Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 54

Fréttablaðið - 14.11.2004, Síða 54
■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Vestmannaeyjalistinn og Framsóknarflokkur. Magasin du Nord. Lagningu nýs Gjábakkavegar milli Þingvalla og Laugarvatns. 34 14. nóvember 2004 SUNNUDAGUR „Skákin gerir mann að betri manni og verulega áríðandi fyrir börn að geta setið í rólegheitunum og hugs- að, án þess stöðugt að ýta á ein- hverja takka. Skák gerir fólk einnig yfirvegað,“ segir Sigurjóna Björg- vinsdóttir, kennari í Breiðholts- skóla, sem sjálf kenndi skólabörnum skák á fyrri árum. „Ég sagði þá við börnin að þegar þau gætu hugsað þrjá leiki fram í tím- ann, án þess að taka á nokkrum manni, væru þau aðeins að byrja að læra, því flumbrugangurinn var slíkur. Skák er enda hugaríþrótt og maður á að sitja lengi og hugsa.“ Sigurjóna er dóttir Björgvins Abels Márussonar skákáhuga- manns sem lést 1993. Í minningu föður síns heldur hún árlega skák- mót á heimili sínu í Breiðholti og býður til mótsins systkinum sínum og afkomendum, sem tefla saman undir gamaldags veitingum; heima- bökuðum kleinum, rúgbrauði, kanilsnúðum og nýmóðins skinku- hornum. „Pabbi hafði óskaplegt yndi af skák. Hann missti heyrnina ungur og gat þá ekki tekið þátt í samræð- um. Skákin var því hans afþreying og hann tefldi geysilega mikið. Pabbi fæddist 5. nóvember 1916 en lést þann 13. nóvember 1993, og ég reyni að halda mótið fyrsta laugar- dag í nóvember, nú í fjórða skiptið.“ Þetta er alvöru skákmót eftir Monrad-kerfi sem setur fólk sjálf- krafa í riðla eftir fyrstu umferð svo skákmenn tefli ekki við ofjarla sína. Farandbikar gengur á milli manna og alltaf eru þrír verðlaunapening- ar til eignar; gull, silfur og brons. „Þátttakan fer sívaxandi. Á fyrsta mótinu var teflt á sjö borðum og í fyrra voru borðin ellefu; alls 22 keppendur og sá yngsti sjö ára. Þetta virkar hvetjandi á börnin því öll hafa þau augastað á bikarnum og medalíu og vita að þau hljóta verð- laun einn daginn ef þau æfa sig.“ Sjálf hefur Sigurjóna verið við- loðandi mörg skákmót. „Nafn mitt er ekki þekkt í skákheiminum en ég tók þátt í Íslandsmótinu 1978 og gekk afleitlega vegna þess að telft var á kvöldin og ég var jafnan dauð- þreytt með tvö lítil börn á heimilinu þá,“ segir hún hlæjandi og bætir við að Hrókurinn sé að gera góða hluti í skákkennslu barna en Reykjavíkur- borg mætti herða sig. „Borginni hefur farið mjög aftur í þessu eftir einsetningu skóla og ÍTR hætti að hafa áhuga á tómstundastarfi barna. Á sama tíma var skáknám ekki gert aðgengilegt fyrir börn svo kennslan í skólunum datt upp fyrir. Það er aðeins í einstaka skólum þar sem skólastjórar hafa brennandi áhuga, eins og Rimaskóla, þar sem börn kunna orðið að tefla,“ segir Sigurjóna að lokum, enda kominn tími á að dæma í mótinu. thordis@frettabladid.is Á SUNDI Herra Ólafur Ragnar Grímsson og frú Dorrit Moussaieff tóku á móti félögum í Sjósundfélagi Íslands og Sjósundfélagi lögreglunnar á Bessastöðum í gær. Tilefnið var nýútkomin ævisaga Eyjólfs Jónssonar, hins frækna sjósundkappa. ...fær finnski leikskólakennarinn Katri Raakel Tauriainen fyrir að vera fyrsti útlendingurinn sem slær í gegn í íslenskum sjón- varpsþætti en áhugi hennar á heimilum og innanhússhönnun kom henni í íslenska fjölmiðla, þar sem hún geislar í þættinum Innlit-Útlit. HRÓSIÐ ■ TÓNLIST NYLON Stúlknasveitin er á góðri siglingu þessa dagana. Bókin um ævintýri Nylon í sumar er komin út og platan 100% Nylon er mest selda hljómplatan á Íslandi síð- ustu vikur samkvæmt samantekt IBM consulting, sem tekur saman lista yfir mest seldu plötur á landinu fyrir hljómplötu- framleiðendur. SIGURJÓNA BJÖRGVINSDÓTTIR KENNARI: HELDUR SKÁKMÓT HEIMA Í MINNINGU FÖÐUR SÍNS Skák gerir fólk yfirvegað FJÖLSKYLDUSKÁKMÓT Á HEIMILI SIGURJÓNU BJÖRGVINSDÓTTUR KENNARA Árlega heldur hún skákmót í minningu föður síns Björgvins Abels Márussonar, sem vegna heyrnarleysis átti flestar samverustundir með öðrum í gegnum taflborðið. Fullt nafn: Stefán Máni Sigþórsson. Hvernig ertu núna? Mjög fínn bara, staddur í útgáfupartíinu mínu, gæti ekki verið betra. Hæð: 188 cm. Augnalitur: Grænblár. Starf: Rithöfundur. Stjörnumerki: Tvíburi. Hjúskaparstaða: Í sambúð með börn. Hvaðan ertu? Ólafsvík. Helsta afrek: Að hafa afrekað það að fara úr fiskinum í bókmenntirnar. Helstu veikleikar: Mikilmennskubrjálæði. Helstu kostir: Snilligáfa. Uppáhaldssjónvarpsþáttur: The West Wing. Uppáhaldsútvarpsþáttur: Hlaupanótan. Uppáhaldsmatur: Lambakjöt. Uppáhaldsveitingastaður: Hornið. Uppáhaldsborg: Búdapest. Uppáhaldsíþróttafélag: Víkingur, Ólafsvík. Mestu vonbrigði lífsins: Að hafa ekki ennþá verið í þættinum Laugardags- kvöld með Gísla Marteini. Áugamál: Lyftingar. Viltu vinna milljón? Já, ég vil vinna milljón....dollara. Jeppi eða sportbíll: Sportbíll. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði að verða hryðju- verkamaður. Skelfilegasta lífsreynslan: Það er einkamál. Hver er fyndnastur? Aðalgaurinn í The Office. Hver er kynþokkafyllst? Það er Sig- rún Jóhannsdóttir mezzó-sópran- söngkona. Trúir þú á drauga? Já. Hvaða dýr vildirðu helst vera? Mörgæs. Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Hæna. Áttu gæludýr? Ekki í augnablikinu en ég er kattamaður. Hvar líður þér best? Í vatni. Besta kvikmynd í heimi: Apocal- ypse Now. Besta bók í heimi: Innstu myrkur eftir Joseph Conrad. Næst á dagskrá: Heimsfrægð og dauði. HIN HLIÐIN Á STEFÁNI MÁNA RITHÖFUNDI Ætlaði að verða hryðjuverkamaður STEFÁN MÁNI SIGÞÓRSSON 03.06.70

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.