Fréttablaðið - 14.11.2004, Side 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
FER‹ALEIKURINN ER
Á VISIR.IS – TAKTU fiÁTT!
Þú gætir unnið ferð til
Kaupmannahafnar eða London!
Konfektkynning
Konfektkynning verður í Húsasmiðjunni Skútuvogi
kl. 14-16 í dag. Halldór Kr. Sigurðsson konditor-
meistari sýnir réttu handtökin við konfektgerðina
og gefur viðskiptavinum að smakka.
Sérverð á völdum raftækjum í dag
-kynning á jólakonfekti í Skútuvogi
-3ja ára ábyrgð
Vifta, með skyggni
Electrolux, með tveimur mótorum
1805411
38.995
Ofn, Eon 3610
Electrolux, fjölv. blástursofn, hvítur
1830105
37.995
Helluborð, keramik
Electrolux, 4 hellur, stál, 60 sm
1830033
Morgunverðarsett
Bomann, kaffivél, brauðrist
og hraðsuðuketill, svart
1840900
3.990
39.990
Þvottavél
Amica, 1000 snúninga
1805211
29.990
Helluborð, keramik
Amica, með snertitökkum, 60 sm
1850536
Konfektmót
í úrvali
329
afslá
ttur37%
7.99
5
BAKÞANKAR
GUÐBERGS
BERGSSONAR
Fyrirgefningin
Þórólfur sló tvær íslenskar flugur íeinu höggi: Viðurkenndi sekt sína
og sannaði þannig sakleysi sitt. Hann
fór frá völdum, hlaut fyrirgefningu,
og nú hefðu allir viljað að hann hefði
verið áfram borgarstjóri.
VEGNA fordæmis hans verður brátt
ekki þverfótað fyrir syndugum en iðr-
andi forstjórum. Ólíkt svindlinu á
sjötta áratug síðustu aldar þurfa þeir
ekki að grípa til minnisleysis eða láta
skipta um blóð í sér í Sviss.
ÓHEILINDI, sakleysi og gleymska
eru sívirk í auðgunarsögu okkar.
Eftir fyrirgefningu þurfa sáttfúsir að
sýna illkvitni, enda líka tvöfaldir, og
reikna út hvað borgarstjórinn fái í
laun fyrir játninguna. Öllu er breytt í
fé og bollaleggingar.
VAR EKKI ÓDÝRARA að láta
Þórólf sitja áfram? Braut hann ekki af
sér áður en hann fékk embættið?
Hefði hann ekki með nýfenginni sam-
visku bætt fyrir brot sitt í olíunni og
unnið kauplaust í ráðhúsinu? Borgin
hefði grætt á iðrun hans. Hefur hún
að öllu eðlilegu efni á þremur borgar-
stjórum á sama kjörtímabili?
SPURNINGIN er réttmæt og svarið
þetta:
R-LISTINN er eðlilega óeðlilegur. Í
honum sameinast flokkar sem voru
stofnaðir til vinstri en fóru síðan hver
með sínum hætti í tímans rás inn í
bergmál síkjaftandi rangala. Hann er
því dæmigerður rangalalisti sem hæf-
ir best kolruglaðri Framsókn. Hún er
til vinstri í borgarstjórn en hægri í
ríkisstjórn. Ekki geta allir leikið sama
leik, þótt löngun sé fyrir hendi, enda
bara ein ríkisstjórn hverju sinni.
Í ÞESSU SÉST þjóðareðlið. Forðum
fylgdu kúguð og ringluð hjúin hús-
bóndanum skilyrðislaust og í nútíman-
um Bandaríkjunum eða Sovétríkjun-
um, sístarfandi.
EINU GILDIR því hver störfin eru.
Menn hugsa ekki um annað en að
vinna þau. Ef upp kemst um svik,
réttlæta sig allir með sólrúnarsetning-
um: „Hafa ber í huga ...“ „Það gefur
auga leið ...“ „Í þessu tilviki ber að
skilja ...“
AÐ LOKUM fæst fyrirgefning og
sami leikur heldur áfram:
FÓLK HUGSAR bara um að ná sér
í pening. Gott handbragð í starfi virð-
ist skipta starfsmann meira máli en
hvort hann geti leyst starfið sjálft af
hendi með góðri samvisku.
ÞANNIG er þórólfskan.