Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 4
4 14. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Fráveitumál í Molduhrauni eru ekki í samræmi við reglugerð:
Garðabær braut stjórnsýslulög
ÚRSKURÐUR Garðabær braut
stjórnsýslulög með því að ganga
ekki frá fráveitukerfinu við iðn-
aðarhverfið í Molduhrauni á við-
unandi hátt.
Úrskurðarnefnd um hollustu-
hætti og mengunarvarnir kvað
upp úrskurð þessa efnis eftir að
húsfélagið Miðhrauni 22 hafði
kært bæinn. Fallist var á þau rök
húsfélagsins að rotþróarkerfið
annaði ekki hverfinu og á þá kröfu
félagsins að fráveitukerfið væri
ekki í samræmi við reglugerð um
fráveitur og skólp. Kröfu um að
bænum væri skylt að koma upp
sameiginlegu fráveitukerfi var
vísað frá. Úrskurðarnefndin sagði
það ekki vera á verksviði nefndar-
innar að kveða á um slíkt.
Málið hefur verið í gangi allt
síðan í október árið 2001 þegar
bæjaryfirvöldum var sent bréf
frá lögmanni húsfélagsins þar
sem kvartað var yfir ástandinu.
Þó að kröfunni um að bænum
væri skylt að koma upp sameigin-
legu fráveitukerfi hafi verið vísað
frá telja heimildir Fréttablaðsins
víst að fyrirtæki í Molduhrauni
muni fara fram á það við bæjar-
yfirvöld í Garðabæ að þau lagi
fráveitumálin. Staðfest sé að bær-
inn hafi með frágangi sínum brot-
ið stjórnsýslulög.
- th
Lög samþykkt eftir
breytingar nefndar
Í gær voru sett lög á verkfall kennara. Gerðardómur kemur fyrr saman
en til stóð og kauphækkun gildir frá því að kennarar mæta til starfa.
Stjórnarandstaðan segir lögin vond, ögrandi og hugsanlega gera illt verra.
KENNARAVERKFALL Alþingi sam-
þykkti frumvarp til laga sem
banna verkfall kennara í grunn-
skólum með 28 atkvæðum gegn
21. Þær breytingar urðu í meðför-
um Allsherjarnefndar að gerðar-
dómur kemur
mun fyrr saman
en í upphaflegu
frumvarpi eða 20.
nóvember takist
samningar ekki
milli deilenda.
Gerðardómurinn
á að skila af sér
fyrir 20. febrúar
og ákvarðanir
hans eru bindandi
sem kjarasamn-
ingur á milli aðila
frá og með gildis-
töku laganna en
ekki 15. desem-
ber eins og lagt
var til í upphafi.
Þetta ákvæði
tryggir að kaup-
hækkanir gilda frá þeim degi sem
kennarar koma til starfa á ný, sem
verður strax á mánudag.
Bjarni Benediktsson, formaður
Allsherjarnefndar Alþingis, segir
að ákvæðið um að gefa deilendum
svigrúm til frjálsra samninga til
15. desember hafi verið í upphaf-
legu frumvarpi til að koma til
móts við sjónarmið Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar. „Það kom
skýrt fram hjá deiluaðilum að
þeir kærðu sig ekki um þennan
frest og þegar það lá fyrir vorum
við í allt annarri stöðu,“ segir
Bjarni.
Stjórnarandstaðan greiddi at-
kvæði gegn lögunum. Ögmundur
Jónasson, þingmaður Vinstri
grænna, segir að breytingar
nefndarinnar hafi að vísu verið til
bóta en flokkurinn sé í grundvall-
aratriðum á móti lagasetningunni:
„Við erum andsnúin því að setja
lög á verkföll og lögbinda kaup og
kjör með þessum hætti.“
Björgvin G. Sigurðsson, tals-
maður Samfylkingarinnar í
menntamálum, segir að flokkur-
inn hafi farið vandlega yfir lögin
með opnum hug enda hefðu kenn-
arar gefið til kynna að þeir sættu
sig við gerðardóm: „Við teljum að
þessi lög séu ofbeldisfull, ögrandi
og vond og geti jafnvel haft verri
afleiðingar í för með sér en áfram-
haldandi verkfall, mæti kennarar
ekki til vinnu á mánudag eða segi
upp störfum í stórum hópum.“
Samfylkingin setur aðallega
þriðju grein frumvarpsins fyrir
sig. Björgvin segir að í raun banni
hún að grunnskólakennarar fái
sömu kjör og framhaldsskóla-
kennarar.
