Fréttablaðið - 30.11.2004, Síða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 63 stk.
Keypt & selt 27 stk.
Þjónusta 37 stk.
Heilsa 10 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 5 stk.
Húsnæði 20 stk.
Atvinna 19 stk.
Tilkynningar 3 stk.
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagurinn 30. nóv.,
335. dagur ársins 2004.
Reykjavík 10.43 13.17 15.44
Akureyri 10.51 13.01 15.11
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Elva Björk Barkardóttir hefur nóg að
gera í prófum um þessar mundir
en reynir að halda sér í formi í leiðinni.
„Ég bý á Bifröst og æfi þar undir leiðbein-
ingum rosafíns stráks sem heitir Benni og
er einkaþjálfari. Hann leiðbeinir mér mikið
um mataræði og ýmsar æfingar. Ég reyni
að lyfta þrisvar til fjórum sinnum í viku og
syndi tvisvar sinnum í viku, að minnsta
kosti einn kílómetra í senn. Það er mjög
gott að hafa einkaþjálfara því hann kemur
manni í gírinn og sýnir manni hvernig mað-
ur á að gera ýmsar æfingar,“ segir Elva
Björk Barkardóttir en hún er á öðru ári í
lögfræði í Viðskiptaháskólanum á Bifröst.
„Ég hugsa passlega mikið um mataræðið
en ekki of mikið því þá myndi ég ekki nenna
því. Ég geri þetta venjulega; hætti að
drekka mikið gos og borða minna af brauði.
Ég fer líka út að ganga með hundinn minn
þannig að það má segja að ég geri sitt lítið
af hverju. Eins og með mataræðið æfi ég
ekki of mikið heldur bara það sem ég hef
gaman af. Ég til dæmis syndi vegna þess að
ég nenni ekki að hlaupa á hlaupabretti, mér
finnst það bara ekki gaman,“ segir Elva en
hún og kærastinn hennar, Erpur Eyvindar-
son, ætla að vera voðalega dugleg í rækt-
inni í jólafríinu. „Við erum búin að kaupa
okkur kort í bænum og ætlum að æfa sam-
an um helgar.“
lilja@frettabladid.is
Gerir það sem hún
hefur gaman af
heilsa@frettabladid.is
Nýtt afbrigði alnæmisveir-
unnar hefur gert vart við sig á
Vesturlöndum, ónæmt fyrir öllum
þekktum lyfjum sem þróuð hafa
verið til að halda veirunni í skefj-
um. Nýja afbrigðið er talið eiga
upptök sín í Bandaríkjunum. Það
hefur þegar stungið upp kollinum
á Norðurlöndunum.
Almennur stuðningur er við
áform um að taka upp skimun
fyrir krabbameini í ristli og enda-
þarmi hér á landi. Það er niður-
staða nýlegs málþings sem Land-
læknisembættið gekkst fyrir. Slíkri
skimun er víða beitt í nálægum
löndum. Því var talið tímabært að
horfa til árangurs hennar gegn
krabbameini hér á landi og meta
rök sem lúta að henni.
Góður svefn gerir þig grannan,
flottan og frískan, segir sænska
Aftonbladet og styðst við banda-
ríska rannsókn. Þar kemur fram að
ef óregla er á svefninum framleið-
um við efni sem eykur hungurtil-
finningu og verður til þess að við
borðum meira, gjarnan fituríkan
mat. Svokallaður REM-svefn er
mikilvægur heilsunni og hjálpar
upp á minnið. Hann virðist líka
einn af lyklum þess að halda hæfi-
legri líkamsþyngd.
Elva hefur mjög gaman af því að fara í göngutúr með hundinn sinn.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í heilsu
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég datt allur
á hausinn.
Af hverju
meiddi ég mig
bara á nefinu?
Pínulítill blóðsykursmælir
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N