Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 6
6 14. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Bankaræningjar fyrir dómi:
Krefst um eins árs fangelsis
DÓMSMÁL Saksóknari krafðist
þess að tuttugu og eins árs mað-
ur, sem framdi vopnað bankarán
í útibúi Búnaðarbanka Íslands á
Vesturgötu í Reykjavík 17. nóv-
ember fyrir ári síðan, fengi í
kringum tólf mánaða fangelsis-
dóm. Aðalmeðferð málsins lauk í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Með manninum var tuttugu og
fimm ára maður ákærður en
hann ók bílnum sem notaður var
við ránið. Í ákæru ríkissaksókn-
ara segir að sá eldri hafi látið
yngri manninum í té hníf og
lambhúshettu, sem hann hafi
hulið andlit sitt með er hann fór
inn í bankann og ógnaði tveimur
gjaldkerum með hnífum. Neyddi
yngri maðurinn annan gjaldker-
ann til að láta af hendi 430 þús-
und krónur í peningaseðlum,
sem ræninginn hafði síðan á
brott með sér.
Sá eldri játaði akstur flóttabíls-
ins fyrir dómi en neitaði að eiga
þátt í ráninu að öðru leyti. Sak-
sóknari taldi sanngjarnt að hann
fengi skilorðsbundinn dóm. Hann
er með hreint sakavottorð. ■
Fordómar í garð
útlendinga aukast
Á fimm árum hafa viðhorf breyst þannig að færri vilja hleypa flóttafólki
inn í landið og fleiri eru andsnúnari því að fólk sem hingað flytur haldi
siðum sínum. Fleiri telja þó að landinn hafi gott af erlendum áhrifum.
ÞJÓÐFÉLAGSGERÐ Fordómar í garð
útlendinga hafa aukist hér á landi
síðustu ár, að því er fram kemur í
könnun sem Gallup gerði fyrir Al-
þjóðahús á viðhorfi Íslendinga til
útlendinga, framandi menningar
og flóttamanna.
Tæplega 36 prósent aðspurðra
í könnun Gallups eru á móti því að
fólk sem hingað flytur frá öðrum
löndum eigi rétt á að halda eigin
siðum og venjum og þá eru tæp 72
prósent andsnúin því að leyfa ætti
fleiri útlendingum að vinna hér á
landi. Að sama skapi eru rúm 72
prósent frekar eða mjög ósam-
mála því að Íslendingar ætti að
taka við fleiri flóttamönnum.
Þegar horft er til fyrri kannana
kemur í ljós að þeim fækkar tals-
vert sem jákvæðir eru fyrir því að
leyfa fleiri útlendingum að starfa
hér á landi og þeim fækkar líka
nokkuð sem eru sammála því að
Íslendingar eigi að taka á móti
fleiri flóttamönnum. Frá árinu
1999 hefur þeim sem vilja leyfa
fleiri útlendingum að starfa hér
fækkað um 14 prósent. Fyrir
fimm árum voru rúmlega 42 prós-
ent svarenda sammála því að
heimila ætti fleiri útlendingum að
starfa hér, en í ár er talan komin
niður í 28 prósent. Á sama tíma
fækkar þeim sem finnst að þjóðin
eigi að taka við fleiri flóttamönn-
um um 18 prósent. Hjá Alþjóða-
húsi kemur fram að þegar horft sé
til afstöðu fólks eftir búsetu ann-
ars vegar og menntunar hins
vegar komi í ljós að Reykvíkingar
séu töluvert jákvæðari en aðrir
landsmenn til málefna útlendinga
og fólk með háskólamenntun já-
kvæðara en aðrir.
Þrátt fyrir að fólk virðist nú
andsnúnara því en áður að fá út-
lendinga í vinnu og að taka á móti
flóttafólki þá fjölgar þeim engu að
síður um 6 prósent frá 1999 sem
telja að Íslendingar hafi gott af
framandi menningu. Árið 1999
voru rúmlega 70 prósent þeirrar
skoðunar, en eru 76,5 prósent í ár.
