Fréttablaðið - 14.11.2004, Page 2
2 14. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Nýr meirihluti bæjarstjórnar:
Friður og framfarir í Eyjum
SVEITARSTJÓRNAMÁL Sjálfstæðis-
flokkur og Vestmannaeyjalisti
skrifuðu aðfaranótt laugardags
undir yfirlýsingu um meirihluta-
samstarf í bæjarstjórn Vestmanna-
eyja undir slagorðinu „friður og
framfarir“. Samstarfi V-lista og
Framsóknarflokks var slitið á fundi
bæjarráðs á föstudagskvöld.
Ekki hefur endanlega verið geng-
ið frá skipan í embætti, segir Lúðvík
Bergvinsson, oddviti V-listans, en
þau mál verða rædd eftir að sam-
starfsyfirlýsingin hefur verið lögð
fyrir félagsfundi flokkanna tveggja.
Sjálfstæðismenn samþykktu sam-
starfið á fundi í gær, en V-listinn
hefur boðað félagsfund á mánudag.
„Við þessar aðstæður taka menn
hagsmuni sveitarfélagsins fram yfir
gömul deilumál,“ sagði Arnar Sigur-
mundsson, oddviti sjálfstæðis-
manna. Lúðvík Bergvinsson tekur í
sama streng og segir menn ætla að
snúa bökum saman. „Og þegar menn
gera það þýðir ekkert að vola það
sem liðið er,“ sagði hann.
Andrés Sigmundsson, fulltrúi
Framsóknarflokksins, sem áður
gekk úr samstarfi við Sjálfstæðis-
flokkinn í andstöðu við stjórn Fram-
sóknarfélagsins í Eyjum, er að von-
um ósáttur og segir samstarfsslitin
nú gerð „með upplognum tilefnum
og með því að vega að mannorði
annarra manna“. - óká
Lést eftir hnefa-
högg í höfuðið
Danskur hermaður lést eftir að hafa fengið hnefahögg í andlitið fyrir
framan bar skemmtistaðarins Traffic í Keflavík. Í kjölfarið var 29 ára
gamall Skoti sem höggið veitti handtekinn á heimili sínu í Keflavík.
LÖGREGLUMÁL Danskur hermaður
lést eftir hnefahögg á skemmti-
staðnum Traffic í Keflavík í fyrri-
nótt. 29 ára gamall skoskur maður
var handtekinn í kjölfarið en hann
er grunaður um að hafa slegið
manninn. Sá var í gær úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald til mánudags.
Sjúkraflutningamenn komu á
skemmtistaðinn þar sem tilkynnt
hafði verið um slasaðan mann
klukkan rúmlega fjögur aðfaranótt
laugardags. Þeir
fluttu manninn inn
í starfsmanna-
aðstöðu staðarins
þar sem þeir
gerðu á honum
endurlífgunartil-
raunir. Síðar var
maðurinn fluttur á
Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja þar
sem hann var úr-
skurðaður látinn.
Ekkert blóð var
sjáanlegt á vettvangi né á þeim
látna þegar lögreglan kom á stað-
inn. Átti þá reyndar eftir að fara
fram vettvangsrannsókn. Ekki var
talin þörf á að fá tæknideild lög-
reglunnar í Reykjavík til að rann-
saka vettvanginn.
Vitni sögðu að danski her-
maðurinn hafi verið sleginn eitt
högg í höfuðið fyrir framan bar
veitingastaðarins. Að því loknu er
sá sem höggið veitti sagður hafa
gengið rakleiðis út af staðnum.
Lögreglan handtók manninn
skömmu síðar á heimili hans í
Keflavík og virtist hann talsvert
mikið ölvaður. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins hafði Dan-
inn verið „utan í“ kærustu hins
mannsins, sem líkaði það illa og
kýldi hermanninn. Maðurinn sem
höggið vitni sáu slá hinn er
skoskur ríkisborgari sem verið
hefur búsettur hér á landi í nokk-
ur ár. Karl Hermannsson, yfirlög-
regluþjónn í Keflavík, segist ekki
vita til þess að maðurinn hafi áður
komið við sögu lögreglu.
