Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 39
SUNNUDAGUR 14. nóvember 2004 19
Hvenær byrja börn að ljúga?
SVAR: Til þess að hægt sé að
segja að barn sé að skrökva verð-
ur að ganga út frá því sem vísu að
það geri greinarmun á því sem er
satt og ekki satt. Sömuleiðis þarf
barnið að gera sér grein fyrir því
hvað aðrir vita.
Hugarkenning
Á síðustu 20 árum hefur þetta
efni orðið sérstaklega vinsælt í
tengslum við nýtt rannsóknar-
svið sálfræðinga sem á íslensku
hefur verið nefnt „hugarkenn-
ing“ (e. theory of mind) og teng-
ist eiginleika barna til að skilja
hugsanir og tilfinningar annarra.
Þessi þroski er ekki talinn vera
til staðar fyrr en börn eru um það
bil þriggja ára. Þá fyrst geta þau
gert sér grein fyrir því að þó þau
viti eitthvað er ekki víst að allir
aðrir viti það líka. Fram að
þriggja ára aldri ályktar barnið
að allir viti það sem það veit. Í
þessu felst að barnið er tækni-
lega ekki fært um að segja ósatt
fyrr en það hefur náð þessum
þroska. Fram að þeim aldri hlýt-
ur hvers kyns ósannsögli barns
að flokkast undir vanþekkingu
eða skilningsleysi.
Hvað er lygi?
Þegar börn hafa náð þroska til að
geta beitt ósannsögli snýst
spurningin, um hvenær þau byrji
að skrökva, um siðferðisþroska.
Hvað er það að ljúga? Er það ein-
faldlega að segja ósatt eða þarf
það að vera vísvitandi ósannsögli
sem beitt er til að blekkja aðra?
Þetta kannaði svissneski sál-
fræðingurinn Jean Piaget. Hann
fékk börn til að leggja siðferðis-
legan dóm á samskipti út frá
samtölum sem fólu í sér lygar,
getgátur og ýkjur. Hann hélt því
síðan fram að börn þyrftu að
vera um það bil 11 ára áður en
þau gætu tekið tillit til ætlunar
gerenda þegar um ósannsögli var
að ræða. Fram að þeim aldri
byggðist siðferðislegt mat þeirra
á sannleiksgildi frásagnanna.
Seinni tíma rannsóknir hafa í að-
alatriðum staðfest niðurstöður
Piagets þó sýnt hafi verið fram á
að börn geti tekið tillit til ætlun-
ar gerenda mun yngri en 11 ára.
Siðferðislegt mat ungra barna er
reyndar mjög líkt siðferðislegu
mati eldri barna og fullorðinna,
sérstaklega þegar ætlun fólks og
rangfærslur eru undirstrikaðar.
Lygi og reglur samfélagsins
Taka þarf tillit til þess að skiln-
ingur barna á hugtakinu lygi
mótast af þeim reglum sem þau
búa við í sínu umhverfi. Því eru
bæði menning og samfélag mikil-
vægir áhrifaþættir þegar kemur
að siðferðiskennd barna og
hvenær þau telja sig vera að
ljúga. Þetta sést til dæmis af því
að ef fullyrðing, sem viljandi er
höfð röng, hlýtur refsingu frá
fullorðnum eru börn yngri en sex
ára líklegri til að meta hana sem
lygi en sömu fullyrðingu sem
ekki hlýtur refsingu (Bussey,
1992). Þannig getur ósannsögli
verið hluti af flóknu félagslegu
samspili milli fólks og svokölluð
„hvít lygi“ getur jafnvel verið fé-
lagslega jákvæð.
Spurningunni um það hvenær
börn byrja að ljúga vil ég svara
með því að segja að þau hafa ekki
forsendurnar til að geta brugðið
fyrir sig ósannsögli fyrr en þau
eru um það bil þriggja ára eins
og fram hefur komið. Hvort þau
eru í raun að ljúga þegar þau
segja ekki nákvæmlega rétt frá
er síðan skilgreiningaratriði því
lygi vísar til þess að til sé eitt-
hvað sem heitir sannleikur.
Lilja Ósk Úlfarsdóttir,
doktor í sálfræði.
Heimildaskrá verður
birt á vefnum.
Davíð og ölið
Hver er uppruni orðatilækisins
„að sýna einhverjum hvar Davíð
keypti ölið“?
SVAR: Orðasambandið um Davíð
og ölið er notað á fleiri en einn
veg í merkingunni að „láta ein-
hvern kenna á því“. Það er notað
með sögninni að sýna, til dæmis
„Ég skal sýna þér hvar Davíð
keypti ölið ef þú bregst mér,“
með sögninni að vita, til dæmis
„Þú færð að vita hvar Davíð
keypti ölið ef þú svíkur mig“ og
með sögninni að komast að, til
dæmis „Þú kemst að því hvar
Davíð keypti ölið ef þú gerir ekki
eins og ég segi.“
Danskur og þýskur uppruni
Hingað til lands hefur orðasam-
bandið borist úr dönsku þar sem
það er notað með sögnunum lære
og vise og felur í sér væga hótun
eins og í íslensku. Ekki er vitað til
þess að um einhvern sérstakan
Davíð sé átt en vel er hugsanlegt að
einhver saga sé upphaflega að baki.
Orðasambandið hafa Danir
fengið frá Þjóðverjum en breytt
nafninu. Í þýsku er til dæmis
sagt: „Er weiss, wo Barthel den
Most holt“, það er „hann veit
hvert Barthel sækir mjöðinn.“
Merkingin er „slyngur, kænn,
þekkir öll brögð“.
Í háþýsku mun orðasambandið
komið úr lágþýsku „he weet, wo
Barthel de Mus herhalt“. Merk-
ingin er skýrð þannig: Hann veit,
hvert storkurinn (Barthel) sækir
mýsnar (það er börnin). Sá sem
trúir því ekki lengur að storkur-
inn komi með börnin telst kominn
til vits.
Mál smáþjófa
Önnur skýring á þýska samband-
inu er sótt í mál smáþjófa. Úr
hebresku kemur orðið Barsel
„járn, kúbein“ og Moos (maíoth
„smámynt“) „peningar“. Bein
merking væri þá: Þjófurinn veit
hvernig hann nær peningunum
með því að nota kúbein.
Guðrún Kvaran, prófessor og
forstöðumaður Orðabókar Há-
skólans.
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefn-
ast. Meðal spurninga sem þar hefur verið glímt við undanfarið eru til dæmis:
Hverjar eru elstu ritheimildir um stríð, hvað er Klinefelter-heilkenni, hvaðan
kemur orðið karafla og getur farið svo við skiptingu frumna að tveir eins litn-
ingar verði í sömu frumu? Hægt er að lesa svör við þessum spurningum og
fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
GOSI Hann byrjaði snemma að ljúga og þá stækkaði nefið á honum.
Satt og ekki satt?