Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 9
teppasalans Sami Ullah sem varð
vitni að atburðinum. „Skeggjaður
maður klæddur tötrum eins og
betlari nálgaðist einkennisklædda
friðargæsluliða og sprengdi sig í
loft upp fyrir utan búðina mína.
Bóksölustelpan hafði áður reynt
að selja útlendingunum bækur,“
segir Sami Ullah.
Þennan örlagaríka dag hafði
Feriba farið að heiman heldur
fyrr en venja var því hún þurfti
að kaupa inn fyrir „morgunmat-
inn“ sem snæddur er við sólarlag
í föstumánuðnum Ramadan. Hún
vissi ekki að þetta yrði síðasti
dagur ævi hennar. Hún hafði líka
tekið að sér að kaupa inn fyrir
ömmu sína sem var gestkomandi
á heimilinu. Laila móðir hennar
segir: „Hún sagði við mig:
„Mamma, taktu því rólega, ég
kem heim með brauð og annað
sem við þurfum fyrir kvöld-
matinn.“ Ég sagði allt í lagi en
reyndu að koma frekar snemma.
Hún var þegar búin að selja fyrir
tíu dollara þegar hún dó. Það sem
hún var að selja var ekki þess
virði. Útlendingunum líkaði bara
svo vel við hana.“
Teppasalinn í Kjúklingastræti
segir að Feriba hafi verið frábær
sölumaður. Sumir kaupmennirnir
segja raunar að hún hafi í raun
verið betlari en haft bækur og
blöð til að blekkja lögregluna, sem
reynir að uppræta betl. „Friðar-
gæsluliðarnir elskuðu hana,“ seg-
ir teppasalinn.
Foreldrarnir
Það var ekki heiglum hent að
finna heimilisfang fjölskyldu
stúlkunnar. Mohammad Yousuf
Wahib, oddviti kaupmannanna í
Kjúklingastræti, gat vísað á í
hvaða hverfi hún byggi. Sumir
sögðu að faðir hennar hefði dáið í
borgarastríðinu, aðrir að hann
hefði stungið af heiman fyrir tíu
árum, enn aðrir að hann væri í
Íran. Ekkert af því reyndist rétt.
Fjölskyldan reyndist búa í Rahm-
an Mina-götu í rykugu úthverfi
Karta-e-Naw. Lítill drengur vísar
veginn að nýbyggðri búð úr
timbri. „Þessi er pabbi stelpunn-
ar!“
Inni í búðinni er faðirinn
Talibshah Khaksar, fertugur mað-
ur, lágvaxinn, skarpleitur, græn-
eygður, með rakað andlit. Hann
selur börnum sælgæti. Hann
Talibshah býður okkur heim og
við setjumst niður í litlu herbergi
og biðjum fyrir hinni látnu. Móð-
irin, Laila, eiginkona Talibshah,
slæst í hópinn. Tvö barnanna
koma inn með ærslagangi en hún
rekur þau á dyr með barsmíðum.
Faðirinn er nýkominn frá Íran
þar sem hann hefur reynt að afla
tekna til að sjá fjölskyldu sinni
farborða undanfarið árið. Hann er
greinilega ekki í jafnvægi, hvort
sem það má rekja eingöngu til
dótturmisserisins eða ekki. Hann
hefur í hótunum við yfirvöld og
segist hafa verið svikinn.
„Konan mín gerði boð eftir
mér daginn sem slysið varð og
færði mér þau tíðindi að Feriba
hefði slasast. Þegar ég kom heim
fyrir þremur eða fjórum dögum
eftir ársdvöl í Íran tóku ættingj-
arnir á móti mér með kveinstöf-
um. „Ég brast í grát því ég gerði
mér ljóst þegar ég sá þennan
harm að eitthvað hræðilegt hlyti
að hafa gerst: Feriba hlyti að vera
dáin. Ég fylltist mikilli reiði. Ég
var heima í nokkra daga og fólk
streymdi inn til að biðja fyrir
henni. Því næst fór ég að forseta-
höllinni. Ég vildi hitta Karzai for-
seta en mér var ekki leyft það. Ég
vildi segja honum að ég væri fað-
ir stúlkunnar sem hefði fórnað lífi
sínu og þessi stjórn gerði ekkert
fyrir mig.“
Útlendingarnir sýndu meiri
mannúð
Talibshah Khaksar er í mikilli
geðshræringu. Hann hefur í hót-
unum við Karzai og segir í örviln-
an að hann muni gera allt til að
leita réttar síns, jafnvel fremja
voðaverk.
„Stjórnin lætur ekki einu sinni
í ljósi samúð sína,“ segir faðirinn.
„Þegar ég kom að máli við stjórn-
ina sagðist hún ekkert geta gert
fyrir foreldra þótt börn þeirra
dæju. Ég varð ofsareiður. Þetta
fólk virðist gersneytt allri mann-
úð. Útlendingarnir sýna meiri
samúð en forsetinn og ríkisstjórn-
in. Foringjarnir og hermenn ISAF
komu heim til mín nokkrum sinn-
um og vottuðu samúð sína.“
Ríkisstjórnin borgaði Talib-
shah og fjölskyldu hans 100.000
Afghani í skaðabætur en hann
segir það einungis hafa hrokkið
fyrir kostnaði við fyrsta dag út-
fararinnar og bæna (Fatiha).