Daninn kom hingað til landsins
á föstudagskvöld með flugvél
danska hersins. Hann ætlaði að
gista ásamt félögum sínum úr
flugáhöfninni á Hótel Keflavík.
Saman fóru þeir í miðbæ Kefla-
víkur til að skemmta sér eftir að
hafa komið sér fyrir á hótelinu.
Danski hermaðurinn hét Flemm-
ing Tolstrup og var 33 ára.
hrs@frettabladid.is
Lögregluþjónar:
Hjálpuðu til
við innbrot
FRAKKLAND, AFP Franskur innbrots-
þjófur taldi það ekki eftir sér að fá
lögregluna til að hjálpa sér við inn-
brot. Maðurinn hringdi á lögreglu-
stöðina í Enghien-les-Bains, smábæ
norðvestur af París, síðla kvölds og
bað um hjálp við að komast inn í
skartgripaverslun. Hann sagðist
vera eigandi verslunarinnar en
kvaðst hafa týnt lyklunum og kæm-
ist því ekki inn.
Lögreglumenn komu á vettvang
og hjálpuðu honum inn. Þá fór að
gruna að eitthvað væri á seyði þeg-
ar hann stakk inn á sig úrum og
pennum að verðmæti milljón. Hann
slapp þó út en náðist næsta dag. ■
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON
Ætlað er að tekjur borgarinnar aukist um
870 milljónir króna við útsvarshækkunina,
en peningana á að nota til að greiða niður
skuldir eða mæta hugsanlegum launa-
hækkunum.
Skattheimta:
Hækkun í
Reykjavík
SKATTAR Borgarstjórnarflokkur
Reykjavíkurlistans ákvað í gær
að leggja til á fundi borgarstjórn-
ar þann 16. nóvember að út-
svarsprósenta næsta árs verði
13,03 prósent í stað 12,7 prósenta
og fasteignaskattur af íbúðarhús-
næði 0,345 prósent af fasteigna-
mati í stað 0,320 prósenta.
Þórólfur Árnason borgarstjóri
segir forsvarsmenn ríkisvaldsins
hafa legið sveitarfélögunum á
hálsi fyrir að nýta ekki betur
skattstofna sem þau hafa til um-
ráða. „Ég tel óábyrgt að krefjast
fleiri tekjustofna ef við sem stýr-
um sveitarfélögunum nýtum ekki
tekjustofnana sem þegar eru fyrir
hendi,“ sagði hann. - þlg
BÁTUR Í VANDA Fjórar björgunar-
sveitir Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar í Eyjafirði voru kallaðar
út síðdegis í gær eftir að tilkynn-
ing barst um neyðarblys innar-
lega í firðinum. Fljótlega barst til-
kynning frá trillu að hún hefði
komið að vélarvana hraðbát og
hafði áhöfn hans skotið blysinu.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
■ BJÖRGUNARSVEITIR
,,Ekkert
blóð var
sjáanlegt á
vettvangi
né á þeim
látna þegar
lögreglan
kom á stað-
inn.
„Jújú, ég þáði hálfan heilann.“
Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, þáði kvöldverðarboð PLO árið 1990 í
Túnis, þar sem Jasser heitinn Arafat klauf í tvennt
lambshöfuð og deildi lambsheilanum með Stein-
grími, sem voru sérréttindi íslenska ráðherrans
sem heiðursgests.
SPURNING DAGSINS
Steingrímur, vildirðu ekki heilan?
FLYTJA SÆRÐAN HERMANN
Yfir 400 bandarískir hermenn hafa verið
fluttir á hersjúkrahús í Þýskalandi eftir að
hafa særst í Falluja.
