Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 45

Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 45
SUNNUDAGUR 14. nóvember 2004 Lexus | Nýbýlavegi 6 | sími 570 5400 | www.lexus.is Þinn tími er kominn. Glæsilegt tilboð á rekstrarleigu gerir þér kleift að njóta þess að aka Lexus IS200, bíl sem sameinar fegurð og gæði í fullkominni hönnun, kosti sportbíls og aðalsmerki lúxusbíla. IS200 sjálfskiptur á 16" felgum Rekstrarleiga aðeins 49.200 kr. á mánuði IS200 Limited, sjálfskiptur á 17" felgum Rekstrarleiga aðeins 53.100 kr. á mánuði Lexus IS200 er engum öðrum líkur. Þú átt skilið að upplifa hið besta sem völ er á. Komdu og reynsluaktu Lexus IS200 Sýning í dag 13-16 BÚÐU ÞIG UNDIR ATHYGLINA ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 26 40 1 1 1/ 20 04 OPTICAL STUDIO FRÍHÖFN NÝTT: 1 day Acuvue colour og Acuvue Advance SMÁRALIND • LEIFSSTÖÐ • KEFLAVÍK Ný kynslóð af Acuvue linsum frá BIRGIR LEIFUR Er að spila frábærlega á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina og hefur því sem næst gulltryggt sig í gegnum niðurskurð sem verður eftir daginn í dag. Stórgóður árangur Birgis Leifs Hafþórssonar: Næsta öruggur gegnum niðurskurðinn GOLF Birgir Leifur Hafþórsson spilaði stórvel á þriðja degi úr- tökumótsins fyrir evrópsku móta- röðina í golfi sem fram fór í gær. Fór hann hringinn á þremur undir pari og má mikið ganga á til að hann komist ekki í hóp þeirra 75 sem halda áfram keppni eftir daginn í dag. Þeir leika svo tvær umferðir og 35 efstu menn eftir það hljóta fullgildingu á mótaröð- ina í Evrópu á næsta ári. Birgir Leifur er því samtals á þremur undir eftir þrjá hringi en efstu menn eru níu höggum undir pari og þeir neðstu í 75 manna hópnum fyrir daginn í dag eru á sex til sjö höggum yfir pari. Spil- aði Birgir þriðja hring af öryggi. Náði hann erni á níundu braut og fimm fuglum og spilaði aðeins tvær holur yfir parinu. Birgir Leifur hefur spilað af öryggi enda lét hann hafa eftir sér þegar mót- ið hófst að hann hefði sjaldan eða aldrei verið í eins góðu andlegu jafnvægi og þessi síðustu miss- eri. Ljóst er að nái Birgir Leifur að spila með svipuðum hætti síðustu umferðirnar hefur hann gull- tryggt sig og þá munu tveir Ís- lendingar keppa í Evrópumóta- röðinni 2005, hann og Ólöf María Jónsdóttir, en skammt er síðan hún tryggði sér þátttökurétt á mótaröð kvenna. Er um miklar peningafjárhæðir að spila og draumur allra kylfinga að komast þangað fyrr en síðar. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.