiri landsleiki (60), skorað
fleiri stig í efstu deild (4.720), ver-
ið oftar valinn leikmaður ársins
(6) eða kosinn oftar í lið ársins
(10) svo eitthvað
sé nefnt af öllu
sem Anna María
hefur afrekað á
körfuboltavellin-
um.
Hún hefur ver-
ið toppleikmaður
í toppliði allan
þennan tíma, sem
sést vel á því að
Anna María hefur
skorað 15,8 stig
að meðaltali í
þeim 299 deildar-
leikjum sem eru
að baki og Kefla-
víkurliðið hefur
unnið 84% þeirra,
252 af 299.
Anna María á
að baki 65 leiki
sem spilandi þjálfari en hún þjálf-
aði einnig Keflavíkurliðið 1997-99
og 2001-03. Undir hennar stjórn
vann liðið tvo Íslandsmeist-
aratitla og einn bikarmeistaratitil.
Nú er Anna María bara
óbreyttur leikmaður, hún sækist
ekki eftir fyrirliðastöðunni og
nýtur þess aðeins að spila körfu-
bolta en þeir sem þekkja til
keppniskonunnar Önnu Maríu
Sveinsdóttur segja að hún sé ekki
hætt að vinna titla.
ooj@frettabladid.is
FÓTBOLTI Henrik Larsson, leikmaður
sænska landsliðsins í knattspyrnu,
reiknar með mikilli mótspyrnu af
hálfu Íslendinga í leiknum í kvöld.
Ef rýnt er í viðureignir þessara
tveggja liða við lið Möltu ættu Sví-
arnir að vinna leikinn frekar auð-
veldlega. Þeir burstuðu Möltubúa,
7-0, en Ísland gerði 0-0 jafntefli.
Larsson fer varlega í að ein-
falda hlutina á þennan hátt. „Þetta
er ekki svo auðvelt,“ segir Lars-
son. „Ef við gætum reiknað dæm-
ið þannig, þá væri það þægilegt.
En þannig virkar þetta ekki. Við
áttum stórleik gegn Möltubúum
og þeir settu leik sinn öðruvísi upp
gegn okkur en Íslendingum og
gátu því veitt þeim meiri mót-
spyrnu en okkur.“
Að sögn Larssons mætir
sænska liðið til leiks með það fyrir
augum að Íslendingar séu verðug-
ir andstæðingar. „Við vitum að við
eigum erfiðan leik fyrir höndum.
Meðal andstæðinga okkar eru at-
vinnumenn úr deildum í Evrópu,
til dæmis Englandi og Þýskalandi,
og þeir eiga að auki marga leik-
reynda leikmenn. Það er pressa á
þeim og þeir munu reyna að gera
okkur leikinn eins erfiðan og hægt
er.“
Larsson sagðist þekkja vel til
Eiðs Smára Guðjohnsen. „Hann
þekkja náttúrlega allir og svo er
náunginn hjá Charlton líka í liðinu.
Maður þekkir andlitin betur en
nöfnin þegar maður sér þá spila í
stóru deildunum og Íslendingar
virðast ekki vera á flæðiskeri
staddir með atvinnumenn.“
Larsson fullyrðir að persónu-
leg frammistaða hans skipti ekki
máli heldur verði liðið að standa
sig vel í heild sinni. „Það hjálpar
til að við Zlatan og Mackan erum
farnir að þekkja hvern annan
nokkuð vel og lesum hvern annan
betur með hverjum leiknum. Svo
verðum við að sjá til hvaða leik-
aðferð Íslendingar beita gegn
okkur og gera viðeigandi ráðstaf-
anir við því.“
Framherjinn skæði segir Ís-
lendingana vera vel á sig komna
og leikurinn gæti því orðið í
harkalegri kantinum. „Þeir eru
sterkir og duglegir og eiga þar að
auki mjög góða áhorfendur sem
standa vel við bakið á þeim. Ef til
kastanna kemur verðum við að
vera fastir fyrir og verði einhver
harka í leiknum þá þýðir ekkert að
væla yfir því. En það má alltaf bú-
ast við því þegar svona lið mætast
að einhver harka verði fyrir hendi
og þá er bara að taka á því.
Taktískt séð verðum við að vera
tilbúnir og þess er krafist af okkur
að við getum spilað hraðan bolta
og að það bitni ekki á taktísku hlið-
inni,“ sagði Henrik Larsson.
smari@frettabladid.is
Íslendingar verðugir
andstæðingar
Henrik Larsson á alls ekki von á auðveldum leik.
>> FERILL ÖNNU MARÍU
í efstu deild
Lið: Keflavík
Tímabil: 19
Leikir: 299
Stig: 4.720
Stig að meðaltali: 15,8
Sigurleikir: 252
Tapleikir: 47
Sigurhlutfall: 84,3%
>> FLESTIR LEIKIR
í efstu deild kvenna:
299 Anna María Sveinsdóttir 1985-
292 Hafdís Helgadóttir 1985-
287 Sigrún Skarphéðinsdóttir 1983-
264 Guðbjörg Norðfjörð 1986-2002
240 Linda Stefánsdóttir 1987-2002
214 Kristín Blöndal 1986-2003
201 Björg Hafsteinsdóttir 1985-1997
Leikur sinn 300. leik
Tímamót hjá Önnu Maríu Sveinsdóttur í kvöld.
ANNA MARÍA SVEINSDÓTTIR Körfu-
knattleikskonan úr Keflavík leikur sinn
300. leik í kvöld.
HENRIK LARSSON á blaðamannafundi á
Hótel Nordica í gær.