Bardagar í Falluja:
Neyð meðal
almennings
ÍRAK, AFP/AP Hjálparsamtök lýsa
miklum áhyggjum af aðbúnaði
óbreyttra borgara í Falluja sem
enn hafast við í borginni. Birgða-
lest Rauða hálfmánans var hleypt
að sjúkrahúsi í vesturhluta borg-
arinnar en var bannað að dreifa
matvælum til fólks í borginni
meðan bardagar stæðu enn yfir.
Írakar segjast hafa náð mark-
miðum sínum í Falluja, borgin sé
á þeirra valdi og aðeins eigi eftir
að uppræta fáeina hópa víga-
manna. Þeir segja þúsund víga-
menn hafa fallið og 200 verið
tekna til fanga.
Ein bandarísk hersveit var í
gær send frá Falluja til Mosul þar
sem vígamenn hafa haldið uppi
miklum árásum meðan á bardög-
um í Falluja stendur. ■
ÖKUNÍÐINGAR Fjórir ökumenn
voru stöðvaðir í umdæmi lögregl-
unnar í Hafnarfirði og Garðabæ
aðfaranótt laugardags og á laug-
ardag fyrir ölvun við akstur.
Fíkniefni fundust enn fremur í
bíl sem lögreglan stöðvaði og
gekkst ökumaður við eign þeirra.
Þá voru níu teknir fyrir of hrað-
an akstur, þar af einn sem var 49
kílómetrum yfir hámarkshraða.
Tappatogari með skera
Frábær græja
- Tappinn flýgur af
Heimastjórn Palestínu óskar hjálpar við framkvæmd forsetakosninga:
Í framboð úr fangelsi
PALESTÍNA, AFP/AP Palestínumenn
kjósa sér nýjan forseta í síðasta
lagi 9. janúar, sagði Ahmed Qur-
eia, forsætisráðherra palestínsku
heimastjórnarinnar, sem hét því
að láta kosningar fara fram eins
fljótt og auðið er. Samkvæmt pal-
estínskum lögum þurfa þær að
fara fram innan 60 daga frá and-
láti forsetans.
Marwan Barghuti, einn vinsæl-
asti forystumaður Palestínu-
manna, hefur ákveðið að bjóða sig
fram þrátt fyrir að hann afpláni
nú fimmfaldan lífstíðardóm
vegna morða sem ísraelskur dóm-
stóll fann hann sekan um.
Palestínumenn óskuðu í gær
eftir aðstoð alþjóðasamfélagsins
til að tryggja að kosningarnar
færu vel og örugglega fram.
Stefnt hafði verið að því að kjósa
forseta, þing og sveitarstjórnir
snemma á næsta ári en andlát
Arafats varð til þess að flýta verð-
ur forsetakosningunum.
Michel Barnier, utanríkisráð-
herra Frakklands, hvatti í gær til
stofnunar Palestínuríkis eins
fljótt og auðið væri, jafnvel þó
landamæri þess væru aðeins
ákveðin til bráðabirgða fyrst um
sinn. ■
LÚÐVÍK BERGVINSSON
Oddviti V-listans í Vestmannaeyjum leggur
samstarfsyfirlýsingu V-lista og Sjálfstæðis-
flokks fyrir félagsfund á morgun. Sjálfstæð-
ismenn samþykktu samstarfið í gær.
BIÐJAST FYRIR VIÐ GRÖF ARAFATS
Þúsundir Palestínumanna lögðu leið sína að gröf Jassers Arafat í gær og báðust þar fyrir.
Þeirra á meðal voru forystumenn heimastjórnarinnar.
FYRIR UTAN SKEMMTISTAÐINN TRAFFIC Í KEFLAVÍK
Ekkert blóð var sjáanlegt á vettvangi né á þeim látna þegar lögreglan kom á staðinn.
M
YN
D
/VÍKU
R
FRÉTTIR