Faðirinn fullyrðir að þrír menn
hafi verið handteknir í tengslum
við tilræðið. „Ég skil ekki hvers
vegna stjórnin segir ekki frá því
hverjir beri ábyrgð á skipulagn-
ingunni. Þessa menn ætti að taka
af lífi opinberlega. Tilræðismað-
urinn var félagi í Hezb-e-Islami
sem Gulbuddin Hekmatyar
stjórnar. Hann baðst fyrir í mosku
í Sray Khuja. Hann á að hand-
taka,“ segir harmi sleginn faðir-
inn. Aðspurður hvort hann treysti
á stuðning útlendinga segist hann
varla geta ætlast til þess ef ríkis-
stjórn Afganistans geti það ekki.
En hefur hann einhverjar skoðan-
ir á útlendingunum sem drógu að
sér tilræðismanninn sem varð
dóttur hans að bana? Nei, hann
veit ekkert um hvaðan þeir komu.
Atvikið var ekki þeim að kenna
heldur erlendum flugumönnum
sem ríkisstjórnin á að uppræta.
Faðirinn vill hvorki láta ljós-
mynda sig né afhenda myndir af
dóttur sinni. Talibshah og Laila
eiga tvo syni og tvær dætur.
Talibshah segir að hann muni
aldrei leyfa börnum sínum að feta
í fótspor Feribu og selja útlend-
ingum varning í Kjúklingastræti.
Hann segist ekki vita hvernig
hann eigi að sjá fjölskyldunni far-
borða nú þegar fyrirvinnan sé far-
in og segist ráðþrota ef Karzai
forseti hjálpi fjölskyldunni ekki.
a.snaevarr@frettabladid.is
9SUNNUDAGUR 14. nóvember 2004
08:00 – 08:20 Skráning, afhending ráðstefnugagna
08:20 – 08:30 Opnun
08:30 – 09:20 Uppruni DRG og þróun í heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna
Jugna Shah framkvæmdastjóri Nimitt Consulting Inc., Minnesota
09:20 – 10:00 DRG sem stjórnunarupplýsingar á St. Göran í Svíþjóð
Dr. Birgir Jakobsson forstjóri St. Göran
10:00 – 10:20 Umræður og kaffi
10:20 – 10:40 Þróun og staða á LSH
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri SFU
10:40 – 11:00 Viðhorf klíniskra stjórnenda
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir sviðsstjóri LSH
11:00 – 11:15 Heilbrigðisráðuneytið og DRG
Sveinn Magnússon skrifstofustjóri HTR
11:15 – 11:35 Viðhorf klínískra stjórnenda
Dagbjört Þyrí Þorvarðardóttir
verkefnast. gæðamála lyflækningasviði I LSH
11:35 – 11:55 Kostnaður, framleiðni og fjámögnun
Guðbjartur Ellert Jónsson verkefnastjóri SFU
11:55 – 12:05 Umræður
12:05 – 13:00 Hádegisverður á Grand Hótel
13:00 – 13:40 Samningar byggðir á DRG sem fjármögnunartæki
Dr. Birgir Jakobsson forstjóri St. Göran
13:40 – 14:20 Outpatient/APC in USA - gæði og árangur
Jugna Shah framkvæmdastjóri Nimitt Consulting Inc., Minnesota
14:20 – 15:05 Viðhorf klínískra stjórnenda
Margrét Oddsdóttir yfirlæknir LSH
15:05 – 15:35 Umræður og kaffi
15:25 – 15:45 Viðhorf og pólitík
Jónína Bjartmarz
15:45 – 15:55 Samantekt forstjóra LSH
15:55 – 16:00 Ráðstefnuslit
Auðlegð
í heilbrigðiskerfinu
Ráðstefna um nýjar
fjármögnunarleiðir á
Grand Hótel 18. nóvember n.k.
Dagskrá:
Ráðstefnugjald kr. 9.000,-
með hádegisverði.
Rafræn skráning
á www.icelandtravel.is
Nánari upplýsingar
og umsjón:
Ferðaskrifastofa Íslands,
Camilla Twingmark,
sími 585 4376
camilla@icelandtravel.is
Athugið að ekki er hægt
að bóka í síma.
Vegna mikils áhuga eru
þáttakendur hvattir til
að hraða skráningu.
Breytt fjármögnun
Verkefnið „breytt fjármögnun LSH“ hófst
formlega árið 2000 með ákvörðun um að
prófa notkun framleiðslumælikerfisins DRG
á kvennasviði. Tilgangur verkefnisins er, auk
prófunar á DRG, að afla betri upplýsinga
um starfsemi spítalans til reksturs og
stjórnunar, kostnaðargreina starfsemina og
hagræða í rekstri. Samhliða innleiðingu DRG
og annarra framleiðslumælikvarða hefur
verið unnið að kostnaðarfærslum á sjúklinga.
Frá árinu 2004 er allur kostnaður færður
á meðferð sjúklinga nema stofn- og
viðhaldskostnaður, S-merkt lyf á dag
og göngudeildum og kennslu- og
vísindakostnaður.
Meðal fyrirlesara eru:
Dr. Birgir Jakobsson barnalæknir og forstjóri
St. Göran sjúkrahússins í Stokkhólmi.
Sjúkrahúsið er eina einkarekna bráða-
sjúkrahús Svíþjóðar. Starfsmannafjöldi
er um 1.500 og árleg velta er um einn
milljarður sænskra króna.
Jugna Shah, MPH sem hefur sérhæft sig í
breyttri fjármögnun í ferliþjónustu og
innleiðingu breyttrar fjármögnunar. Hún stýrir
fyrir hönd tveggja bandarískra stofnana, U.S.
DHHS og USAID, innleiðingu á breyttri
fjármögnun í heilbrigðisþjónustu í Rúmeníu.
FERIBA, 13 ÁRA Sést hér í miðju ásamt frænda sínum, vinkonu og herkonu úr friðar-
gæsluliði NATO. Herkonan hafði tekið ástfóstri við Feribu.