Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 9
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 107 stk.
Keypt & selt 16 stk.
Þjónusta 22 stk.
Heilsa 6 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 23 stk.
Tómstundir & ferðir 5 stk.
Húsnæði 17 stk.
Atvinna 15 stk.
Tilkynningar 5 stk.
Komið með til St. John s
Jólastemningin er í Kanada 24. - 27. nóv. (uppselt) og 28. nóv.- 1. des. (síðustu sæti)
Bókanir og allar nánari upplýsingar: Hópferðamiðstöðin - Vestfjarðaleið,
Hesthálsi 10, 110 Rvík, s. 5629950/5876000 • info@vesttravel.is • www.vesttravel.is
Fjórir góðir dagar í afslöppuðu umhverfi höfuðborgar Nýfundnalands.
Beint flug, aðeins um 3 klst. og gist er á glæsilegum hótelum. Mjög
hagstætt að gera jólainnkaupin. Allar helstu verslanirnar. Skoðunarferðir,
frábærir veitingastaðir, jólaskrúðganga og jólasýningar.
Dæmi um verð, kr. 48.600 m.v. tvo í herbergi á Holiday Inn. VR-ávísun gildir.
’ !
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 14. nóv.,
319. dagur ársins 2004.
Reykjavík 9.54 13.12 16.30
Akureyri 9.53 12.57 16.00
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Rödd Hrafnhildar Halldórsdóttur hljómar
vel í eyrum hlustenda Rásar 2 og meðal
þeirra á hún marga aðdáendur. Hún er í
beinni útsendingu þar á hverjum virkum
degi frá 10-12, spjallar glaðlega við fólk og
spilar tónlist og það á alveg ágætlega við
hana. „Þetta er óskaplega skemmtilegt
starf og verður aldrei leiðigjarnt. Ef ein-
hver drungi kemur yfir mig opna ég sím-
ann og þó að fólk sé bara að velja sér óska-
lag verða oft skemmtileg samtöl í fram-
haldinu.“
Hrafnhildur hóf að starfa við útvarp árið
1991, þá nýkomin frá námi í Austurríki, og
byrjaði á Aðalstöðinni en 1994 lá leiðin í
Ríkisútvarpið og þar hefur hún verið síðan,
lengi vel á laugardagsmorgnum frá 9-12 og
um tíma með morgunútvarpið frá 7-9. Það
segir hún hafa verið erfiðasta kaflann í út-
varpsvinnunni. „Það er meira en að segja
það að finna alltaf 6-7 ný efni á hverjum
einasta morgni og vera alltaf ferskur. Ég
dáist að fólki sem er alltaf með puttann á
púlsinum og fylgist með öllum fréttatímum
jafnframt því að sinna heimili.“
Sjálf á Hrafnhildur þrjú börn, 12, 8 og 3
ára, sem hún kemur af stað í skóla og leik-
skóla á morgnana áður en hún heldur til
vinnu. Verkfallið í grunnskólunum hefur
auðvitað raskað því mynstri undanfarið og
Hrafnhildur segir skólabörnin vera orðin
dauðþreytt á ástandinu. Hún mætir klukk-
an 9 til vinnu sinnar og tekur til plöturnar,
les tölvupóstinn og býr til gróft handrit að
þættinum sem hún hefur reyndar undirbúið
daginn áður, bæði á vinnustaðnum og
heima. „Þetta er svona þáttur þar sem
maður getur aldrei gengið að neinu vísu
nema hvað yfirleitt er eitt viðtal á dag og ég
er búin að skipuleggja það áður.“ Hrafn-
hildur kveðst oft taka með sér plötur að
heiman enda fær hún að spila sína uppá-
haldstónlist eins og annað dagskrárgerðar-
fólk á Rás 2. „Ég hef reynt að skapa mér
minn stíl og finnst mér alltaf ganga betur
og betur,“ segir hún. gun@frettabladid.is
Spjallar glaðlega við
fólk og spilar tónlist
atvinna@frettabladid.is
BSRB stendur fyrir starfsloka-
námskeiði í BSRB-húsinu Grett-
isgötu 89 dagana 22.,24. og
29. nóvember nk. og er skrán-
ing hafin. Námskeiðið hefst kl.
16.30 og lýkur kl. 19.00. Und-
anfarna vetur hefur BSRB stað-
ið fyrir starfslokanámskeiðum á
höfuborgarsvæðinu og hefur
reynst mikill áhugi fyrir þessum
námskeiðum.
Mikill fjöldi
fólks hefur
stótt námskeið-
in. Frekari upp-
lýsingar eru að
finna á
www.bsrb.is
Skráðir atvinnulausir voru
4394 þann 12. nóvember um
allt land. Af þeim voru karlar
1950 en konur 2.444. Á höfuð-
borgarsvæðinu voru 1430 karl-
ar atvinnulausir en 1557 konur.
Af þessum tölum má sjá að at-
vinnuleysi greinist meira meðal
kvenna en karla. Aðeins á
Norðurlandi vestra eru fleiri
karlar en konur atvinnulausir.
Lífeyrissjóður verzlunar-
manna hefur ákveðið að taka
lífeyris- og örorkuréttindi sjóð-
félaga til endurskoðunar til að
bregðast við þeirri þróun að
meðalævi Íslendinga lengist ár
frá ári en á síðustu átta árum
hefur hún lengst mun meira en
á áratugunum þar á undan.
Liggja fyrir stjórn sjóðsins tillög-
ur að breyting-
um. Þær gera
meðal annars
ráð fyrir því að
margföldunar-
stuðull lífeyris-
réttinda verði
lækkaður úr
1,65 í 1,5. Í
dag er upphæð lífeyris reiknuð
þannig að stigafjöldi einstak-
lingsins er margfaldaður með
stuðlinum 1,65 og viðmiðunar-
launum sjóðsins. Flestir lífeyris-
sjóðir á landinu miða við marg-
földunarstuðulinn 1,4 til 1,5 og
standa sjóðfélagar Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna því enn vel að
vígi hvað það varðar.
„Mér finnst útvarpið frábær miðill og hann hentar mér best,“ segir Hrafnhildur.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í atvinnu
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég fór til tann-
læknisins sem ætl-
aði að draga úr mér
tönn en svo var ég
bara sprautuð og
missti af öllu.
Til sölu Skidoo Formula Mach 1 árg.
‘92. Verð 200þús. Uppl. 699 3632.
Skortur á iðnaðarmönnum
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Hrafnhildur Halldórsdóttir er í beinu sambandi við hlustendur Rásar 2.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM