Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 14

Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 14
Öld er liðin síðan skólahald hófst í því húsi Menntaskólans á Akur- eyri sem jafnan er kallað Gamli skóli. Af því tilefni er efnt til há- tíðardagskrár á Sal í dag hefst hún klukkan 14. Nemendur lesa upp og leika á hljóðfæri og Finn- ur Birgisson arkitekt fjallar um húsið. Að þessu loknu færist há- tíðin um skólann allan, hann verð- ur skoðaður í krók og kima og kaffi drukkið á kennarastofunni og víðar. Nemendum, kennurum, starfsfólki fyrr og síðar og öllum velunnurum skólans er boðið til hátíðarinnar. Hús Menntaskólans á Akur- eyri var ekki reist af góðu einu því ráðist var í byggingu þess þar sem hús Gagnfræðaskólans á Möðruvöllum brann tveimur árum áður. Fór skólahald í húsinu fram undir þeim merkjum allt til ársins 1930 þegar skólinn varð menntaskóli og til varð Mennta- skólinn á Akureyri með formleg- um hætti. Húsið er eitt af nokkrum þekktum kennileitum Akureyrar og óneitanlega í hópi glæstustu skólahúsa landsins. Tignarlegt stendur það neðst á Brekkunni og mænir yfir Pollinn, með Lysti- garðinn listafagran sér við hlið. Í eitt ár stóð húsið eitt og sér á sínum stað en 1905 var íþróttahús byggt vestan við. Er það jafnan kallað Fjósið. Síðar hafa fleiri hús risið á Menntaskólareitnum; heimavistin 1946-56, Möðruvellir 1969, Hólar 1996 og ný heimavist 2003. Umsvif Menntaskólans á Akur- eyri hafa aukist stórum með árun- um og sést það einna best á því að framan af hýsti Gamli skóli alla starfsemina. Þar var öll kennsla, heimavist, mötuneyti og íbúð skólameistara. Í dag eru þar skrif- stofur skólayfirvalda og erlend tungumál kennd. Önnur starfsemi fer fram í öðrum húsum. Skólahald og siðir Menntaskól- ans á Akureyri byggja á gömlum merg og þekkt er væntumþykja nemenda um skólann sinn. Skóla- yfirvöldum er mikið í mun að halda í hefðirnar en horfa um leið til framtíðar og lýsa þau skólan- um sem gamalgróinni stofnun en um leið framsæknum nútíma- skóla í stöðugri þróun. Megin- markið hans er að búa nemendur undir háskólanám í lýðræðisþjóð- félagi og koma öllum nemendum til nokkurs þroska. Fullyrða má að það hafi í flestum tilfellum tekist vel. bjorn@frettabladid.is 14 14. nóvember 2004 SUNNUDAGUR KARL BRETAPRINS Erfingi bresku krúnunnar er 56 ára í dag. Gamli skóli verður gamall HÚS MA HUNDRAÐ ÁRA: HÁTÍÐARDAGSKRÁ Á SAL Í DAG „Stundum finnst mér eins og hálfur hnöttur- inn sé lagður rauðu teppi.“ - Afmælisbarn dagsins gengur oft eftir rauðum dreglum. timamot@frettabladid.is ANDLÁT Oddur Guðmundsson, skipasmiður, síðast búsettur á Kumbaravogi, andaðist laugardaginn 6. nóvember. JARÐARFARIR 13.30 Hákon Pálsson, fv. rafveitustjóri á Sauðárkróki, hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri, verður jarðsung- inn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 15. nóvember nk. 13.00 Bjarni Ólafsson verður jarðsung- inn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 19. nóvember nk. AFMÆLI Hjálmar Árnason alþingismaður er 54 ára. Snæbjörn Arngrímsson bókaútgefandi er 43 ára. GAMLI SKÓLI Kennsla hófst í húsinu 4. október 1904. Aldarafmæli þess er fagnað ríkulega í dag. Bandaríska blaðakonan Elizabeth Cochrane, sem jafnan skrifaði undir nafninu Nellie Bly, sagðist ekki hafa þolinmæði til að vinna á dagblaði, þannig að hún ákvað að fara að dæmi skáldsöguper- sónunnar Phileas Fogg og ferðast umhverfis jörðina á áttatíu dög- um. Reyndar tókst henni að komast þessa leið á 72 dögum, 6 klukku- stundum og ellefu mínútum. Hún skrifaði ferðasögu sína og gaf út á bók árið 1890. Bókin heitir að sjálfsögðu Umhverfis jörðina á 72 dögum. Hún lagði af stað frá New York þann 14. nóvember árið 1889, fyrir réttum 115 árum. Fyrsta stopp var í London, en hún kom við í París þar sem hún heilsaði aðeins upp á Jules Verne, höfund sögunnar um Phileas Fogg. Þaðan hélt hún áfram til Brindisi, Port Said, Ismailia, Suez, Aden, Colombo, Penang, Singapúr, Hong Kong, Yokohama, San Francisco og loks aftur til New York þar sem hún lauk ferð sinni 25. janúar árið 1890. Hún var þá 25 ára gömul og hafði stundað rannsóknarblaða- mennsku af ýmsu tagi áður en hún hélt í heimsreisuna. Meðal annars hafði hún látið leggja sig inn á geðveikrahæli og afhjúpað skelfilegt ástand þar, sem endaði fyrir dómstólum. ELIZABETH COCHRANE Hún fór umhverfis jörðina á 72 dögum fyrir 115 árum. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1851 Skáldsagan Moby Dick eftir Herman Melville kemur út í Bandaríkjunum. 1882 Pat Garrett drepur Billy the Kid í villta vestrinu í Banda- ríkjunum. 1918 Tékkóslóvakía verður lýðveldi. 1922 Breska ríkisútvarpið BBC hefur útsendingar. 1940 Þjóðverjar eyðileggja með loftárásum stóran hluta af borginni Coventry í Englandi. 1951 Bandaríkin veita Júgóslavíu hernaðar- og efnahagsaðstoð. 1969 Bandaríkjamenn senda annað mannað geimfar sitt, Apollo 12, til tunglsins. 1973 Anna Bretaprinsessa giftist Mark Phillip í Westminster Abbey. „Ég ætla að fara að kaupa jólagjafir í vikunni því ég er sett 24. desember og vil ekkert vera að draga þetta neitt á langinn,“ segir Ilmur Stefánsdóttir, sem opnaði sýningu á verkum sín- um í Iðnó í gær. Hún á von á sínu fjórða barni en sinnir mæðrahlutverki sínu og myndlist af miklum myndarskap. „Af- mælisveisla sonarins er svo á sunnudag og nóg að snúast í kringum það,“ segir Ilmur og bætir við að hún þurfi einnig að mæta í mæðraskoðun á fimmtudag þar sem skoðað verður hvernig barnið snýr. „Ég held reyndar að ég fari í tannaðgerð á föstudaginn,“ segir Ilmur og skellir upp úr og segir vikuna fara mikið í persónu- lega snúninga. Annars fylgir hún sýningunni sinni aðeins eftir og ætlar sér einnig að spjalla við fjölmiðla um sýninguna sína. „Auðvitað er ég ekkert hætt að hugsa um listina þó að barn sé á leiðinni og er með fjölmargt í gangi,“ segir Ilmur, sem ætlar að sækja um listamannalaun hjá ríkinu í vikunni til að gera sér kleift að vinna að sýningu sem hún hefur lengi verið með í huganum. „Það er alveg nóg hjá mér að gera,“ segir Ilmur. VIKAN SEM VERÐUR ILMUR STEFÁNSDÓTTIR ÆTLAR SÉR AÐ KAUPA JÓLAGJAFIR Í VIKUNNI OG FARA Í MÆÐRASKOÐUN. Persónulegir snúningar ásamt jólainnkaupum Umhverfis jörðina á 72 dögum Rúnar Geirmundsson Sigur›ur Rúnarsson Elís Rúnarsson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Síðastliðin 14 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Símar 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Þegar andlát ber að lést á líknardeild Landakots að morgni 5. nóvember síðastliðinn og verður hún jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 18. nóvember klukkan 13.00. Okkar ástkæra Marta Aðalheiður Einarsdóttir frá Brú í Biskupstungum, Furugerði 1, Þorbjörg Erna Óskarsdóttir Steinn Jóhannesson Þorleifur Kristján Óskarsson Valgerður Lárusdóttir Ingibjörg Óskarsdóttir Guðmundur Hermann Óskarsson Brynhildur Sigurjónsdóttir María Erna Óskarsdóttir Lilja Jóhanna Óskarsdóttir Örlygur Sigurbjörnsson Grétar Óskarsson Svanhildur Guðmundsdóttir Barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn Okkar ástkæri Ingólfur Helgi Jökulsson málarameistari, Vogatungu 81, Verður jarðsunginn frá Digraneskirkju, Kópavogi, mánudaginn 15. nóv. kl. 15.00. Margrét Scheving Kristinsdóttir Helgi Örn Ingólfsson Annette Ingólfsson Guðjón Haukur Ingólfsson Sigurlína Scheving Jón Haukur Eltonsson Olgeir Einarsson Unnur Skúladóttir Hólmfríður Einarsdóttir Sævar Hafsteinsson Kristinn Einarsson Ágústa Jónsdóttir Stefán Jökulsson Bergljót Baldursdóttir Garðar Jökulsson Helga Nielsen Guðmundur Jón Smárason barnabörn og barnabarnabörn. ILMUR STEFÁNSDÓTTIR Notar hrærivél sem trommu. Ilmur er með myndlistarsýningu í Iðnó þessa dagana. Tilkynningar um andlát og jarðarfarir eru velkomnar á síður Fréttablaðsins. Sími: 550 5000

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.