Þá leiddi könnun Alþjóðahúss í
ljós að fleiri gætu hugsað sér að
sækja námskeið í erlendri matar-
gerð en árið 1999. Þá sögðust rúm
45 prósent geta hugsað sér það á
móti rúmum 59 prósentum nú.
Könnun Gallup fór fram á
tímabilinu 4. mars til 1. apríl í ár,
en fyrst var hringt í fólk og því
svo sendur póstlisti. 2.585 manns
á aldrinum 16 til 75 ára voru í úr-
taki og svarhlutfall var 41,6 prós-
ent.
olikr@frettabladid.is
Kjarnorkudeila:
Benda enn á
Bandaríkin
NORÐUR-KÓREA, AP Það er vel mögu-
legt að leysa kjarnorkudeiluna á
Kóreuskaga ef bandarísk stjórn-
völd láta af
því mark-
miði sínu
að steypa
N o r ð u r -
K ó r e u -
stjórn af
stóli. Þetta
sagði tals-
m a ð u r
norður-kór-
eska utan-
r í k i s -
ráðuneytis-
ins í fyrstu
yfirlýsingu
þarlendra
stjórnvalda um kjarnorkudeiluna
eftir endurkjör George W. Bush
Bandaríkjaforseta.
Sakir þess að Norður-Kóreu-
menn neituðu að taka þátt varð
ekkert af sex ríkja viðræðum um
lausn á kjarnorkudeilunni sem
halda átti í september. Norður-
Kóreumenn hafa ekkert gefið út
um hvort eða hvenær þeir taka
aftur þátt í slíkum viðræðum. ■
40 VÍGAMENN FELLDIR Pakist-
anskir hermenn felldu allt að
fjörutíu vígaliða í herferð sinni
gegn Talibönum, að sögn Niaz
Khatak, hershöfðingja í her
Pakistans. Hann sagði þó að eng-
ar vísbendingar hefðu fengist um
nærveru Osama bin Laden.
ENN RÁÐIST Á BÚDDISTA Einn
lést og þrettán særðust í tveimur
sprengjuárásum á búddista í
sunnanverðu Taílandi. Sá yngsti
sem særðist í sprengjuárásunum
var eins árs drengur. Mikið hefur
verið um árásir á múslima eftir
að 85 múslimar létust í haldi lög-
reglu.
■ EVRÓPA
■ ASÍA
VEISTU SVARIÐ?
1Hvaða flokkar stóðu að meirihluta-samstarfi í Vestmannaeyjum fram að
helgi?
2Hvað verslanakeðju í Danmörkukeyptu Baugur og Straumur meiri-
hluta í á föstudaginn?
3Á lagningu hvaða vegar féllst Skipu-lagsstofnun í vikulokin síðustu?
Svörin eru á bls. 34
Sigrún Eldjárn
edda.is
Skemmtilegt framhald
bókarinnar Týndu augun sem
bóksalar völdu bestu
íslensku barnabókina í fyrra.
Hér rata Stína og Jonni í ný
ævintýri – jafnvel enn
ótrúlegri en síðast!
Barátta gegn hryðjuverkum:
Evrópuríkin
brugðust
BANDARÍKIN „Ekki er nógu mikill
skilningur meðal Evrópuþjóða á
því hversu alvarleg ógnin er,“
sagði Jaap de Hoop Scheffer,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna og gagnrýndi Evrópu-
þjóðir fyrir að taka hryðju-
verkaógnina ekki jafn alvarlega
og bandarísk stjórnvöld.
Scheffer sagði að umræðan í
Evrópu hefði einkennst af því
hversu langt mætti ganga í barátt-
unni gegn hryðjuverkum með
hliðsjón af mannréttindavernd.
Bandaríkjastjórn hefur verið
gagnrýnd fyrir að grafa undan
mannréttindum. ■
Afganskar öryggissveitir:
Börðust
innbyrðis
AFGANISTAN, AP Tveir afganskir lög-
reglumenn og tveir liðsmenn af-
gansks stríðsherra létust þegar
kom til skotbardaga á milli fylk-
inga þeirra í Helmand-héraði. At-
vikið þykir undirstrika þau
vandamál sem stjórnvöld standa
frammi fyrir, stríðsherrar halda
enn í fylkingar sínar auk þess sem
lögregla, her og öryggissveitir
stríða á stundum hver við aðra.