a.snaevarr@frettabladid.is
Deilur á toppnum:
CIA í
uppnámi
BANDARÍKIN, AFP Bandaríska leyni-
þjónustan, CIA, er í upplausn í
kjölfar þess að Porter Goss tók til
starfa sem nýr yfirmaður hennar.
Fjöldi háttsettra manna hótar að
segja af sér í kjölfar deilna við
manninn sem Goss lætur stjórna
daglegum rekstri, að því er fram
kom í Washington Post.
Reyndir yfirmenn í leyniþjón-
ustunni eru ósáttir við hversu mikið
vald Goss hefur gefið næstráðanda
sínum. Yfirmaður starfsemi leyni-
þjónustunnar erlendis sagði af sér á
föstudag að sögn blaðsins en sam-
þykkti að hugsa málið yfir helgina.
Fleiri eru sagðir íhuga uppsögn. ■
Þverárfjallsvegur:
Velta á vegi í
lagningu
LÖGREGLA Fjórir sluppu lítið meiddir
eftir bílveltu í hálku á Þverárfjalls-
vegi um miðjan dag í gær. Lögregl-
an á Blönduósi segir mildi að ekki
fór verr, en fólkið var allt í bílbelt-
um. Bíllinn, sem endastakkst og
lenti á hvolfi ofan í skurði, er talinn
gjörónýtur. Vegfarandi sem kom að
slysinu og keyrði þá sem meiddust á
sjúkrahúsið á Sauðárkróki.
Vegurinn er nýr, ókláraður fjall-
vegur sem styttir leiðina úr Skaga-
firði yfir á Blönduós. Síma- og tal-
stöðvarsambandslaust er uppi á
fjallinu, en lögreglan hefur barist
hart fyrir að fá símasamband þang-
að upp vegna mikillar umferðar á
annars varhugaverðum vegi. - þlg
Suðurland:
Þrjár veltur í
mikilli hálku
LÖGREGLA Nokkuð var um bílveltur í
umdæmi lögreglunnar á Selfossi í
gærmorgun. Bílaleigujeppi með
þremur Japönum valt á Suðurlands-
vegi vestan Biskupstungnabrautar
án þess að nokkur meiddist. Svo
valt bílaleigubíll með tveimur út-
lendingum á Biskupstungnabraut
ofan við Þrastarlund laust fyrir há-
degi og urðu minniháttar meiðsl á
fólki. Þá missti ökumaður stjórn á
bifreið sinni í Kömbunum en meidd-
ist lítið. Allar bílvelturnar urðu
vegna ísingar og hálku, en rigning
var og þíða sem breyttist strax í
krapa og ísingu á veginum. Bílarnir
eru allir illa skemmdir. - þlg
■ ÍRAK
■ LÖGREGLA
,,Við telj-
um að þessi
lög séu of-
beldisfull,
ögrandi og
vond og
geti jafnvel
haft verri
afleiðingar í
för með sér
en áfram-
haldandi
verkfall.
Styrkir þú stjórnmálaflokk með
fjárframlögum?
Spurning dagsins í dag:
Finnur þú oft fyrir dagsyfju?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
17,5%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
BJÖRGUNARMAÐUR
Þessi björgunarmaður hélt niður í námu í
Henan-héraði til að bjarga námamönnum.
33 létust.
Kolanámumenn:
Kínverjar í
mestri hættu
KÍNA, AP Fjórir af hverjum fimm
kolanámumönnum sem létu lífið í
slysum á síðasta ári létust í Kína.
Þá létust 6.702 einstaklingar í
námuslysum í Kína. Fyrstu níu
mánuði þessa árs létust 4.153 í
námuslysum þrátt fyrir átak
stjórnvalda til að auka öryggi í
kolanámum.
Kínverjar standa undir þriðj-
ungi kolauppgraftar á heimsvísu.
Afköst hvers starfsmanns eru þó
minni en víða annars staðar og
dánartíðni mun hærri. Þannig
gefur hver bandarískur kola-
námumaður upp fimmtíufalt
meira magn kola en meðalkola-
námuverkamaðurinn í Kína.
Dánartíðni Kínverjanna er hins
vegar hundraðfalt hærri. ■
VELTA VIÐ HVOLSVÖLL Kona slapp
án teljandi meiðsla í bílveltu rétt
austan við Hvolsvöll á tíunda tím-
anum í gærmorgun. Mikil hálka
var á veginum og missti ökumað-
ur stjórn á honum þannig að hann
kastaðist út af veginum. Bíllinn
er talsvert skemmdur.
VELTA Í MÝVATNSSVEIT Bíll valt
við Höfða við Mývatn um miðn-
ættið á föstudagskvöld. Ung
stúlka var í bílnum og slapp án
teljandi meiðsla. Bíllinn er tals-
vert skemmdur.
edda.is
3. sæti
Börn
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
3. – 11. nóv.
Framhald verðlauna-
bókarinnar Greppiklóar.
„Þýðing Þórarins Eldjárn
er algjör snilld.“
– Birta
KÓLNANDI VEÐUR
Nú fellur hitastigið og
má búast við frosti um
allt land í kvöld og
næstu daga. Undan-
tekningin er þriðju-
dagurinn, en þá gæti
hlýnað um tíma syðra.
Það veður vindasamt,
sérstaklega norð-
austanlands þar sem
gæti orðið hvassviðri
í dag og jafnvel storm-
ur allra norðaustast.
Það má búast við
éljum fyrir norðan í
dag en annars staðar
verður úrkomulítið.
Hann hallar sér í
norðrið á morgun með
hægum vindi og frosti
um allt land. Þriðju-
dagurinn er enn dálítið
á reiki í spánum.
Kaupmannahöfn 11°C sk. m. köflum
London 9°C sk. m. köflum
París 9°C skýjað
Frankfurt 7°C léttskýjað
Glasgow 13°C skýjað
Stokkhólmur 8°C sk .m. köflum
Barcelona 14°C sk. m. köflum
Helsinki 2°C léttskýjað
Osló 2°C úrkoma
Róm 14°C rigning
Madrid 12°C sk. m. köflum
Amsterdam 10°C sk. m. köflum
Þriðjudagur
Yfirleitt fremur hæg norðlæg átt.
Nokkuð stíf austlæg átt, sérstaklega
vestan til. Heldur hægari eystra.
Kveðja,
Guðríður
Arnardóttir
náttúrufræðingur.
All hvasst
0
0
-4
-5
-5
-2
0
+4
+2
+2
-8
-5
-5
-5
-4
0
0
-6
-5
-5
+1
Hvassviðri
Hvassviðri
All hvasst
All hvasst
Nokkur vindur
Hvassviðri
All hvasst
Strekkingur
Strekkingur
Strekkingur
82,5%
VIÐ MIÐHRAUN Í GARÐABÆ
Fallist var á þau rök húsfélagsins að rot-
þróarkerfið annaði ekki hverfinu.
AÐ AFLOKINNI LAGASETNINGU
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ræðir við þingmenn Samfylkingarinnar, Jóhönnu Sig-
urðardóttur og Guðmund Árna Stefánsson, að aflokinni lagasetningu sem batt enda á
verkfall kennara í hádeginu í gær.
KLERKAR HANDTEKNIR Íraskir
lögreglumenn og bandarískir her-
menn hafa handtekið æðstu klerka
í þremur moskum súnnímúslima,
að sögn leiðtoga súnnímúslima. All-
ir hafa klerkarnir beitt sér gegn
árásum á Falluja, borg sem er að
mestu byggð súnnímúslimum.