Skotbardaginn braust út í kjöl-
far deilna lögreglumanna og liðs-
manna stríðsherrans en ekki var
sagt frá því um hvað þeir deildu. ■
KJARABARÁTTA Samninganefnd leik-
skólakennara hittist á fundi á
Grand Hótel síðdegis á mánudag
til að ákveða hvort deilu Félags ís-
lenskra leikskólakennara og
samninganefndar sveitarfélaga
verði vísað til ríkissáttasemjara
og hvort leitað verði heimildar í
allsherjaratkvæðagreiðslu leik-
skólakennara til að boða verkfall.
„Við erum mjög slegin yfir
þróuninni hjá grunnskólakennurum
og teljum að þar sé um ákveðna að-
för að ræða. Við lítum svo á að okk-
ar launakröfur hafi verið kýldar
niður og auðvitað mun það hafa ein-
hver áhrif á þróunina í okkar kjara-
baráttu. Annars get ég lítið sagt um
framhaldið. Það skýrist eftir fund-
inn á mánudaginn,“ segir Björg
Bjarnadóttir, formaður félagsins.
Leikskólakennarar hafa lagt
fram launakröfur sem fela í sér
sambærileg kjör og grunnskóla-
kennarar hafa krafist. Viðmiðið er
230 þúsund krónur fyrir 30 ára
deildarstjóra í lok samningstím-
ans árið 2007. - ghs
BJÖRG BJARNADÓTTIR
„Við lítum svo á að okkar launakröfur hafi
verið kýldar niður og auðvitað mun það
hafa einhver áhrif á þróunina í okkar kjara-
baráttu,“ segir hún.
Leikskólakennarar:
Ákveða boðun verkfalls á mánudag
MÓTMÆLI Í SEÚL
Mynd af Kim Jong-il, leið-
toga Norður-Kóreu, var
brennd í mótmælum í
Seúl, höfuðborg Suður-
Kóreu.
SCHEFFER MEÐ BUSH
Framkvæmdastjóri Nató hefur verið á
ferðalagi í Bandaríkjunum.
BÚNAÐARBANKINN
VESTURGÖTU
Í ráninu sem framið var fyrir
ári síðan náðu ræningjarnir 430
þúsund krónum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
HRYÐJUVERKAMAÐUR Í HALDI
Aserar hafa framselt Magomed
Salikhov til Rússlands. Hann er
talinn hafa skipulagt sprengju-
árás á fjölbýlishús í Buinaksk í
Dagestan árið 1999.
BIGLEY MINNST Hundruð manna
og kvenna voru viðstödd minn-
ingarathöfn um Kenneth Bigley í
Liverpool. Bigley var myrtur af
hryðjuverkamönnum í Írak sem
héldu honum í gíslingu. Viðstadd-
ur var Tony Blair, forsætisráð-
herra Breta.
STIGU Á JARÐSPRENGJU Þrír lét-
ust þegar einn þeirra steig á jarð-
sprengju á landamærum
Grikklands og Tyrklands. Menn-
irnir, eru taldir hafa verið ólög-
legir innflytjendur.
FLÓTTAFÓLK
Flóttafólk frá Júgóslavíu við komuna á Akureyri í mars í fyrra. Ný könnun sem
Alþjóðahús lét gera leiðir í ljós að færri taka flóttafólki fagnandi nú en áður.
Fólk með háskólamenntun er þó jákvæðara í garð útlendinga og íbúar
höfuðborgarinnar jákvæðari en landsbyggðarfólk.
Fólk sem er frekar eða mjög
ósammála því að leyfa ætti fleiri
útlendingum að vinna hér á landi:
1999 57,7%
2000 58,9%
2001 56,0%
2002 61,6%
2003 66,0%
2004 71,9%
HEIMILD: KÖNNUN GALLUP FYRIR ALÞJÓÐAHÚS 2004.